Ólöf Nordal telur Sigríði ekki þurfa að hætta sem lögreglustjóri

oloefnordal.png
Auglýsing

Ólöf Nor­dal inn­an­rík­is­ráð­herra segir í við­tali við mbl.is, að Sig­ríður Björk Guð­jóns­dótt­ir, lög­reglu­stjóri á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, þurfi ekki að hætta sem lög­reglu­stjóri höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, vegna þess sem kemur fram í úrskurði Per­sónu­vernd­ar, um að brotið hafi verið gegn lög­um.

Í við­tali við mbl.is seg­ist hún treysta Sig­ríði Björk fyrir þeim við­kvæmu störfum sem hún sé ráðin til að sinna, og að úrskurður Per­sónu­verndar breyti engu um það. Málið allt, það er hið svo­nefnda leka­mál, sé til marks um mik­il­vægi þess að yfir­fara með­ferð per­sónu­upp­lýs­inga hjá inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu.

„Ég treysti henni til þeirra við­kvæmu starfa sem hún gegn­­ir. Þetta mál hef­ur í heild sinni hef­ur varpað sér­­­stöku ljósi á allt vinn­u­lag, verk­­ferla, stöðu aðstoð­ar­manna og fleiri hluti og okk­ur ber skylda til þess að fara mjög ræki­­lega yfir það og alltaf með það í huga að vernda sér­­stak­­lega við­kvæm­ar upp­­lýs­ing­ar um fólk,“ segir Ólöf í við­tali við mbl.­is.

Auglýsing

Í úrskurði Per­sónu­vernd­ar, sem Kjarn­inn birti fyrstur fjöl­miðla á föstu­dag, kemur fram að Sig­ríður Björk braut lög um per­sónu­vernd og með­ferð per­sónu­upp­lýs­inga þegar hún sendi Gísla Frey Val­dórs­syni, þáver­andi aðstoð­ar­manni Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur grein­ar­gerð um hæl­is­leit­and­ann Tony Omos og fleiri.

Þá studd­ist beiðni Gísla Freys ekki við við­hlít­andi laga­heim­ildir um miðlun per­sónu­upp­lýs­inga, sam­kvæmt úrskurði Per­sónu­vernd­ar. Þá er Útlend­inga­stofnun gagn­rýnd fyrir að hafa ekki gætt við­un­andi öryggis við miðlun fram­burð­ar­skýrslu Tony Omos til inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins.

Í úrskurð­ar­orði seg­ir:

Miðlun Lög­regl­unnar á Suð­ur­nesjum á skýrslu­drögum með per­sónu­upp­lýs­ingum um Tony Omos, Evelyn Glory Jos­eph og fleiri ein­stak­linga til inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins hinn 20. nóv­em­ber 2013, sem og beiðni ráðu­neyt­is­ins þar að lút­andi, studd­ist ekki við við­hlít­andi heim­ild.

Skortur á skrán­ingu um miðlun drag­anna í mála­skrá lög­regl­unnar á Suð­ur­nesjum, sem og um öflun þeirra í mála­skrá inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins, fór í bága við kröfum um upp­lýs­inga­ör­yggi. Hið sama gildir um skort á skrán­ingu um mót­t­töku ráðu­neyt­is­ins hinn 20. nóv­em­ber 2013 á fram­burð­ar­skýrslu Tony Omos frá Útlend­inga­stofn­un.

Ekki var gætt við­un­andi öryggis við miðlun fyrr­nefndra skýrslu­draga til ráðu­neyt­is­ins frá Lög­regl­unni á Suð­ur­nesjum og fyrr­nefndrar fram­burð­ar­skýrslu frá Útlend­inga­stofnun til ráðu­neyt­is­ins. 

Úrskurður Per­sónu­verndar er dag­settur 25. febr­ú­ar, en undir hann ritar meðal ann­ars Björg Thoraren­sen, laga­pró­fess­or, sem er stjórn­ar­for­maður Per­sónu­vernd­ar.

Sig­ríður Björk sendi frá sér yfir­lýs­ingu á föstu­dag þar sem hún neitar að hafa brotið lög.

Kjarn­inn óskaði eftir við­brögðum frá ráð­herra við úrskurð­aði Per­sónu­verndar á föstu­dag, en fékk þau svör að Ólöf hygð­ist tjá sig um málið í dag. Hún hefur ekki veitt Kjarn­anum við­tal vegna máls­ins enn­þá, en sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá Jóhann­esi Tómassyni, upp­lýs­inga­full­trúa inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins, hyggst hún gera það í dag.

Kjarn­inn birti úrskurð Per­sónu­verndar í heild sinni fyrir helgi. Hann má lesa hér.

htt­p://kjarn­inn.s3.amazonaws.com/old/2015/02/Kjarn­inn_­ur­skur--­ur.pdf

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None