Ólafur Ragnar spilar á þjóð sína eins og fiðlu

20657689544_cb139773ef_b.jpg
Auglýsing

Ólafur Ragnar Gríms­son, for­seti Íslands, var gestur útvarps­þátt­ar­ins Sprengisands í gær. Þar lýsti Ólafur Ragnar því yfir að hann hefði ekki ákveðið hvort hann myndi bjóða sig fram til for­seta í sjötta sinn á næsta ári, en þá hefur hann setið í emb­ætt­inu í 20 ár.

Þetta er fjarri því í fyrsta sinn sem for­set­inn tjáir sig í véfrétt­ar­stíl um áform sín und­an­farið ár. Í nóv­em­ber í fyrra mætti hann í við­tal við sjón­varps­þátt­inn Eyj­una eftir að hafa verið heldur spar á við­töl um nokkurn tíma, og meðal ann­ars neitað ítrek­uðum fyr­ir­spurnum RÚV um slík. Þar vildi Ólafur Ragnar ekki svara því hvort hann ætl­aði sér að bjóða sig fram aftur en tók þó af allan vafa um að hann myndi sitja út kjör­tíma­bil­ið. Hann hafði áður áskilið sér rétt til að gera það ekki. Ólafur Ragnar sagði að til­kynnt yrði um áform hans við þing­setn­ingu eða í nýársávarpi.

Í júlí 2015 var for­set­inn svo aftur mættur í við­tal, í þetta sinn á sjón­varps­stöð­inni Hring­braut. Þar sagð­ist hann ekki hafa ákveðið hvort hann myndi bjóða sig fram aftur eða ekki. Sama dag og við­talið var birt kom út nýr þjóð­ar­púls Gallup sem sýndi að sex af hverjum tíu Íslend­ingum vissu ekki hvern þeir vildu sem næsta for­seta Íslands. Ell­efu pró­sent þjóð­ar­innar sem hafði myndað sér afstöðu gagn­vart spurn­ing­unni vildu Ólaf Ragnar Gríms­son áfram á for­seta­stóli en 21 pró­sent aðspurðra vildu fá Jón Gnarr í hann, þótt að Jón hefði þegar gefið út að hann myndi ekki fara fram.

Auglýsing

Við þing­setn­ingu í sept­em­ber gaf Ólafur Ragnar síðan út óræða yfir­lýs­ing­u. Ólafur Ragnar sagði þá í ræðu sinni: „þegar ég nú, sam­kvæmt umboð­inu sem þjóðin fól mér, set Alþingi í síð­asta sinn flyt ég þing­inu í senn djúpa virð­ingu mína og ein­lægar þakk­ir.“ Margir litu svo á að með þessu hafi Ólafur Ragnar boðað að hann bjóði sig ekki fram þegar for­seta­kosn­ingar fara fram næsta sum­ar. ­For­set­inn sagði hins vegar að hann væri að setja Alþingi í síð­asta sinn „sam­kvæmt umboð­inu sem þjóðin fól“ hon­um. Slíkt umboð gæti hann end­ur­nýjað ef hann byði sig fram á ný.

Það má velta því fyrir sér hvað valdi því að for­seti þjóð­ar­innar ákveði að tala ætið með jafn óskýrum hætti um fram­tíð­ar­á­form sín og hann velur að gera. Hver svo sem ástæðan er virð­ist þjóð­in, og fjöl­miðlar henn­ar, hlaupa til við að túlka óræðar yfir­lýs­ingar hans í hvert sinn sem hann velur að koma þeim á fram­færi.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiPæling dagsins
None