Reglulegar martraðir byssumenningarinnar

byssur.jpg
Auglýsing

Klukkan 10:38 að stað­ar­tíma barst neyð­ar­lín­unni í Banda­ríkj­unum hring­ing frá dauð­skelk­uðum nem­anda í Umpqua Col­lege í bænum Roseburg í suð­ur­hluta Oregon rík­is. Síðan barst annað sím­tal fljót­lega á eft­ir. Svo rigndi þeim inn. Örvænt­ing. Hræðsla. Ringul­reið. Bjarg­ar­leysi. Nem­endur og kenn­arar að upp­lifa sína verstu martröð.

Tví­tugur maður hóf skot­hríð í skól­anum með þeim afleið­ingum að tíu lét­ust og í það minnsta sjö slös­uð­ust, fjórir af þeim alvar­lega. Eftir stuttan skot­bar­daga við lög­reglu lést hann eftir að hafa fengið í sig byssu­kúl­ur.

Það var bug­aður maður sem birt­ist banda­rísku þjóð­inni í sjón­varps­ávarpi, skömmu eftir atburð­inn. Það var for­seti Banda­ríkj­anna, Barack Obama. Frá því að hann varð for­seti hafa tutt­ugu og fjórar blóð­ugar til­efn­is­lausar skotárásir átt sér stað á óbreytta borg­ara, innan skóla­veggja, í bíó­söl­um, versl­un­ar­mið­stöðum og á því sem kall­ast opin­ber vett­vang­ur. Í öllum árás­unum hafa fleiri en einn látið líf­ið.

Auglýsing

Obama hefur á sínum ferli sem for­seti gengið lengst for­seta í því að for­dæma byssu­menn­ing­una, ef svo má að orði kom­ast, sem því miður er hluti af fjöl­breyttu sam­fé­lagi Banda­ríkj­anna. „Við verðum að horfast í augu við það, að árásir sem þessar eiga sér ekki stað í neinu öðru þró­uðu rík­i,“ sagði Obama í júní, eftir blóð­uga árás á kirkju í Charleston, þar sem níu lét­ust.

https://www.youtu­be.com/watch?v=Dym80U­jeebc

Óhætt er að segja að töl­urnar sýni að eitt­hvað sé að í Banda­ríkj­un­um, sem ekki fyr­ir­finnst í öðrum þró­uðum ríkj­um. Fyrir hverja milljón íbúa eru framin 29,7 morð með skot­vopnum í Banda­ríkj­unum á ári, en til sam­an­burðar þykir hátt ef hlut­fallið fer yfir tvö mörð. Í Þýska­landi er með­al­talið 1,9 morð með skot­vopnum fyrir hverja milljón íbúa. Miklar áhyggjur hafa verið um gang mála í Finn­landi eftir að með­al­talið fór í 4,4 morð með skot­vopni fyrir hverja milljón íbúa. Það þykir alltof hátt, í alþjóð­legum sam­an­burði. Samt þarf það hlut­fall að meira en sexfald­ast til þess að vera nærri venju­legu með­al­ári í Banda­ríkj­un­um. Margar aðrar stað­reyndir eru slá­andi, þegar þessar tölur eru skoð­að­ar­. Það deyja til dæmis mun fleiri á hverju ári vegna byssu­glæpa í Banda­ríkj­unum heldur en deyja vegna hryðju­verka­árása í heim­inum öllum á hverju ári.

Það er hægt að til­taka ýmis atriði sem skýra hvers vegna þessi ótrú­lega mörgu morð eru fram­in, en því miður eiga þau það öll sam­eig­in­legt að vera ágisk­an­ir. Skýr­ing­arnar eru ekki tæm­andi eða fastar í hendi. Ef allt er „eðli­legt“ mun Obama því miður birt­ast fljót­lega aft­ur, gjör­sam­lega nið­ur­brot­inn, og til­kynna fjöl­skyldum sak­lausra barna að hugur banda­rísku þjóð­ar­innar sé hjá þeim. Og að stjórn­mála­menn verði að fara horfa í eigin barm, og spyrja hvort það geti mögu­lega ver­ið, að eitt­hvað í lögum og reglum í Banda­ríkj­un­um, geti hindrað þessa hrika­legu atburði.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiPæling dagsins
None