Peningarnir streyma inn og út í Grikklandi: Endurgreiða AGS og Seðlabanka Evrópu

h_52031633-1.jpg
Auglýsing

Grísk stjórn­völd fengu í dag 7,2 millj­arða evra lán frá Evr­ópu­sam­band­inu, sem sam­þykkt var að veita síð­ast­lið­inn föstu­dag. Nær allri upp­hæð­inni var sam­stundið varið í að end­ur­greiða lán sem fallin voru á gjald­daga, meðal ann­ars ríf­lega tveggja millj­arða greiðslu til Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins (AGS). Fram­kvæmda­stjóri upp­lýs­inga­mála hjá AGS stað­festi í dag að greiðsla hafi borist frá Grikk­landi. Skuldir Grikk­lands gagn­vart AGS eru því ekki lengur skil­greindar sem gjald­falln­ar, eins og þær hafa verið frá 30. júní. Þann dag greiddu grísk stjórn­völd ekki um 1,6 millj­arða af láni frá AGS og landið varð fyrst þró­aðra ríkja til að standa ekki við skuld­bind­ingar sínar gagn­vart AGS.

Á vef The Guar­dian er greint frá því að Grikkir hafi auk þess end­ur­greitt Seðla­banka Evr­ópu um 3,5 millj­arða evra lán í dag, sem einnig var fallið á gjald­daga. Til við­bótar greiddu Grikkir seðla­bank­anum um 700 millj­ónir evra í drátt­ar­vexti. End­ur­greiðslan skiptir miklu máli fyrir áfram­hald­andi veru Grikk­lands í evru­sam­starf­inu.

Auglýsing


Grískir bankar opn­uðu í morgun eftir að hafa verið lok­aðir í þrjár vik­ur. Biðraðir mynd­uð­ust við útibú bank­anna. Fjár­magns­höft eru enn við lýði í land­inu og er hverjum ein­stak­lingi heim­ilt að taka út aðeins 420 evrur á viku, jafn­virði um 62 þús­und króna. Gríska kaup­höllin er áfram lok­uð.



Grikk­land og kröfu­hafar komust að sam­komu­lagi snemma í síð­ustu viku um miklar aðhalds­að­gerðir í Grikk­landi gegn frek­ari lána­fyr­ir­greiðslum upp á um 86 millj­arða evra. Grikkir skuld­binda sig meðal ann­ars til þess að gera veiga­miklar breyt­ingar á virð­is­auka­skatt­kerf­inu, öðrum skatt­stofnum og líf­eyr­is­kerf­inu auk meiri­háttar einka­væð­ing­ar. Eins og margoft hefur komið fram þá hefur ferlið verið erfitt, evru­sam­starf Grikkja hefur hangið á blá­þræði og alls­herjar greiðslu­fall rík­is­ins verið yfir­vof­andi. Vonir standa til að nýgert sam­komu­lag dugi til að koma gríska efna­hags­kerf­inu á réttan kjöl en efa­semd­ar­menn eru margir, meðal ann­ars sér­fræð­ingar AGS og stjórn­málafor­ystan í Grikk­landi.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None