Ólíklegt að samkomulag um Grikkland náist í dag - verið að undirbúa að Grikkir yfirgefi evruna

h_51808186-1.jpg
Auglýsing

Fjár­mála­ráð­herra evru­ríkj­anna funda í dag í Brus­sel um skulda­mál Grikkja. Þeir hafa týnst til fund­ar­ins einn af öðrum síð­ustu mín­út­ur, ásamt Christine Lag­ar­de, fram­kvæmda­stjóra Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins.

Grikkir lögðu í gær fram sína til­lögu um fram­leng­ingu á lána­sam­komu­lagi við ESB og AGS með breyt­ing­um. Fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins tók vel í til­lög­una og sagði hana góða byrjun en Þjóð­verjar voru ósáttir og sögðu til­lög­una langt frá því að vera full­nægj­andi.

Fyrir dag­inn í dag var tal­að um að ná þyrfti sam­komu­lagi um fram­tíð­ina á þessum fundi en sam­kvæmt Bloomberg er mjög ólík­legt að það ger­ist. Frétta­stofan hefur það eftir emb­ætt­is­manni innan Evr­ópu­sam­bands­ins, og segir að það þýði að áfram verði fundað á sunnu­dag eða mánu­dag. Talið er lík­legt að reynt verði að semja sam­eig­in­lega yfir­lýs­ingu um fram­haldið og fundum verði haldið áfram á næstu dög­um.

Auglýsing


Við kom­una til Brus­sel í dag sagði Yanis Varoufa­kis, fjár­mála­ráð­herra Grikk­lands, að grísk stjórn­völd hefðu gengið mjög langt í við­leitni sinni til að ná sam­komu­lag­i. 

Wolf­gang Schaeu­ble, fjár­mála­ráð­herra Þýska­lands, sagði hins vegar að málið snérist um traust. „Við þurfum að styrkja traustið á fram­tíð þessa evr­ópska sam­runa­verk­efnis fólks í öllum Evr­ópu­ríkj­um. Það er hið raun­veru­lega verk­efni og það er það sem við erum að vinna að með öllum okkar mætt­i.“

Þýska stór­blaðið Der Spi­egel segir frá því að Seðla­banki Evr­ópu sé að und­ir­búa sig undir það að Grikkir yfir­gefi evru­sam­starf­ið. Verið er að teikna upp sviðs­myndir og meta hvernig beri að taka á evru­svæði án Grikk­lands.

Ang­ela Merkel Þýska­landskansl­ari og Francois Hollande Frakk­lands­for­seti fund­uðu í París í dag og héldu blaða­manna­fund í kjöl­far­ið. Merkel sagði þar að það væri sam­eig­in­legt mark­mið allra evru­ríkj­anna að halda Grikk­landi inni í evru­sam­starf­inu. Til þess þyrftu Grikkir þó að gera stór­vægi­legar umbætur á til­lögum sínum að lausn. „Grikk­land er á evru­svæð­inu og verður að vera áfram á evru­svæð­in­u,“ sagði Hollande.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None