Rétthafasamtök ná samkomulagi við fjarskiptafélögin um lokun á deildu.net

h_51776715-1.jpg
Auglýsing

Rétt­hafa­sam­tök á Íslandi hafa náð sam­komu­lagi við helstu fjar­skipta­fyr­ir­tæki lands­ins um fram­kvæmd lög­banns sem hérð­asdómur úrskurð­aði í fyrra að lagt skyldi á aðgang að vef­síð­unum deild­u.­net og TheP­ira­tebay. Á vef­síð­unum gátu not­endur sótt sér afþrey­ing­ar­efni, sem oft var dreift ólög­lega.

Rétt­hafa­sam­tökin sem um ræður eru STEF, SFH, SÍK og FRÍSK. Í til­kynn­ingu frá sam­tök­unum segir að í kjöl­far sam­komu­lags­ins megi gera ráð fyrir að aðgangi að deild­u.­net verði lok­að, óháð því undir hvaða léni síðan er hýst. „Rétt­hafa­sam­tökin líta á lög­banns­að­gerðir sem illa nauð­syn en telja ófært að ólög­mæt starf­semi af þessu tagi við­gang­ist óheft.“

Árangur umtals­verður



Í til­kynn­ing­unni segir að þrátt fyrir að vef­síðan deild­u.­net hafi strax í kjöl­far dóms­ins skipt um lán, þá sé ljóst að árang­ur­inn af lög­bann­inu hafi verið umtals­verð­ur. Í kjöl­far dóms­ins hafi umferð frá íslandi um vef­síð­una TheP­ira­tebay minnkað veru­lega. Síðan er ein sú stærsta sinnar teg­undar í heim­in­um.

„Auk þess sem nú þegar eru í boði nokkrar lög­legar tón­list­ar­veitur hér á landi, gera allar helstu sjón­varps­stöðv­arnar not­endum nú kleift að sækja dag­skrár­efni á þeim tíma og stað sem hver og einn kýs, hvort heldur sem það er í gegnum sjón­varpið eða á sér­stökum „öpp­um“ fyrir spjald­tölvur og síma. Hefur notkun á slíkri þjón­ustu auk­ist mjög mik­ið, eða um tæp 300% frá árinu 2011, þegar þjón­ustan var fyrst tekin upp. Jafn­framt hefur not­endum staðið til boða um nokk­urra ára skeið VOD þjón­usta þar sem hægt er að leigja myndir og þætti heim í stofu. Aukn­ing á þess­ari þjón­ustu hefur verið um 200% síðan 2008.

Auglýsing

Enn­fremur hafa svo­kall­aðar “SVoD” (Subscription Video on Dem­and) þjón­ustur í anda Net­flix sprottið upp á Íslandi og nú er svo komið að hægt er að velja úr nokkrum slíkum sem hver og ein býður upp á áskrift af þús­undum klukku­stunda af efni. Loks má geta þess að hægt er að kaupa eða leigja kvik­myndir og sjón­varps­efni í gegnum netið lög­lega. Rétt er að taka fram að það efni sem boðið er af íslenskum fyr­ir­tækjum sem starfa á þessum mark­aði er sniðið fyrir íslenskan markað og kemur því tal­sett eða textað og er ald­urs­merkt til að vernda þá sem yngri eru,“ segja sam­tök­in. Bent er á vef­síð­una ton­lis­tog­mynd­ir.is þar sem finna má lista yfir lög­legar leiðir á Íslandi til að sækja og horfa á afþreyf­ing­ar­efni.

„Skref til við­bótar í bar­átt­unni“



Haft er eftir Guð­rúnu Björk Bjarna­dótt­ur, fram­kvæmda­stjóra STEFs, að með sam­komu­lag­inu við fjar­skipta­fyr­ir­tæki sé stigið eitt skref til við­bótar í bar­átt­unni gegn ólög­legri dreif­ingu afþrey­ing­ar­efn­is. „Við höfum í gegnum árin fengið mál­efna­lega gagn­rýni þar sem bent hefur verið á skort á aðgengi að lög­legu afþrey­ing­ar­efni á net­inu. Mjög margt hefur þó breyst til batn­aðar und­an­farið að þessu leyti. Þannig hafa Íslend­ingar í auknum mæli nýtt sér þjón­ustu lög­legra tón­list­ar­veitna.“

Að lokum segir í til­kynn­ing­unni að rétt­hafa­sam­tökin líti á aðgerð­irnar sem illa nauð­syn. „Rétt­hafa­sam­tökin líta á lög­banns­að­gerðir sem illa nauð­syn en telja ófært að ólög­mæt starf­semi af þessu tagi við­gang­ist óheft. Sam­tökin hafa það að sínu mark­miði að upp­lýsa almenn­ing um eðli þess­ara brota og spyrna gegn þeim innan ramma lag­anna. Þannig megi ná fram hug­ar­fars­breyt­ingu not­enda og auka skiln­ingur á því að um dreif­ingu og sölu kvik­mynda og tón­list­ar­efnis á net­inu eigi að gilda sömu lög­mál og almennt gilda um við­skipti af þessu tagi í raun­heim­um. Þegar því tak­marki er náð verður kom­inn grund­völlur til eðli­legra og sann­gjarnra við­skipta með slíkt efni sem mun skila sér til höf­unda, lista­manna og fram­leið­enda og stuðla að því að þessar list­greinar fái þrif­ist öllum til ánægju og hags­bóta.“

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None