Össur skorar á Sigmund Davíð að birta sálgreiningar

össurskarp.jpg
Auglýsing

Össur Skarp­héð­ins­son, þing­maður Sam­fylk­ingar og fyrr­ver­andi utan­rík­is­ráð­herra, skorar á Sig­mund Davíð Gunn­laugs­son, for­sæt­is­ráð­herra og for­mann Fram­sókn­ar­flokks­ins, á Fés­bók­ar­síðu sinni að birta sál­grein­ingar sem erlendir vog­un­ar­sjóðir hafi látið gera hér á landi.

For­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins sagði í ræðu sinni á flokks­þingi Fram­sókn­ar­manna í gær: „Við vitum að full­trúar kröfu­haf­anna hafa tekið saman per­sónu­legar upp­lýs­ingar um stjórn­mála­menn, blaða­menn og aðra sem hafa tjáð sig um þessi mál eða telj­ast lík­legir til að geta haft áhrif á gang mála. Og í sumum til­vikum hafa verið gerðar sál­grein­ingar á fólki til að átta sig á því hvernig best sé að eiga við það.“

Össur skrifar í stöðu­upp­færslu á Face­book: „Hjá Sig­mundi Davíð kom fram í merkri ræðu hans á föstu­dag­inn að kröfu­hafar hefðu látið gera slíkar grein­ingar á íslenskum stjórn­mála­mönn­um, og ein­hverjum blaða­mönn­um. Hið síð­ara sætir engum tíð­indum þar sem vitað er að flestir blaða­menn eru lík­lega klikk­að­ir, miðað við launin sem þeir láta bjóða sér. Hitt er merki­legra ef búið er að brjóta Sig­mund sjálfan og Bjarna til mergjar frá sál­fræði­legu sjón­ar­horni – sem útaf fyrir sig hlýtur að telj­ast bæði þarft og tíma­bært. Sú skýrsla gæti orðið bók­mennta­verk árs­ins, jafn­vel best-seller ef kæm­ist á mark­að.“

Auglýsing

Þá skorar Össur á for­sæt­is­ráð­herra að birta allar þær sál­grein­ingar sem hann kunni að hafa undir höndum sem fjalli um hann sjálfan eða aðra stjórn­mála­menn á Íslandi. „Mér finnst ótækt að for­ystu­menn rík­is­ins fái einir að sitja að slíkum bók­mennta­perl­um. Þjóðin verður að fá að njóta þeirra líka. Varla eru sál­fræði­legar grein­ingar bestu sér­fræð­inga á leið­togum íslenska rík­is­ins það slæmar að skaði hags­muni rík­is­ins að birta þær.“

Stöðuuppfærslan sem Össur Skarphéðinsson birti á Facebook í dag. Stöðu­upp­færslan sem Össur Skarp­héð­ins­son birti á Face­book í dag.

Að end­ingu skrifar fyrr­ver­andi for­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar: „Varla mun úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál standa gegn svo sak­leys­is­legri beiðni. – Ég er strax far­inn að hlakka til lestr­ar­ins – en geri ráð fyrir að fátt muni koma mér á óvart!“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None