Ólafur Ragnar sagður hafa mært hugmyndir Xi Jinping um stjórnarfar

Á forsíðu dagblaðsins China Daily í dag segir að Ólafur Ragnar Grímsson hafi mært hugmyndir forseta Kína um stjórnarfar, á viðburði sem haldinn var í Hörpu fyrr í vikunni í tilefni af útgáfu bókar eftir Xi Jinping á íslensku.

Ólafur Ragnar Grímsson á viðburðinum sem fram fór í Hörpu á þriðjudag.
Ólafur Ragnar Grímsson á viðburðinum sem fram fór í Hörpu á þriðjudag.
Auglýsing

Ólafur Ragnar Gríms­son fyrr­ver­andi for­seti Íslands hélt ávarp við útgáfu­at­höfn í til­efni íslenskrar útgáfu bók­ar­innar Xi Jin­p­ing: Kín­versk stjórn­mál I sem fram fór í Hörpu á þriðju­dag. Við­burð­ur­inn var hald­inn á vegum kín­verska sendi­ráðs­ins á Íslandi og Alþjóð­legrar útgáfu­sam­steypu Kína.

Á vef kín­verska sendi­ráðs­ins á Íslandi og í for­síðu­um­fjöllun dag­blaðs­ins China Daily, sem er alþjóð­legt mál­gagn kín­verska stjórn­valda, er Ólafur Ragnar í ræðu sinni sagður hafa rifjað upp sam­skipti sín við Xi Jin­p­ing á fyrri árum og lýst því að hann hafi verið mjög hrif­inn af hug­myndum hans um stjórn­speki.

Á vef sendi­ráðs­ins er Ólafur Ragnar sagður hafa tjáð við­stöddum að hann hefði verið „im­pressed by Pres­ident Xi Jin­p­ing's philosophy of govern­ing the country“ og í frétt China Daily segir að Ólafur Ragnar hafi verið „deeply impressed by Xi's ideas on govern­ance“ en þessi ummæli eru ekki höfð eftir for­set­anum fyrr­ver­andi í beinni ræðu.

Auglýsing

Þor­steinn Krist­ins­son dokt­or­snemi í stjórn­mála­fræði í Lundi í Sví­þjóð vakti athygli á þeim ummælum sem höfð eru eftir Ólafi Ragn­ari á for­síðu China Daily í færslu á Twitter í morg­un.

Hann beindi þeirri spurn­ingu til for­set­ans fyrr­ver­andi hvort þarna væri rétt eftir honum haft, að hann hefði lýst sig inni­lega hrif­inn af stjórn­speki Xi, „manns­ins sem er að færa Kína frá ein­ræði aftur til alræðis og hyggst skipa sjálfan sig leið­toga fyrir lífs­tíð“.

„Ansi skraut­legar ýkj­ur“

Kjarn­inn spurði Ólaf Ragnar að því sama, og segir hann í skrif­legu svari við fyr­ir­spurn blaða­manns að um sé að ræða „ansi skraut­legar ýkjur í Rík­is­frétta­stofu Kína“. Hann vís­aði svo til svars sem hann veitti Frétta­blað­inu í dag, þar sem hann meðal ann­ars sagði það út í hött að hann hafi verið að tala um stuðn­ing við stjórn­ar­far í Kína.

„Ég segi nú við þennan á­gæta mann sem hóf þessa um­ræðu á Twitter að vara sig á kín­versku rík­is­­frétta­­stof­unn­i,“ sagði Ólafur Ragnar við blað­ið.

Sam­kvæmt frétt China Daily sagði Ólafur Ragnar einnig í ávarpi sínu að hann fagn­aði útgáfu bókar Xi á íslensku, mik­il­vægt væri að fyrir þróun heims­ins að skilja Kína og að íslensk útgáfa bók­ar­inn­ar, sem er á vegum BF-­út­gáfu, myndi stuðla að sam­eig­in­legum skiln­ingi og vin­sam­legum tengslum á milli Kína og Íslands.

Á vef kín­verska sendi­ráðs­ins er haft eftir He Rulong sendi­herra Kína hér­lendis að útgáfa bók­ar­innar á íslensku beri vitni um mik­il­vægið sem Kína veiti tengslum sínum við Ísland og gagn­kvæmri vin­áttu. Bókin muni hjálpa íslenskum les­endum að skilja hugs­ana­gang Xi Jin­p­ing for­seta um hvernig skuli stýra Kína í átt til þjóð­legrar vel­sæld­ar.

Rit Xi hafa komið út á 37 tungu­málum

Bókin sem nú er komin út á íslensku er fyrsta ritið af fjórum í bóka­röð Xi Jin­p­ing, sem inni­heldur valdar ræður og skrif kín­verska for­set­ans. Bæk­urnar hans hafa nú verið þýddar á alls 37 tungu­mál og óhætt er að full­yrða að íslenska sé smæsta tungu­málið sem bók eftir Xi hefur verið gefin út á.

Xi Jinping forseti Alþýðulýðveldisins Kína. Mynd: EPA

Bækur Xi hafa fengið mis­jafna dóma þeirra sem þær hafa les­ið, en ýmsum þykja þær þó veita gagn­lega inn­sýn í þanka­gang leið­tog­ans og voru meðal ann­ars fréttir sagðar af því að Mark Zucker­berg for­stjóri Meta (áður Face­book) hefði legið yfir bók­unum og pantað ein­tök fyrir starfs­menn fyr­ir­tæk­is­ins.

Það vakti svo nokkra athygli undir lok síð­asta árs er Reuters skýrði frá ástæð­unum fyrir því að Amazon hefði ákveðið að loka á stjörnu­gjöf alls varn­ings sem boð­inn er til sölu í kín­verskri útgáfu versl­un­ar­ris­ans.

Að sögn heim­ild­ar­manna Reuters voru nei­kvæðar umsagnir og stjörnu­gjafir um bók Xi ástæðan fyrir því að þetta var gert, að kröfu kín­verskra stjórn­valda. Allt undir fimm stjörnum var vanda­mál­ið, að sögn heim­ild­ar­manns Reuters sem þekkti til máls­ins hjá Amazon.

Fréttin var upp­færð með við­brögðum Ólafs Ragn­ars eftir að þau bár­ust

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent