Rekur fylgistap Samfylkingarinnar til svikinna loforða ríkisstjórnarflokkanna

arnipall.jpg
Auglýsing

Árni Páll Árna­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, segir að fylgis­tap Sam­fylk­ing­ar­innar megi að ein­hverju leyti rekja til svik­inna lof­orða rík­is­stjórn­ar­flokk­anna, Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar, í Evr­ópu­mál­um. Þetta kemur fram í við­tali við Árna Pál í Við­skipta­blað­inu í dag.

„En það er hins vegar alveg ljóst á fylgis­töl­unum að það sem mestu skiptir og end­ur­spegl­ast í fylgi allra flokka er óþol með stjórn­málin og ég hef þá kenn­ingu að stóri áhrifa­vald­ur­inn í þessu hafi verið lof­orð rík­is­stjórn­ar­flokk­anna um þjóð­ar­at­kvæði um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu sem er svikið í tvígang, fyrst með til­raun­inni til að draga aðild­ar­um­sókn til baka í febr­úar 2014 og svo aftur með bréf­inu í febr­úar 2015. Í bæði skiptin verða gríð­ar­legar fylg­is­sveiflur og í bæði skiptin er mikil fylg­is­aukn­ing hjá þeim flokkum sem menn telja að standi fyrir eitt­hvað nýtt, fyrst Bjartri fram­tíð og í seinna skiptið Píröt­um. Ég held ein­fald­lega að von­brigði fólks end­ur­speglist í þessum sveifl­u­m,“ segir hann í við­tali við blað­ið, þar sem hann ræðir fylgis­tap flokks­ins og stefnu hans.

Fylgi Sam­fylk­ing­ar­innar er afar lágt í dag í sögu­legu sam­hengi og sam­kvæmt nýj­ustu könnun MMR um fylgi stjórn­mála­flokka er það innan við tíu pró­sent. Í nýj­ustu könnun Gallup mælist fylgi Sam­fylk­ing­ar­innar 12,2 pró­sent. Það mæld­ist um 20 pró­sent síð­asta haust en hefur dalað frá ára­mót­um.

Auglýsing

Flokk­ur­inn fékk 12,9 pró­sent í síð­ustu kosn­ing­um, sem þótti afleit nið­ur­staða, og tap­aði meira fylgi á milli kosn­inga en nokkur flokkur í sögu lands­ins hefur gert. Fyrir tæpu ári síðan í ágúst 2014, virt­ist Sam­fylk­ingin vera að ná sér á strik og fylgið mæld­ist í kringum 20,3 pró­sent.

Síðan þá hefur það verið á hraðri nið­ur­leið og fór í fyrsta sinn undir tíu pró­sent í könn­unum MMR í þeirri sem var birt var í júli, en fylgi Sam­fylk­ingar mæld­ist þá 9,3 pró­sent. Í síð­ustu könnun MMR mæld­ist fylgið síðan 9,6 pró­sent. Miðað við það er Sam­fylk­ingin næst minnsti flokkur lands­ins.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None