Öll umferð lesta milli Danmerkur og Þýskalands stöðvuð vegna flóttafólks

danmork_lest.jpg
Auglýsing

Lestar­fyr­ir­tækið DSB í Dan­mörku hefur stöðvað allar lestar­ferðir milli Dan­merkur og Þýska­lands vegna straums flótta­fólks um álf­una. Frá þessu greinir danska rík­is­út­varpið, DR. Þetta gildir um báðar leiðir DSB til og frá Þýska­landi, hvort sem það frá Rød­by­havn til Putt­gar­den eða um Pad­borg á Suð­ur­-Jót­landi.

Þessi tíð­indi voru höfð eftir Tony Bispekov, upp­lýs­inga­full­trúa DSB, í fréttum DR í dag. Ferð­irnar til Þýska­lands hafa verið stöðv­aðar í óákveðin tíma. Nokkuð hefur verið um að Danir hafi farið á einka­bílum yfir landa­mærin til Sví­þjóðar eða Þýska­lands og sótt flótta­fólk sem eru stranda­glópar í öðru­hvoru land­inu og flutt með sér til Dan­merk­ur. Það er hins vegar bannað og á fólk hættu á fanga­vist verði það upp­víst af slíku.

Í Rødby hefur lög­regla farið um borð í lestir sem komið hafa frá Þýska­landi og skilið vatns­þurfa börn frá for­eldrum sín­um, og komið í lækn­is­hend­ur. Flótta­fólkið heldur sig í lest­inni sem stendur kyrr við braut­ar­pall­inn og neitar jafn­vel mat­ar­gjöfum frá lög­regl­unni, segir Jyllands Post­en.

Auglýsing

Tvær lestir standa kjurrar við braut­ar­pall­inn í Rød­by. Önnur kom þangað aðfara­nótt þriðju­dags en hin í nótt með um 150 flótta­menn um borð. Flótta­fólkið neitar hins­vegar að fara frá borði og skrá sig í Dan­mörku sem flótta­fólk. Þriðja lestin var um borð í ferj­unni frá Þýska­landi og verður stöðvuð í Rød­by. Talið er að um 100 flótta­menn séu þar um borð. Jyllands Posten hafði ekki fengið fengið svör frá lög­regl­unni á Suð­ur­-Jót­landi eða í Lálandi.

Flótta­fólkið er flest á leið til Sví­þjóðar þar sem stjórn­völd eru mun mild­ari en þau dönsku gagn­vart inn­flytj­endum og flótta­mönnum frá Sýr­landi. Á sunn­an­verðu Jót­landi hafa stjórn­völd fyr­ir­skipað flug­bann yfir þjóð­vegum vegna þess að þar fara nú um meira en 300 flótta­menn á leið sinni til Sví­þjóð­ar. Bannið nær yfir þyrlu­flug og lág­flug. Frá þessu er greint á vef DR.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None