Quidditch spilarar breyta nafni íþróttarinnar til að fjarlægja sig J.K. Rowling

Tvær ástæður eru fyrir því að íþróttasambandið Major League Quidditch hyggst breyta nafni íþróttarinnar í Quadball. Önnur er sú að Warner Bros á vörumerkið Quidditch en hin ástæðan eru transfóbísk ummæli höfundar bókanna um galdrastrákinn Harry Potter.

Quadball iðkendur með kústsköft á milli lappanna. Gjarðirnar í forgrunni er mörkin, hægt er að vinna sér inn stig með því að koma tromlunni inn fyrir mark andstæðingsins.
Quadball iðkendur með kústsköft á milli lappanna. Gjarðirnar í forgrunni er mörkin, hægt er að vinna sér inn stig með því að koma tromlunni inn fyrir mark andstæðingsins.
Auglýsing

Íþrótta­sam­bandið Major League Quidditch (MLQ) hefur ákveðið að breyta nafni íþrótt­ar­innar sem stunduð er innan vébanda sam­bands­ins í Quad­ball. Íþróttin er upp­runnin úr bókum J.K. Rowl­ing um galdra­strák­inn Harry Pott­er. Leik­menn þjóta um loftið á kúst­sköftum í bókum Rowl­ing en í raun­heimum eru leik­menn­irnir öllu jarð­tengd­ari þó svo að kúst­sköftin séu til stað­ar.

Ástæður þess að nafni íþrótt­ar­innar eru af tvennum toga. Kvik­mynda­fram­leið­and­inn Warner Bros. á í raun vöru­merkið Quidditch. Warner Bros. hefur ekki sett sig upp á móti nafn­inu en staðan hefur engu að síður haft hamlandi áhrif á vaxt­ar­mögu­leika grein­ar­innar og staðið í vegi fyrir því að hægt sé að gera samn­inga um sjón­varps­út­send­ingar og kost­un­ar­samn­inga.

For­svars­fólk MLQ segir einnig að Quad­ball hreyf­ingin vilji fjar­lægja sig höf­und­inum J.K. Rowl­ing, sér­stak­lega í ljósi yfir­lýs­inga hennar og skoð­ana­skipta um kyn­vit­und og rétt­indi trans fólks á nýliðnum árum. Frá þessu er greint á vef New York Times.

Auglýsing

Þús­undir iðk­enda í tugum landa

Nafnið Quad­ball vísar í það að í íþrótt­inni er not­ast við fjóra bolta og í henni eru fjórar stöð­ur. Sókn­ar­menn reyna að skora mörk með bolta sem nefn­ist tromla en markið ver gæslu­mað­ur. Varn­ar­menn reyna að senda rot­ara á sókn­ar­menn­ina en tveir rot­arar eru í umferð. Þessir rot­arar eru ekki jafn högg­þungir og nafnið gefur til kynna, eru ein­fald­lega brenni­bolt­ar. Loks er það leit­ar­inn sem reynir að ná gullnu eld­ing­unni.

Á vef Alþjóð­lega Quidditch sam­bands­ins segir að þús­undir leggi stund á íþrótt­ina í yfir 40 lönd­um. Löndin eru ef til vill fleiri en það, Ísland er til að mynda ekki aðili sam­bands­ins enda er hér á landi ekki starf­andi Quidditch sam­band. Íþróttin hefur þó verið stunduð hér af lið­inu Reykja­vík Ragnarök sem meðal ann­ars tók þátt í Norð­ur­landa­mót­inu í Quidditch árið 2018.

Fjar­lægja sig galdra­stráknum

Ummæli J.K. Rowl­ing um trans fólk sem hún hefur látið falla, til að mynda á sam­fé­lags­miðl­inum Twitt­er, hafa vakið mikla athygli á síð­ustu árum og fyrir tveimur árum sendi hún frá sér rit­gerð þar sem hún fjallar meðal ann­ars um áhyggjur hennar af aukn­ingu á kyn­leið­rétt­ing­um.

Bar­áttu­fólk fyrir rétt­indum trans fólks hefur sagt Rowl­ing vera trans­fó­bíska og aðdá­endur bókanna um Harry Potter hafa margir hverjir átt erfitt með að sam­rýma ást sína á bók­unum og and­stöðu sinni við skoð­anir höf­und­ar­ins, líkt og sagt er frá í grein New York Times.

Jack McGovern, tals­maður MLQ og Banda­ríska Quidditch sam­bands­ins segir að tengslin milli Quidditch og Rowl­ing hefðu gert aðild­ar­fé­lögum erfitt með að fjölga iðk­end­um. Hann seg­ist einni ekki vita hversu mikið íþróttin Quad­ball mun gera úr tengslum sínum við galdra­strák­inn Harry Potter þegar fram líða stund­ir.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent