Ráðherrar mega flytja undirstofnanir sínar milli staða

10054207846_e833b167f6_c.jpg
Auglýsing

Frum­varp Sig­mundar Dav­íðs Gunn­laugs­sonar for­sæt­is­ráð­herra um breyt­ingar á stjórn­ar­ráð­inu var sam­þykkt á Alþingi í dag. Það hefur meðal ann­ars í för með sér að nú mega því ráð­herrar ákveða aðsetur stofn­ana sem heyra undir þá, því sú heim­ild, sem hafði verið tekin út úr lögum árið 2011, er end­ur­vak­in. Einnig verður nú heim­ilt að flytja starfs­menn á milli ráðu­neyta og stofn­ana.

Þetta hefur verið mikið gagn­rýnt frá því að frum­varpið kom fram, ekki síst í ljósi mis­heppn­aðrar til­raunar Sig­urðar Inga Jóhanns­sonar sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra til þess að færa Fiski­stofu til Akur­eyr­ar.

Sú breyt­ing hefur orðið á lög­unum að nú þarf ráð­herra að gefa Alþingi skýrslu um fyr­ir­hug­aðan flutn­ing á aðsetri stofn­unar áður en ákvörðun er tek­in. Það breytir þó engu um heim­ildir við­kom­andi ráð­herra til að flytja stofn­an­ir.

Auglýsing

Þá verður sam­hæf­ing­ar­nefnd um sið­ferði­leg við­mið fyrir stjórn­sýsl­una lögð niður með gild­is­töku lag­anna. Í stað­inn fyrir nefnd­ina, sem sjö ein­stak­lingar eiga að sitja í og á að starfa að sið­ferð­is­legum málum innan stjórn­sýsl­unn­ar, mun for­sæt­is­ráðu­neytið veita ráð um túlkun siða­reglna þegar eftir því er leit­að. Síð­asta skipan nefnd­ar­innar rann út haustið 2013 og Sig­mundur Davíð hefur aldrei skipað nýja nefnd.

Í des­em­ber síð­ast­liðnum hvatti Rík­is­end­ur­skoðun til þess að ráðu­neytið skip­aði nýja nefnd í sam­ræmi við ákvæði laga. Það var gert í tengslum við könnun Rík­is­end­ur­skoð­unar á þekk­ingu starfs­manna Stjórn­ar­ráðs­ins á siða­reglum fyrir starfs­fólk Stjórn­ar­ráðs Íslands. Í könn­un­inni kom fram að stór hluti starfs­manna taldi sig ekki þekkja siða­regl­urnar vel.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None