QuizUp í breskt sjónvarp líka - ITV ætlar að framleiða prufuþátt

rsz_--orsteinn_baldur_2015.jpg
Auglýsing

Breska fjöl­miðla­fyr­ir­tækið ITV, sem rekur nærri tug sjón­varps­stöðva í Bret­landi, hefur keypt rétt­inn af hinum íslenska QuizUp-­spurn­ing­ar­þætti þar í landi og ætlar að fram­leiða prufu­þátt. Í lok sept­em­ber var greint frá því að banda­ríska sjón­varps­stöðin NBC hefði ákveðið að fram­leiða tíu þátta sjón­varps­s­eríu sem byggir á leikn­um.

Þor­steinn B. Frið­riks­son, höf­undur QuizUp og fram­kvæmda­stjóri Plain Vanilla sem þróar og rekur leik­inn, kynnti þátt­inn fyrir breskum sjón­varps­stöðum í síð­ustu viku. Hann er nú staddur í Cannes til að kynna spurn­inga­þátt­inn MIPCOM kaup­stefn­unni sem um 15 þús­und manns sækja heim. Með honum er Viggó Örn Jóns­son fram­leið­andi og munu þeir kynna þátt­inn fyrir inn­kaupa- og dag­skrár­stjórum sjón­varps­stöðva um allan heim.

ITV er fyrsta evr­ópska stöðin til að tryggja sér rétt­inn að leikn­um.

Auglýsing

Þætt­irnir ganga þannig fyrir sig að þátt­tak­andi í upp­töku­veri etur kappi við sjón­varps­á­horf­endur sem sitja heima hjá sér og spila leik­inn í snjall­tækjum sín­um. Ef þátt­tak­and­inn vinnur átta spurn­inga­lotur gegn átta ólíkum kepp­end­um, sem geta verið staddir hvar sem er í land­inu, þá geta þeir unnið háa fjár­hæð. Ef ein­hverjir af and­stæð­ing­unum vinna sínar lot­ur, þá hljóta þeir upp­hæð­ina sem í boði var fyrir þá lotu.

Í frétta­til­kynn­ingu frá Plain Vanilla er haft eftir David Morti­mern fram­kvæmda­stjóra hjá NBCUni­ver­sal International Studi­os, að QuizUp leik­ur­inn hafi orði til eft­ir angt og strangt þró­un­ar­tíma­bil innan NBC. "Sjón­varp hefur lengi beðið eftir spurn­inga­þætti sem er nógu spenn­andi til fá stað á besta tíma í dag­skránni og QuizUp er sá þátt­ur. QuizUp er frá­bært dæmi um gott sam­starf NBCUni­ver­sal International Studios við kollega okkar í sjón­varps­geir­anum um að koma með þetta nýja sjón­varps­form á alþjóð­legan markað og samn­ing­ur­inn við ITV er stór áfangi í kynn­ingu og sölu þess hér á MIPCOM, stærstu sjón­varps­kaup­stefnu árs­ins."

Þor­steinn segir að stað­færðir sjón­varps­þættir byggðir á QuizUp sem sýndir verða á besta tíma út um allan heim muni styðja við útbreiðslu leiks­ins. "g átti alls ekki von á því að sjón­varps­stöðvar myndu berj­ast um rétt­inn áður en þeir sæju útkom­una hjá NBC en þetta sýnir hvað það er sterkt fyrir okkur að hafa svona öfl­ugan sam­starfs­að­ila við fram­leiðsl­una eins og NBCUni­ver­sal International Studi­os. Þeir eru með virki­lega sterkt teymi hér í Cannes sem gaman er að vinna með. Bret­land hefur ríka hefð fyrir spurn­inga­þáttum og þar eru þættir sem hafa gengið í sjón­varpi ára­tugum sam­an. Við hlökkum til að sjá hvernig QuizUp UK á eftir að koma út.“

 

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None