Ríkið eignist allt hlutafé Íslandsbanka

--slandsbanki-8-715x480.jpg
Auglýsing

Hópur kröfu­hafa Glitnis hf. hefur lagt til breyt­ingar á fyrri til­lögu sinni, sem sett var fram með bréfi 8. júní sl., um stöð­ug­leika­fram­lag Glitnis til rík­is­ins í tengslum við heild­stæða áætlun stjórn­valda um losun fjár­magns­hafta sem kynnt var sama dag. Í bréfi sem barst fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra í dag leggja þessir sömu kröfu­hafar Glitnis til að öllum eign­ar­hlut Glitnis í Íslands­banka verði afsalað til  rík­is­ins, sem muni þá eign­ast bank­ann að fullu.  Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu. Íslenska ríkið á í dag 5 pró­sent hlut í Íslands­banka, 98 pró­sent hlut í Lands­bank­anum og 13 pró­sent hlut í Arion banka. Eigið fé Íslands­banka nam um mitt þetta ár 185 millj­örðum króna.

Hinn 8. júní 2015 birti fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið til­lögur hóps kröfu­hafa Glitnis og ráð­gjafa hans um aðgerðir til að greiða fyrir lokum slita­með­ferðar Glitn­is. Þessar aðgerðir mið­uðu að því að hlut­leysa þá áhættu sem steðj­aði að greiðslu­jöfn­uði vegna upp­gjörs inn­lendra eigna slita­bús­ins. Til­lög­urnar voru settar fram eftir upp­lýs­inga­fundi kröfu­haf­anna og fram­kvæmda­hóps um losun fjár­magns­hafta. Síðan þær komu fram hefur slita­stjórn Glitnis úfært til­lög­urnar frekar með stuðn­ingi kröfu­hafa. Stjórn­völd hafa frá því í sumar haft upp­haf­legar til­lögur til skoð­un­ar, í þeim til­gangi að meta hvort þær upp­fylltu stöð­ug­leika­skil­yrði stjórn­valda sem kynnt hafa ver­ið.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra. Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, og Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­sæt­is­ráð­herra.

Auglýsing

Ráð­gjafar kröfu­hafa Glitnis og fram­kvæmda­hópur um losun fjár­magns­hafta áttu fundi 25. sept­em­ber til 13. októ­ber sl. vegna til­lagn­anna frá 8. júní. Í fram­haldi af þeim fundum hafa sömu kröfu­hafar Glitnis kynnt fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, sem for­manni stýrinefndar um losun fjár­magns­hafta, end­ur­skoð­aðar til­lög­ur. Þær breyt­ingar sem í þeim fel­ast eru helstar eft­ir­far­andi:



  • Sem hluti af stöð­ug­leika­fram­lagi mun Glitnir afsala öllu hlutafé ISB Hold­ing ehf., sem er eig­andi 95% hluta­fjár Íslands­banka hf., til stjórn­valda. Eigið fé Íslands­banka nam um 185 ma.kr. í lok júní 2015. Vegna þess­arar breyt­ingar falla eft­ir­far­andi þættir í fyrri til­lögum kröfu­hafa Glitnis niður


  • Afkomu­skipta­samn­ingur um arð­semi hluta­fjár Íslands­banka;


  • Skil­yrt skulda­bréf að fjár­hæð 119 ma.kr.;


  • Arð­greiðsla Íslands­banka í erlendum gjald­eyri að fjár­hæð 16 ma.kr. til Glitnis og aðrar fyr­ir­hug­aðar arð­greiðsl­ur.


  • Fram­sal lausa­fjár­eigna, reiðu­fjár og ígildi reiðu­fjár, mun sam­kvæmt fram­an­greindri til­lögu lækka um 16  ma.kr. vegna fyr­ir­hug­aðrar arð­greiðslu í erlendum gjald­eyri til Glitn­is, sem ekki verður af, og 36 ma.kr. vegna ann­arra breyt­inga sem fel­ast í end­ur­skoð­uðum til­lögum kröfu­hafa Glitn­is. Umbreyt­ing inn­lána Glitnis í erlendum gjald­eyri í Íslands­banka í staðl­aða skulda­bréfa­út­gáfu mun taka mið af sér­stöku sam­komu­lagi Glitnis og Íslands­banka. Glitnir mun greiða fyrir og eign­ast fyr­ir­greiðslu rík­is­sjóðs við Íslands­banka sem veitt var í formi víkj­andi skulda­bréfs í erlendri mynt á nafn­virði auk greiðslu áfall­inna vaxta.




Fram­kvæmda­hópur um losun fjár­magns­hafta telur að þær aðgerðir sem um ræðir í fram­an­greindu bréfi falli að stöð­ug­leika­skil­yrð­unum sem mótuð voru og að því gefnu að umræddar aðgerðir verði fram­kvæmdar er það mat fram­kvæmda­hóps­ins að for­sendur fyrir und­an­þágu frá gjald­eyr­is­höftum séu fyrir hendi, segir í til­kynn­ing­unni.

Fram­an­greindar aðgerðir eru háðar sömu for­sendum og komu fram í til­lögum aðila 8. júní 2015, meðal ann­ars um und­an­þágu frá lögum nr. 87/1992, um gjald­eyr­is­mál, sem heim­ila Glitni að ljúka slita­með­ferð þannig að ekki komi til greiðslu  ­stöð­ug­leika­skatts.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None