Orkuveitan kaupir mæla af Frumherja fyrir 1,5 milljarða króna

15810081330_83d70f1555_h.jpg
Auglýsing

Samn­ing­ar hafa tek­ist milli Veitna ohf., dótt­­ur­­fé­lags Orku­veitu Reykja­vík­­­ur, og Frum­herja um að Veit­ur eign­ist á ný mæla fyr­ir raf­­­magn og heitt og kalt vatn á þjón­ust­u­­svæði sínu. Frá þessu er greint í frétta­til­kynn­ingu frá Orku­veitu Reykja­vík­ur.

Frum­herji keypti allt mæla­safnið eft­ir útboð árið 2001, segir í til­kynn­ing­unni. Íslands­banki er stærsti eig­andi Frum­herja, með um 80 pró­sent hlut, en fyr­ir­tækið er í sölu­ferli.

Mæl­­arn­ir eru um 150 þús­und tals­ins og er kaup­verðið tæp­lega 1,6 millj­arð­ur­ króna. Á ár­inu 2014 greiddi OR 395 millj­­ón­ir króna fyr­ir leigu og rekst­ur rennsl­is- og orku­­mæl­anna. Þetta kem­ur fram í til­­kynn­ingu frá Orku­veitu Reykja­vík­­­ur.

Auglýsing

Það var í des­em­ber 2014 að OR kynnti þá ákvörðun að taka á ný við mæl­um fyr­ir raf­­­magn og heitt og kalt vatn hjá við­skipta­vin­um á þjón­ust­u­­svæði sínu. „OR og for­ver­ar fyr­ir­tæk­is­ins sáu fyrr á árum um mæl­ana eða til 2001 þegar Frum­herji hf. keypti þá í kjöl­far útboðs og leigði OR til af­nota. Frum­herji hef­ur síðan átt og rekið mæla­safn­ið. Ann­ar samn­ing­ur OR og Frum­herja var gerður eft­ir útboð árið 2007. Hann rann út í maí 2014 og var þá fram­­lengd­ur til eins árs eða til maíloka 2015. Ekki voru frek­­ari mög­u­­leik­ar á fram­­leng­ingu í samn­ingn­um,“ segir í til­kynn­ingu.

Með samn­ingi um kaup á þeim mæl­um sem nú eru í not­k­un flyst eign­ar­haldið til Veitna, dótt­­ur­­fé­lags OR sem var stofnað við upp­­­skipt­ingu OR í árs­­byrj­­un 2014 og sér um all­an hefð­bund­inn veit­u­r­ekst­­ur. Lög­­um sam­­kvæmt eru not­k­un­­ar­­mæl­ing­ar á ábyrgð veit­u­­fyr­ir­tæk­­is.

Á ár­inu 2014 greiddi Orku­veitan tæp­lega 400 millj­­ón­ir króna fyr­ir leigu og rekst­ur rennsl­is- og orku­­mæl­anna.

Ákvörð­unin um að taka við mæla­safn­inu á ný er einkum byggð á því að:

Helstu for­sendur sem nefndar eru fyrir við­skipt­un­um, á vef Orku­veitu Reykja­vík­ur, eru eft­ir­far­andi.

·         Mæl­arnir eru hluti af dreifi­kerf­inu sem er kjarna­starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins. Meg­in­inn­tak í stefnu­yf­ir­lýs­ingu OR og eig­enda hennar er einmitt að hlúa beri sem mest og best að kjarna­starf­sem­inni.

·         Ör tækni­þróun er á sviði mæla­bún­aðar og fyr­ir­tækið þarf að stýra þeirri upp­bygg­ingu og þróun án milli­liða milli fyr­ir­tæk­is­ins og við­skipta­vina.

·         OR hefur góða fjár­hags­lega burði til að taka mæl­ana í hús til sín, enda hefur við­snún­ingur í rekstri hennar tek­ist betur en áætlað var. Til lengri tíma stuðlar ákvörð­unin svo að hag­ræð­ingu og sparn­aði í rekstri, við­skipta­vinum til hags­bóta.

·         Óheppi­legt getur verið að veit­urnar sjálfar eigi ekki mæli­tækin sem mæla grunn tekju­streymis henn­ar.

·         Við­skipta­sam­bandið við þá sem fyr­ir­tækið þjónar verður milli­liða­laust. Jafn­framt sæta mæl­arnir óháðu eft­ir­liti sam­kvæmt lög­um.

Verð á raf­magni og vatni breyt­ist ekki vegna þessa, segir í til­kynn­ing­unni.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None