Öfl innan Samfylkingar vilja flýta landsfundi og velja nýja forystu

16688730898_9546981371_c.jpg
Auglýsing

Til­laga var borin upp á fram­kvæmda­stjórn­ar­fundi Sam­fylk­ing­ar­innar fyrir skemmstu um að flýta ætti lands­fundi flokksis svo hann geti kosið sér nýja for­ystu í alls­herj­ar­at­kvæða­greiðslu. Engin efn­is­leg nið­ur­staða varð um til­lög­una. Frá þessu er greint í Frétta­blað­inu í dag.

Þar er haft eftir Semu Erlu Serdar, for­manns fram­kvæmda­stjórn­ar ­Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, að fram­kvæmda­stjórn hafi opnað umræðu um næsta lands­fund og hvenær hann verður hald­inn. Til standi að halda tvo stóra flokks­stjórn­ar­fundi næst­kom­andi haust þar sem málið verði rætt. "Það er alveg rétt að ákveðin öfl innan flokks­ins vilja nýjan lands­fund þar sem flokk­ur­inn í heild sinni getur valið sér nýja for­ystu. Hins vegar býr flokk­ur­inn yfir sínum lögum og reglum og nú er vinna hafin við það að meta hvaða leiðir eru færar í stöð­unn­i," segir Sema.

Nokkrir mán­uðir frá síð­asta lands­fundi



Síð­asti lands­fundur Sam­fylk­ing­ar­innar fór fram í mars síð­ast­liðn­um. Þar bauð Sig­ríður Ingi­björg Inga­dóttir sig fram til for­manns gegn sitj­andi for­manni, Árna Páli Árna­syni. Þar sem fram­boðið barst skömmu ­fyrir lands­fund gátu ein­ungis lands­full­trúar kosið í for­manns­kosn­ing­unum í stað þess að alls­herj­ar­at­kvæða­greiðsla færi fram sem allir flokks­menn gætu tekið þátt í. Nið­ur­staðan varð sú að Árni Páll sigr­aði með einu atkvæði, hlaut 241 atkvæði en Sig­ríður Ingi­björg 240.

Árni Páll tók við af Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur sem for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar árið 2013. Árni Páll var kjör­inn í alls­herj­ar­kosn­ingu og hlaut afger­andi kosn­ingu í bar­átt­unni um for­manns­stól­inn við Guð­bjart Hann­es­son. ­Sam­fylk­ingin beið hins vegar afhroð í síð­ustu Alþing­is­kosn­ing­um, undir stjórn Árna Páls, þegar flokk­ur­inn hlaut 12,9 pró­sent atkvæða og tap­aði ell­efu þing­mönn­um. Aldrei nokkru sinni í sögu íslenskra stjórn­mála hefur einn flokkur tapað jafn miklu fylgi á milli kosn­inga og Sam­fylk­ingin gerði á milli áranna 2009 og 2013.

Auglýsing

Fylgi Sam­fylk­ing­ar­innar mælist nú 11,6 pró­sent, eða minna en í síð­ustu kosn­ing­um. Og það hefur mælst stöðugt mjög lágt í öllum könn­unum sem gerðar hafa verið und­an­farna mán­uði.

Árni Páll mælist líka með mjög lítið per­sónu­fylgi í könn­unum og virð­ist ekki trekkja kjós­endur að flokkn­um. Í könnun MMR sem birt var í lok apríl sögðu til dæmis þrjú pró­sent aðspurðra að hann væri fæddur leið­togi. Engin stjórn­málafor­ingi mæld­ist lægri í þeim flokki. Sex pró­sent svar­enda taldi að Árni Páll skil­aði árangri.

Segir Sam­fylk­ing­una verða að bregð­ast við ástand­inu



Árni Páll var í við­tali við útvarps­þátt­inn Sprengisand um síð­ustu helgi. Þar sagði hann stöðu Sam­fylk­ing­ar­innar vera áfell­is­dóm yfir honum sjálfum og flokkn­um. Þró­unin hefði byrjað með stofnun Bjartrar fram­tíðar og haldið áfram. „Ef þú horfir á stöð­una eins og hún er í dag og horfir á hana frá 2012 þá er það í mínum huga áfell­is­dómur yfir Sam­fylk­ing­unni að hún skuli ekki hafa orðið vett­vangur fólks sem hefur viljað fara í mál­efna­lega nýsköpun á miðju íslenskra stjórn­mála. Fyrst í Bjartri fram­tíð og síðan í Píröt­u­m.“

Í þætt­inum sagði Árni Pál­l einnig að hann hefði áhuga á að sækja sér sterk­ari umboð sem for­maður í alls­herj­ar­kosn­ingu en að lög flokks­ins hamli honum að gera það. Þá sagði Árni Páll einnig að Sam­fylk­ingin yrði að bregð­ast við ástand­inu. „Sam­fylk­ingin verður að bregð­ast við því með því að verða sú fjölda­hreyf­ing sem hún var stofnuð til að vera. Hún verður að hætta að tala eins og gam­al­dags­flokk­ur, hún verður að hætta að vinna eins og gam­al­dags­flokkur og hún verður að leita sér fyr­ir­mynda í laus­beisl­uðum fjölda­hreyf­ingum út um allan heim.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None