Ríkisfyrirtæki greiddu yfir 200 milljónir í félagsgjöld til hagsmunasamtaka í fyrra

Félög sem ríkið á að fullu eða fer með ráðandi eignarhlut í greiddu Samtökum atvinnulífsins og aðildarsamtökum þess vel yfir 200 milljónir króna í félags- og aðildargjöld á síðasta ári.

Hús atvinnulífsins í Borgartúni hýsir Samtök atvinnulífsins og flest aðildarsamtök þeirra.
Hús atvinnulífsins í Borgartúni hýsir Samtök atvinnulífsins og flest aðildarsamtök þeirra.
Auglýsing

Tólf fyr­ir­tæki, sem íslenska ríkið á alfarið eða fer með ráð­andi eign­ar­hlut í, greiddu sam­tals að minnsta kosti 173 millj­ónir króna í félags­gjöld til Sam­taka atvinnu­lífs­ins og ann­arra hags­muna­sam­taka sem starfa undir hatti sam­tak­anna á síð­asta ári.

Þetta kemur fram í skrif­legu svari Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra við fyr­ir­spurn frá Jóhanni Páli Jóhanns­syni þing­manni Sam­fylk­ing­ar­innar um aðild rík­is­fyr­ir­tækja að Sam­tökum atvinnu­lífs­ins.

Svör vantar og heild­ar­summan nálægt 220 millj­ónum

Íslands­banki, sem var í fullri eigu rík­is­ins fram í ágúst í fyrra, greiddi sam­kvæmt þeim tölum sem birt­ast í svari ráð­herr­ans mest til hags­muna­sam­taka á síð­asta ári, eða alls yfir 63 millj­ónir króna. Þar af voru félags­gjöld til Sam­taka fjár­mála­fyr­ir­tækja 46,6 millj­ónir og aðild­ar­gjöld að Sam­tökum atvinnu­lífs­ins 17,2 millj­ón­ir.

Auglýsing

Lands­bank­inn greiddi svo 18,1 milljón króna til Sam­taka atvinnu­lífs­ins en ekki er tekið fram í svari ráð­herra hve mikið bank­inn greiddi til Sam­taka fjár­mála­fyr­ir­tækja, sem bank­inn á þó aðild að. Lík­lega greiddi bank­inn ögn meira en Íslands­banki til þeirra sam­taka, en svörin sem ráð­herra færir fram í svari sínu voru fengin með fyr­ir­spurnum ráðu­neyt­is­ins til þeirra fyr­ir­tækja sem um ræð­ir.

Í svari Lands­bank­ans til Kjarn­ans segir að upp­lýs­ingar um félags­gjöldin til aðild­ar­sam­taka SA hafi vantað í svarið sem bank­inn færði ráðu­neyt­inu. „Bank­inn mun senda þessar upp­lýs­ingar til ráðu­neyt­is­ins og óska eftir því að svarið verði upp­fært,“ segir í skrif­legu svari bank­ans til Kjarn­ans.

Opin­ber hluta­fé­lög í SA

Lands­virkjun greiddi 29,1 milljón í aðild­ar­gjöld til Sam­orku og 8,2 millj­ónir til við­bótar til Sam­taka atvinnu­lífs­ins og RARIK greiddi 12,3 millj­ónir til Sam­orku og 4,4 millj­ónir til Sam­taka atvinnu­lífs­ins.

Isa­via og Frí­höfnin greiddu svo sam­an­lagt tæpar 14 millj­ónir í aðild­ar­gjöld til Sam­taka atvinnu­lífs­ins í fyrra. Íslands­póstur greiddi sam­tök­unum svo 6,2 millj­ónir í félags­gjöld.

80 millj­ónir beint til SA og rest til aðild­ar­sam­taka

Af þessum alls rúm­lega 200 millj­ónum króna sem fyr­ir­tæki í eigu rík­is­ins greiddu til Sam­taka atvinnu­lífs­ins og aðild­ar­sam­taka þeirra fóru tæp­lega 81 milljón beint til Sam­taka atvinnu­lífs­ins.

Sam­kvæmt árs­reikn­ingi sam­tak­anna voru tekjur sam­tak­anna alls rúmar 810 millj­ónir árið 2020 og má því ætla að rík­is­fyr­ir­tæki hafi staðið undir hátt í tíu pró­sentum af tekjum Sam­taka atvinnu­lífs­ins árið 2021, ef gert er ráð fyrir því að tekj­urnar hafi vaxið hóf­lega á milli ára.

Rík­is­fjöl­mið­ill­inn í Sam­tökum atvinnu­lífs­ins

Rík­is­út­varpið á aðild að Sam­tökum atvinnu­lífs­ins og greiddi þangað 5,7 millj­ónir króna í félags­gjöld í fyrra. Flestir stærstu fjöl­miðlar lands­ins hafa verið aðilar að Sam­tökum atvinnu­lífs­ins, en reyndar var sagt frá því á dög­unum á fjöl­miðla­fyr­ir­tækið Torg, útgef­andi Frétta­blaðs­ins, Hring­brautar og DV, hefði ákveðið að segja sig úr Sam­tökum versl­unar og þjón­ustu og þar með úr Sam­tökum atvinnu­lífs­ins.

„Fyrst og fremst er þetta vegna þess að okkur finnst ekki fara vel á því að fjöl­mið­ill eigi hags­muni í hags­muna­sam­tök­um, ef svo má segja, en þurfi svo kannski að geta fjallað um þau og skýrt frá ýmsum málum þeim tengd­um. Við viljum ekki vera undir þá sök seldir að vera mögu­lega með ein­hvers konar bias í þeim efn­um,“ var haft eftir Jóni Þór­is­syni for­stjóra Torgs í frétt Stund­ar­innar um þær vend­ing­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent