„Ófriðarhöfðinginn“ Jón Gunnarsson gagnrýndur harðlega á Alþingi

jongunnars-1.jpg
Auglýsing

Hart hefur verið tek­ist á um vinnu­brögð atvinnu­vega­nefndar Alþingis á þingi í morg­un. Stjórn­ar­and­staðan er veru­lega ósátt við vinnu­brögð meiri­hluta nefnd­ar­inn­ar, sér­stak­lega Jóns Gunn­ars­son­ar, sem er sagður vera að grafa undan bæði ramma­á­ætl­un­ar­ferl­inu og umhverf­is­ráð­herr­anum Sig­rúnu Magn­ús­dótt­ur.

Lilja Raf­ney Magn­ús­dótt­ir, vara­for­maður nefnd­ar­inn­ar, hóf umræð­una undir liðnum störf þing­ins við upp­haf þing­fund­ar. Hún gerði alvar­legar athuga­semdir við vinnu­brögð, en á fundi nefnd­ar­innar í morgun var rætt um vernd­ar- og orku­nýt­ing­ar­á­ætl­un, einnig þekkt sem ramma­á­ætl­un. Lilja Raf­ney sagði að því hefði verið haldið fram að verk­efna­stjórn ram­m­á­ætl­unar væri ekki að vinna innan ramma lag­anna og að aðeins hafi verið fengnir á fund­inn í morgun „tíu aðilar úr orku­geir­anum til að kvarta“ en ekki neinir full­trúar úr umhverf­is­geir­anum eins og hún og Heiða Kristín Helga­dótt­ir, þing­maður Bjartrar fram­tíð­ar, hefðu vilj­að. Hún sagði þetta vera óboð­legt, verið væri að grafa undan trú­verð­ug­leika verk­efn­is­stjórn­ar­innar og alls ferl­is­ins í kringum ramma­á­ætl­un.

Svan­dís Svav­ars­dótt­ir, fyrr­ver­andi umhverf­is­ráð­herra, sagði Jón Gunn­ars­son fara í það skipu­lega að grafa undan trú­verð­ug­leika ramma­á­ætl­unar og verk­efn­is­stjórn­ar­inn­ar. „Hvaða vinnu­brögð eru þetta?“ Hún­ ­sagð­ist einnig vera hugsi yfir stöðu Sig­rúnar Magn­ús­dótt­ur, núver­andi umhverf­is- og auð­linda­ráð­herra. Hún sagði verið að grafa undan ráð­herr­anum með þessum vinnu­brögð­um.

Auglýsing

Katrín Júl­í­us­dótt­ir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, spurði hvort ekki væri verið að grín­ast með vinnu­brögð­unum og Stein­grímur J. Sig­fús­son sagði að kannski væri verið að leggja upp í annan vetur þar sem vinnu­brögð Jóns Gunn­ars­son verði „að stór­felldu og sjálf­stæðu vanda­máli hér í þing­stör­f­un­um.“ Seinna kom hann svo upp og sagði rík­is­stjórn­ina, og Jón, hafa átt upp­tökin að ófriði í þessum mál­um. Hann væri ófrið­ar­höfð­ingi.

„Hefst nú þetta leik­rit enn og aft­ur,“ sagði Jón Gunn­ars­son þegar hann svo kom í ræðu­stól. Hann sagði að komið hefðu fram fyrir nefnd­inni alvar­legar athuga­semdir um að ekki sé verið að fara að lögum um ramma­á­ætl­un, meðal ann­ars úr orku­geir­an­um, og það væri eðli­legt að yfir það væri far­ið. Hann sagði að for­maður verk­efn­is­stjórn­ar­innar hefði sjálfur sagt að farið hefði verið út fyrir lögin í vinnu nefnd­ar­inn­ar.

Meðal þeirra þing­manna sem komu fram og studdu mál­flutn­ing Jóns var Ragn­heiður Elín Árna­dótt­ir, iðn­að­ar- og við­skipta­ráð­herra. Hún sagði að umræðan sem hefði átt sér stað sýndi að það yrði að breyta ein­hverju í sam­bandi við lög­gjöf­ina í kringum ramma­á­ætl­un. „Það hryggir mig að það megi ekki halda fund til þess að ræða það hvernig í ósköp­unum við getum reynt að ná saman um þessi mál hér án þess að hlut­irnir fari á hvolf hér.“

Árni Páll Árna­son sagði Ragn­heiði Elínu Árna­dótt­ur, iðn­að­ar- og við­skipta­ráð­herra, vera að taka þátt í því að grafa undan Sig­rúnu Magn­ús­dóttur og mála­flokkn­um, og Katrín Jak­obs­dóttir tók undir þetta. Þau voru bæði þeirrar skoð­unar að það hefði verið mynd­ar­bragur á því þegar Sig­rún lýsti því yfir fyrir skömmu að hún myndi ekki gera til­lögur að neinum breyt­ingum á ramma­á­ætlun heldur hefði hún trölla­trú á ferl­inu í kringum mála­flokk­inn og vildi bíða til­lagna frá verk­efn­is­stjórn­inni.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None