Persónuvernd verði ekki skylt að rannsaka allar kvartanir sem berast

Dómsmálaráðuneytið hefur lagt fram frumvarpsdrög sem miða meðal annars að því að draga úr álagi á Persónuvernd. Stofnuninni er í dag gert að kveða upp úrskurð um hverja einustu kvörtun sem til hennar berst.

Helga Þórisdóttir er forstjóri Persónuverndar. Fjöldi verkefna á borði stofnunarinnar hefur aukist mikið á undanförnum árum.
Helga Þórisdóttir er forstjóri Persónuverndar. Fjöldi verkefna á borði stofnunarinnar hefur aukist mikið á undanförnum árum.
Auglýsing

Áform eru uppi um að breyta lög­gjöf um per­sónu­vernd á þann veg að Per­sónu­vernd verði ekki lengur skylt að kveða upp úrskurð í öllum þeim kvört­un­ar­málum sem ber­ast til stofn­un­ar­inn­ar, en þessi áform eru til þess ætluð að minnka álag á Per­sónu­vernd, sem hefur auk­ist á und­an­förnum árum. Frum­varps­drög frá dóms­mála­ráðu­neyt­inu um þessar breyt­ingar á lögum sem varða per­sónu­vernd, og nokkrar til við­bót­ar, hafa verið lögð fram í sam­ráðs­gátt stjórn­valda.

Í drög­unum kemur fram að íslensk lög um per­sónu­vernd gangi lengra en kveðið er á um í Evr­ópu­reglu­gerð hvað varðar skyldu Per­sónu­verndar til þess að kveða upp úrskurði um þær kvart­anir sem ber­ast.

„Með því að fella brott þá skyldu Per­sónu­verndar að rann­saka allar kvart­anir og úrskurða um þær ætti að vera mögu­legt að stytta máls­með­ferð­ar­tíma þeirra kvart­ana sem til­efni þykir að rann­saka en vegna mik­ils fjölda kvart­ana til stofn­un­ar­innar hefur máls­með­ferð­ar­tími þeirra mála um nokk­urt skeið verið langt umfram það sem getur talist ásætt­an­legt og hafa sum hver verið til með­ferðar í hátt á þriðja ár,“ segir í frum­varps­drög­un­um.

Auglýsing

Í stað­inn fyrir að Per­sónu­vernd rann­saki hverja ein­ustu kvörtun og kveði upp úrskurð vegna þeirra er lagt til að stofn­un­inni verði gefið rýmið til þess að ákveða sjálf hvort ráð­ist verði í rann­sókn á mál­um. Á móti yrði Per­sónu­vernd falið að upp­lýsa kvart­anda um fram­vindu og nið­ur­stöður máls innan hæfi­legs tíma, sem og um mögu­leik­ann á að bera ákvarð­anir og máls­með­ferð stofn­un­ar­innar undir dóm­stóla, þar með talið ákvarð­anir Per­sónu­verndar um að taka kvörtun ekki til rann­sókn­ar.

Málafjöldi hjá Persónuvernd hefur aukist mikið á undanförnum árum. Mynd: Úr frumvarpsdrögunum

Fjöldi mála sem ber­ast inn til Per­sónu­verndar hefur verið í nær stöð­ugum vexti und­an­farin ár og er gert ráð fyrir því að á þessu ári ber­ist stofn­un­inni fleiri en 2.500 mál, þar af mörg kvört­un­ar­mál sem öllum þarf að ljúka með úrskurði sam­kvæmt gild­andi lög­um.

Stjórn þurfi ekki að koma saman til að leggja á dag­sektir

Þetta er ekki eina ákvæði per­sónu­vernd­ar­laga sem til stendur að breyta. Einnig á að breyta því hvernig Per­sónu­vernd getur lagt á dag­sekt­ir, en sam­kvæmt lögum hefur Per­sónu­vernd heim­ild til að gera það þegar ekki er farið eftir fyr­ir­mælum sem stofn­unin gef­ur.

Hins vegar er í lög­unum kveðið á um að stjórn Per­sónu­verndar taki slíkar ákvarð­an­ir, en mat stofn­un­ar­innar og stjórnar er að „ekki sé raun­veru­leg þörf á aðkomu stjórnar við ákvarð­ana­töku um álagn­ingu dag­sekta í öllum til­vik­um“ auk þess sem það geti verið „mjög þungt í vöf­um“ að kalla saman stjórn­ina til að taka ákvörðun um beit­ingu dag­sekta.

Til við­bótar er svo lagt til að heim­ildir Per­sónu­verndar til að leggja dag­sektir á aðila verði rýmkað­ar, og nái yfir þau til­felli þegar ekki er orðið við beiðnum stofn­un­ar­innar um upp­lýs­ingar eða aðgang að gögnum eða hús­næði.

„Eins og lögin eru nú væri þá eina úrræðið að leggja á stjórn­valds­sekt, sem telst mun meira íþyngj­andi úrræði en dag­sekt­ir. Reynsla Per­sónu­verndar hefur sýnt að oft nægir að taka fram að stofn­unin hafi heim­ildir til að leggja á dag­sektir til að knýja hlítn­ingu við lögin eða fyr­ir­mæli stofn­un­ar­inn­ar. Brýnt er að Per­sónu­vernd hafi þau tæki sem til þarf til að stofn­unin geti rækt hlut­verk sitt við eft­ir­lit með fram­kvæmd lag­anna. Er því lagt til að heim­ild til álagn­ingar dag­sekta í þessum til­vikum verði lög­fest,“ segir í frum­varps­drög­un­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent