Persónuvernd leggst gegn frumvarpi um vernd uppljóstrara

mynd.jpg
Auglýsing

Ákvæði frum­varps til laga um vernd upp­ljóstr­ara, þar sem kveðið er á um und­an­þágu frá þagn­ar­skyldu starfs­stétta sem fjalla um við­kvæmar per­sónu­upp­lýs­ing­ar, sam­rým­ist hvorki sjón­ar­miðum um með­al­hóf né ákvæðum stjórn­ar­skrár og mann­rétt­inda­sátt­mála Evr­ópu um frið­helgi einka­lífs, að mati Per­sónu­verndar.  Stofn­unin leggur til að sett verði á fót starfs­hópur sem hefur það hlut­verk að kanna nánar það lagaum­hverfi sem nú er til staðar og hvort raun­veru­leg þörf sé á laga­á­kvæðum sem þess­um.

Níu þing­menn Bjartrar fram­tíðar og Pírata lögðu í mars síð­ast­liðnum fram frum­varp um miðlun upp­lýs­inga og vernd upp­ljóstr­ara. Sam­kvæmt frum­varp­inu eru mark­mið þess að stuðla að miðlun upp­lýs­inga um mis­gerð eða koma í veg fyrir mis­gerð, tryggja vernd upp­ljóstr­ara og tengdra aðila, og stuðla að aðgengi að upp­lýs­ingum sem varða almanna­hags­muni og eiga erindi til almenn­ings. Flutn­ings­maður er Róbert Mars­hall, þing­maður Bjartrar fram­tíð­ar­. ­Meðal ann­ars var óskað eftir áliti Per­sónu­vernd­ar.

Auglýsing


Helsta athuga­semd stofn­un­ar­innar varðar 6. grein frum­varps­ins sem fjallar um frá­vik frá þagn­ar­skyldu. „Per­sónu­vernd gerir alvar­legar athuga­semdir við fram­an­greint ákvæði þar sem kveðið er á um refsi­leysi gagn­vart trún­að­ar- og þagn­ar­skyldu­á­kvæðum laga.  Í ákvæð­inu er lagt til að falla skuli frá sak­sókn ef miðlun upp­lýs­inga skv. II. kafla lag­anna brýtur gegn trún­að­ar- og starfs­skyldum laga nema því aðeins að ríkir almanna­hags­munir krefj­ist máls­höfð­un­ar. Per­sónu­vernd telur að ákvæðið þurfi að afmarka nánar en eins og það er nú verður það ekki skilið á annan hátt en að t.d. læknar og aðrir heil­brigð­is­starfs­menn megi ávallt rjúfa skyldu sína til þag­mælsku um hagi sjúk­lings, sé slíkt trún­að­ar­rof þáttur í upp­ljóstrun sam­kvæmt ákvæðum frum­varp­ins,“ segir í áliti Per­sónu­vernd­ar. Það er mat stofn­un­ar­innar að þetta brjót­i ­gegn frið­helgi einka­lífs sem nýtur verndar 71. greinar stjórn­ar­skrár­innar og 8. greinar mann­rétt­inda­sátt­mála Evr­ópu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None