Rannsókn á fjárkúgun gagnvart forsætisráðherra ekki enn lokið

sigmundur_malin_hlin.jpg
Auglýsing

Rann­sókn lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu á til­raun til að kúga fé út úr Sig­mundi Davíð Gunn­laugs­syni for­sæt­is­ráð­herra er ekki enn lok­ið. Þetta stað­festir Frið­rik Smári Björg­vins­son, yfir­maður hjá rann­sókn­ar­deild lög­regl­unn­ar, í sam­tali við Kjarn­ann.

Frið­rik Smári segir málin enn vera í rann­sókn, þau séu langt komin en rann­sókn sé ekki enn lok­ið. Ekki sé hægt að segja til  um það hvenær rann­sóknum ljúki. Nið­ur­stöður líf­sýna­rann­sókna liggja fyrir en enn á eftir að ljúka skýrslu­tök­um.

Málin sem rann­sóknin snýr að eru í raun þrjú. Það fyrsta snýst um til­raun systr­anna Hlínar Ein­ars­dóttur og Malínar Brand til þess að kúga fé út úr for­sæt­is­ráð­herra, sem komst upp um í byrjun júní síð­ast­lið­ins. Í lok maí voru syst­urnar hand­teknar eftir að hafa sent Sig­mundi Davíð fjár­kúg­un­ar­bréf, þar sem þess var kraf­ist að hann greiddi þeim pen­inga, átta millj­ónir króna, og skildi eftir á til­teknum stað syðst í Hafn­ar­firði, þar sem þær voru hand­tekn­ar. Hlín hefur játað að hafa ætlað að kúga fé út úr Sig­mundi Davíð en Malín sagð­ist í yfir­lýs­ingum ekki hafa skipu­lagt fjár­kúg­un­ina heldur aðeins aðstoðað systur sína við að ná í pen­ing­ana sem áttu að fást út úr kúg­un­inni. Þessu hefur Hlín mót­mælt.

Auglýsing

Skömmu síðar kom upp annað mál, þar sem fyrr­ver­andi sam­starfs­maður Hlínar kærði syst­urnar einnig fyrir fjár­kúg­un, sem hefði átt sér stað í apr­íl. Hann sagði syst­urnar hafa hótað að kæra hann fyrir nauðgun ef hann greiddi þeim ekki 750 þús­und krón­ur. Syst­urnar komu þá fram og sögðu að seinna málið hefði verið sátt í nauðg­un­ar­máli. Nokkrum dögum eftir að mað­ur­inn lagði fram kæru lagði Hlín fram kæru gegn honum fyrir nauðg­un.

Sögð­ust hafa upp­lýs­ingar sem kæmu for­sæt­is­ráð­herra illa



Upp­lýs­ing­arnar í fjár­kúg­un­ar­bréf­inu áttu að koma Sig­mundi Davíð Gunn­laugs­syni for­sæt­is­ráð­herra illa, og hótað var að gera þær opin­berar í bréf­in­u ­sem stílað var á eig­in­konu hans. Þessar upp­lýs­ingar snér­ust um að Sig­mundur Davíð eða aðilar tengdir honum hafi haft aðkomu að því að Pressan hafi fengið lána­fyr­ir­greiðslu hjá MP banka. Björn Ingi, aðal­eig­andi Pressunn­ar, er með sterk tengsl við Fram­sókn­ar­flokk­inn. Hann starf­aði á árum áður sem aðstoð­ar­maður þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra flokks­ins, Hall­dórs Ásgríms­son­ar, og sat fyrir hönd hans í borg­ar­stjórn Reykja­víkur um skeið. Björn Ingi til­kynnti hins vegar að hann væri hættur afskiptum af stjórn­málum í byrjun árs 2008 og hefur síðan þá starfað við fjöl­miðla.

Vísir greindi fyrst frá því að upp­lýs­ing­arnar hefðu átt að tengj­ast MP banka. Þar var rætt við ­Arnar Ægis­son, fram­kvæmda­stjóra Pressunn­ar, um rúm­lega 60 milljón króna hækkun á skuldum félags­ins á árinu 2013. Þar segir hann að lík­lega sé um að ræða yfir­færslu á yfir­drætti sem var í eign­ar­halds­fé­lag­inu Vef­press­unni ehf. Hann stað­festir að yfir­drátt­ur­inn sé hjá MP banka. ­Arnar hafn­aði strax öllum tengslum Pressunnar við for­sæt­is­ráð­herra. Hann hafn­aði einnig að lána­fyr­ir­greiðsla MP banka hafi verið fengin að til­stillan Sig­mundar Dav­íðs eða aðilum tengdum hon­um.

Fyrst um sinn voru sagðar fréttir af því að kúg­unin hafi snú­ist um upp­lýs­ingar um að Sig­mundur Davíð hefði tengst fjár­mögnun á kaupum Björns Inga á DV. ­Björn Ingi setti inn færslu á Face­book þriðju­dag­inn 2. júní. Þar sagði hann: „Ég er harmi sleg­inn yfir fregnum dags­ins. Hugur minn er hjá þeim sem um sárt eiga að binda vegna þessa máls. For­sæt­is­ráð­herra fjár­magn­aði ekki kaup Pressunnar á DV. Hann á ekki hlut í blað­inu. Að öðru leyti óska ég eftir því að tekið sé til­lit til þess að hér er mann­legur harm­leikur á ferð­inni og að aðgát skuli höfð í nær­veru sál­ar.“

Sig­mundur Davíð sendi frá sér yfir­lýs­ingu sama dag þar sem sagði m.a.: „ég hef engin fjár­hags­leg tengsl við Björn Inga Hrafns­son, né hef ég komið að kaupum Vef­pressunnar á DV á nokkurn hátt.“ ­Síðar setti for­sæt­is­ráð­herra svo inn stöðu­upp­færslu á Face­book þar sem hann ítrek­aði að hann hefði „ekki nokkra ein­ustu aðkomu að eig­enda­skiptum á DV og veit ekk­ert um aðdrag­anda og gang þeirra mála.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None