Píratar bæta við sig og Björt framtíð mælist með 4,4 prósent fylgi

10054264256_34ef5fe530_c.jpg
Auglýsing

Fylgi Pírata mælist 35 pró­sent í nýrri skoð­ana­könnun MMR, sam­an­borið við 33,2 pró­sent í síð­ustu könn­un. Fylgi Bjartrar fram­tíðar mælist 4,4 pró­sent en var síð­ast 5,6 pró­sent. Stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina mælist 33,2 pró­sent og eykst frá síð­ustu könn­un, þegar stuðn­ing­ur­inn mæld­ist 30,4 pró­sent.

Fylgi Sjálf­stæð­is­flokks­ins mæld­ist nú 23,1 pró­sent, borið saman við 23,8 pró­sent í síð­ustu könn­un. Fylgi Fram­sókn­ar­flokks­ins mæld­ist nú 12,2 pró­sent, borið saman við 10,6 pró­sent í síð­ustu könn­un. Fylgi Vinstri-grænna mæld­ist nú 10,2 pró­sent, borið saman við 12,0 pró­sent í síð­ustu könn­un. Fylgi Sam­fylk­ing­ar­innar mæld­ist nú 9,6 pró­sent borið saman við 9,3 pró­sent í síð­ustu könn­un. Fylgi ann­arra flokka mæld­ist undir 2 pró­sent.

Auglýsing


Könn­unin var gerð dag­ana 22. til 30. júlí.

Langstærsti flokkur lands­ins



Píratar bæta við sig frá síð­ustu könnun MMR. Þá mæld­ist fylgi flokks­ins 33,2 pró­sent. Þetta er sjötta könnun MMR í röð sem Píratar mæl­ast með yfir 30 pró­sent fylgi. Flokk­ur­inn er langstærsti flokkur lands­ins sam­kvæmt könn­un­inni.

Þar á eftir kemur Sjálf­stæð­is­flokkur með 23,1 pró­sent fylgi. Hann dalar á milli kann­ana og mælist með minna fylgi en hann fékk í verstu alþing­is­kosn­ingum í sögu flokks­ins, árið 2009. Þá fékk Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, sem fékk mest fylgi allra stjórn­mála­flokka í síð­ustu kosn­ing­um, 23,7 pró­sent atkvæða.

Staða Fram­sókn­ar­flokks­ins vænkast lít­il­lega frá því að MMR mældi hana síð­ast. Nú segj­ast 12,2 pró­sent kjós­enda að þeir myndu kjósa flokk­inn ef kosið yrði í dag. Flokk­ur­inn er hins vegar enn langt frá kjör­fylgi sínu en hann fékk 24,4 pró­sent atkvæða í kosn­ing­unum í apríl 2013. Fylgi hans hefur því nákvæm­lega helm­ing­ast síðan þá.

Björt fram­tíð næði ekki inn manni



Sá flokkur sem þarf að hafa mestar áhyggjur af stöðu sinni er Björt fram­tíð. Fylgi flokks­ins hefur verið í frjálsu falli síðan í fyrra­haust þegar það mæld­ist um 22 pró­sent í könn­unum MMR. Nú mælist fylgið ein­ungis 4,4 pró­sent og er það í fyrsta sinn sem Björt fram­tíð mælist undir fimm pró­sent þrösk­uld­inum sem þarf til að koma manni að á Alþingi eftir að flokk­ur­inn náði inn á þing vorið 2013.

Sam­fylk­ingin glímir við sam­bæri­lega til­vist­ar­kreppu. Þótt fylgi flokks­ins hækki lít­il­lega á milli kann­ana, fari úr 9,3 pró­sentum í 9,6 pró­sent, er það samt tölu­vert frá þeim 12,9 pró­sentum sem flokk­ur­inn fékk í síð­ustu kosn­ing­um. Og sú nið­ur­staða var sögu­legt afhroð fyrir Sam­fylk­ing­una, sem hafði minnst fengið 26,8 pró­sent í kosn­ingum áður. Nið­ur­staðan í nýju könnun MMR er næst lægsta fylgi sem Sam­fylk­ingin hefur mælst með í mæl­ingum fyr­ir­tæk­is­ins frá upp­hafi. Eina skiptið sem hún hefur mælst með lægra fylgi var í könn­un­inni á und­an.

Vinstri grænir eru sá stjórn­mála­flokkur sem sýnir mestan stöð­ug­leika í fylgi í könn­un­um. Nú mælist fylgi hans 10,2 pró­sent, sem er ekki langt frá þeim 10,9 pró­sentum atkvæða sem flokk­ur­inn fékk í kosn­ing­unum 2013. Á þessu kjör­tíma­bili hefur MMR mælt fylgi flokks­ins hæst 17 pró­sent en lægst 9,6 pró­sent. Vinstri grænir eru því að mæl­ast við neðri mörk fylg­is­bils síns um þessar mund­ir.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None