Ríkisstjórnin boðar nýja Íbúðastofnun sem tekur við verkefnum af Íbúðalánasjóði

eyglo-har--ardottir.jpg
Auglýsing

Stofnuð verður sér­stök Íbúða­stofnun sem á að taka við hluta þeirra verk­efna sem Íbúða­lána­sjóður hefur haft á sinni könnu. Meðal ann­ars á Íbúða­stofnun að sjá um að veita stofn­fram­lög til bygg­inga eða kaupa á leigu­í­búðum sem eru ætl­aðar tekju- og eigna­litlum leigj­end­um. Þetta kemur fram í þing­mála­skrá rík­is­stjórn­ar­innar fyrir vet­ur­inn, sem hefur verið birt á net­inu. Frum­varp um Íbúða­stofnun verður eitt þeirra frum­varpa sem Eygló Harð­ar­dótt­ir, félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, hyggst leggja fram í haust.

Íbúða­stofnun á líka að vera ráð­gef­andi fyrir stjórn­völd þegar kemur að mótun hús­næð­is­stefnu, hún mun ann­ars söfn­un, úrvinnslu og útgáfu upp­lýs­inga á sviði hús­næð­is­mála og á að meta þörf á búsetu­úr­ræð­um.

Rætt hefur verið um breyt­ingar á Íbúða­lána­sjóði og stofnun nýrrar stofn­unar frá því að verk­efn­is­stjórn um fram­tíð­ar­skipan hús­næð­is­mála skil­aði sínum til­lögum til ráð­herra, og frum­varpið sem nú er lagt fram byggir á þeim til­lög­um.

Auglýsing

Matth­ías Ims­land, aðstoð­ar­maður Eyglóar Harð­ar­dótt­ur, sagð­ist ekki geta gefið Kjarn­anum frek­ari upp­lýs­ingar um málið en þær sem koma fram í þing­mála­skrá rík­is­stjórn­ar­inn­ar. Frum­varpið sé ekki til­bú­ið. Hann sagð­ist ekki geta sagt neitt um breyt­ing­arnar sem verða á starf­semi Íbúða­lána­sjóðs með til­komu þess­arar nýju stofn­un­ar.

Kjarn­inn hefur ekki náð í Her­mann Jón­as­son, for­stjóra Íbúða­lána­sjóðs. Ingi­björg Ólöf Vil­hjálms­dóttir stjórn­ar­for­maður sjóðs­ins benti á ráðu­neytið þegar rætt var við hana í dag. Hún sagð­ist ekki geta tjáð sig um mál­ið.

Lögðu til að Íbúða­lána­sjóði yrði skipt upp



Í til­lögum verk­efn­is­stjórn­ar­innar um fram­tíð­ar­skipan hús­næð­is­mála var lagt til að Íbúða­lána­sjóði yrði „breytt var­an­lega og núver­andi verk­efnum hans skipt upp, ann­ars vegar í nýtt hús­næð­is­lána­fé­lag og hins vegar verði mörgum þeim verk­efnum sem Íbúða­lána­sjóður sinnir í dag, ásamt við­bót­ar­verk­efnum sem lögð eru til af verk­efn­is­stjórn, sinnt sér­stak­lega af opin­berum aðil­u­m“. Hús­næð­is­lána­fé­lagið ætt­i að reka á sömu for­sendum og önnur hús­næð­is­lána­fé­lög, með engri rík­is­á­byrgð á skuld­bind­ingum þess.

Til þess að finna fram­kvæmd hús­næð­is­stefnu stjórn­valda traustan far­veg var lagt til að stofnuð yrði Hús­næð­is­stofn­un, ný stofnun hús­næð­is­mála, auk þess sem verk­efnum yrði fund­inn staður í núver­andi stofna­naum­hverfi.

„Sam­hliða þessum breyt­ingum hætti Íbúða­lána­sjóður lán­veit­ingum sam­kvæmt núver­andi fyr­ir­komu­lagi. Lána­safn Íbúða­lána­sjóðs verði látið renna út og lán­tak­endur sjóðs­ins fái þjón­ustu frá hús­næð­is­lána­fé­lagi í eigu rík­is­sjóðs eða umsýslan verði boðin út.“

Svo virð­ist því sem boðuð Íbúða­stofnun muni hafa svipað hlut­verk og Hús­næð­is­stofn­unin sem lögð var til í til­lög­un­um.

Norð­vest­ur­nefndin vill að stofn­unin verð­i á Sauð­ár­króki



Norð­vest­ur­nefndin svo­kall­aða, sem skil­aði af sér skýrslu til Sig­mundar Dav­íðs Gunn­laugs­sonar for­sæt­is­ráð­herra í des­em­ber síð­ast­liðn­um, lagði til að höf­uð­stöðvar slíks nýs hús­næð­is­lána­fé­lags og nýrrar hús­næð­is­stofn­unar yrði á Sauð­ár­króki. Frétta­blaðið greindi frá þessu í apríl síð­ast­liðnum en þá sagði Eygló Harð­ar­dóttir að ekki væri búið að taka end­an­lega ákvörð­un, enda hefði stofn­unin ekki verið sam­þykkt af Alþingi. „Þingið mun síðan koma að því hvar stað­setn­ing þeirrar stofn­unar á að vera. Fyrst og fremst mun stað­setn­ing stofn­un­ar­innar ráð­ast af því hvar hún getur á sem auð­veldastan hátt sinnt störfum sínum sem best fyrir alla lands­menn,“ sagði hún.

Íbúða­lána­sjóður dregið saman starf­semi



Í síð­ustu viku kynnti Íbúða­lána­sjóður nýtt skipu­lag, þar sem fram­kvæmda­stjórum var fækkað og starf­semin ein­föld­uð. Þetta er gert í kjöl­far þess að vinnu við úrlausn skulda­mála í kjöl­far hruns­ins er að mestu lok­ið. Nýja skipu­lagið er liður í stefnu­mót­un­ar­vinnu stjórnar ÍLS í fram­haldi af skilum á skýrslu verk­efna­stjórnar um fram­tíð­ar­skipan hús­næð­is­mála.

Nú ætlar sjóð­ur­inn að „að­laga rekst­ur­inn frekar að kjarna­starf­semi sjóðs­ins sem er að veita þjón­ustu í almanna­þágu með hús­næð­is­lán­veit­ingum til almenn­ings um allt land,“ sam­kvæmt því sem fram kom í frétta­til­kynn­ingu um málið í síð­ustu viku. Sam­hliða þessu ætlar sjóð­ur­inn að halda áfram að selja eignir og draga úr þeim hluta starf­sem­innar sem tengd­ist úrlausn skulda­mála, enda sé þeirri vinnu að mestu lok­ið.

 

Óvissa um fram­tíð­ar­hlut­verk Íbúða­lána­sjóðs hefur verið mikil frá því að verk­efn­is­stjórnin var skip­uð. Bæði Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­ur­inn og Efna­hags- og fram­fara­stofn­unin hafa lagt til að sjóð­ur­inn verði lagður nið­ur.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None