Ríkið ætlar að afnema eitt skattþrep, skattalækkun upp á marga milljarða króna

15996599272_a09261720e_z.jpg
Auglýsing

Milli­tekju­skatt­þrepið verður afnumið í tveimur áföngum og horfið að fullu í árs­lok 2017. Neðri mörk efra þreps­ins verða við 700 þús­und króna mán­að­ar­laun. Rík­is­sjóður verður af um 15 til 17 millj­örðum króna vegna þessa í formi lægri skatt­tekna. Þessi breyt­ing hefur verið kynnt, og sér­stak­lega til hennar horft, í þeim kjara­samn­ingum sem VR, Flóa­banda­lagið og Stétt­ar­fé­lag Vest­ur­lands eru að gera við Sam­tök atvinnu­rek­enda. Breyt­ingin mun auka ráð­stöf­un­ar­tekjur allra tekju­hópa en minnst þeirra sem fá lægstu laun­in, enda greiða þeir lægstu skatt­anna. Þetta kemur fram í Frétta­blað­inu.

Þar segir að útspil rík­is­sjóðs hafi verið kynnt fyrir for­ystu­mönnum stétt­ar­fé­lag­anna á fundi hjá rík­is­sátt­ar­semj­ara í gær og að frek­ari kynn­ing á aðgerð­unum muni fara fram í dag. Þessar aðgerðir eiga að stuðla að kjara­bótum fyrir mill­tekju­hópa, en í þeim samn­ings­drögum sem fyrir liggja er fyrst og fremst verið að ein­beita sé að hækkun lægstu launa, sem hækka upp í 300 þús­und krónur í skrefum fram til 1. maí 2018. Ekki er búið að taka end­an­lega ákvörðun um hvernig pró­sentu­tölur verða í hvoru skatt­þrepi fyrir sig. Taki verka­lýðs­fé­lögin vel í aðgerð­irnar er búist við því að skrifað verði undir nýja kjara­samn­inga í dag eða á morg­un.

Í dag eru þrjú tekju­skatt­þrep og greiða laun­þegar 22,86 pró­senta tekju­skatt af tekjum undir 309.140 krónum á mán­uði, 25,3 pró­sent af tekjum frá þeirri upp­hæð að 836.404 krónum og 31,8 pró­sent af tekjum yfir 836.405.

Auglýsing

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None