Rebekah Brooks snýr aftur í breska fjölmiðla - ári eftir sýknu í símhleranahneykslinu

rsz_h_51446579.jpg
Auglýsing

Rebekah Brooks snýr í næstu viku aftur til fjöl­miðla­sam­steypu Ruperts Mur­doch, News Corp. Hún verður for­stjóri News UK, sem gefur út blöðin Times, Sunday Times og the Sun, og hét áður News International. Þetta var stað­fest í dag.

Brooks var einn aðal­leik­and­inn í sím­hler­un­ar­hneyksl­inu sem skók breskt sam­fé­lag árið 2011. Hún hætti störfum hjá News Corp. í kjöl­far hneyksl­is­ins, en ár er liðið síðan hún var sýknuð af ákærum tengdum mál­inu.

Í síð­ustu viku var þó til­kynnt að sak­sókn­arar í Bret­landi hefðu nú til skoð­unar hvort News UK sam­steypan verði ákærð og krafin skaða­bóta vegna máls­ins.

Auglýsing

Rebekah Brooks varð yngsti rit­stjóri í sögu breskra dag­blaða þegar hún tók við rit­stjór­inni á News of the World árið 2000. Hún stjórn­aði blað­inu til árs­ins 2003, og varð svo fyrsti kven­kyns rit­stjóri the Sun frá 2003 til 2009. Þá varð hún for­stjóri News International, en sagði sem fyrr segir upp störfum árið 2011 í kjöl­far þess að sím­hler­un­ar­málið náði hámarki.

Blaða­menn á News of the World hler­uðu síma fjölda fólks til þess að afla sér frétta, en þetta var gert meðan Brooks var rit­stjóri þar. Blaða­maður og einka­spæj­ari voru dæmdir í fang­elsi fyrir þessa iðju árið 2006, en þá höfðu þeir hlerað síma hjá kon­ungs­fjöl­skyld­unni. Talið var að þetta hefði aðeins verið gert við frægð­ar­fólk.

Árið 2011 birti Guar­dian ásak­anir þess efnis að árið 2002, þegar Brooks var rit­stjóri News of the World, hefði blaðið brot­ist inn í tal­hólfið hjá ungri stúlku, Milly Dowler. Dowler var týnd á þessum tíma og fannst síðar myrt. Ætl­unin var að kom­ast í skila­boð sem for­eldrar hennar höfðu skilið eftir í tal­hólf­inu.

Allt varð þetta til þess að ákveðið var að leggja News of the World niður og Brooks sagði upp störfum sínum um mitt ár 2011. Nokkrum dögum síðar var hún hand­tekin vegna sím­hler­ana og vegna gruns um að hafa mútað lög­reglu­mönn­um.

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None