Ríkisstjórnin fari eins og köttur í kringum heitan grautinn

Þingmaður Pírata gagnrýnir yfirlýsingu Íslands varðandi árásir Ísraelshers á Palestínu og segir að Ísraelsher sé sýndur mikill skilningur – og hann í raun einungis beðinn að hemja sig aðeins.

Andrés Ingi Jónsson, þingmaður Pírata og fyrrverandi þingmaður Vinstri grænna.
Andrés Ingi Jónsson, þingmaður Pírata og fyrrverandi þingmaður Vinstri grænna.
Auglýsing

Andrés Ingi Jóns­son, þing­maður Pírata, segi að ekki dugi að for­dæma ofbeldi almennum orðum en „fara eins og köttur í kringum heitan graut­inn við að gera eitt­hvað í alvöru“. Þetta kom fram í máli þing­manns­ins undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í gær en með þessum orðum gagn­rýnir hann yfir­lýs­ingu Íslands á fundi örygg­is­ráðs­ins í vik­unni varð­andi varð­andi árásir Ísra­els­hers á Palest­ínu.

Hóf hann mál sitt á að segja að ráð­herrar rík­is­stjórn­ar­innar hefðu ítrekað sagt und­an­farna daga að stefna Íslands varð­andi árásir Ísra­els­hers á Palest­ínu væri skýr. Spurði hann í fram­hald­inu hvernig þessi stefna birt­ist í raun og veru og vitn­aði í yfir­lýs­ingu Íslands en í henni segir að Ísland for­dæmi harð­lega allar árásir á almenna borg­ara. Eld­flauga­árásir frá Gaza á almenna borg­ara í Ísr­ael séu aldrei rétt­læt­an­legar og „þótt við við­ur­kennum rétt Ísra­els til sjálfs­varnar þá verðum við að krefj­ast þess að gætt sé ýtr­ustu aðgátar og með­al­hófs í vald­beit­ing­u“.

Þing­mað­ur­inn benti á að þarna væri vissu­lega ofbeldi for­dæmt almennum orð­um. Hins vegar væri Ísra­els­her sýndur mik­ill skiln­ingur og hann í raun ein­ungis beð­inn að hemja sig aðeins.

Auglýsing

Eigi að svelta flótta­fólk til hlýðni

„Hvað sem þetta er þá er þetta ekki skýr stefna um stuðn­ing Íslands við palest­ínsku þjóð­ina. En hvað með hérna heima fyr­ir? Hvað með til dæmis sam­stöðu með þeim ein­stak­lingum sem hafa þurft að flýja átök­in? Und­an­farna daga hafa hellst yfir okkur fréttir af umsækj­endum um alþjóð­lega vernd sem íslensk stjórn­völd ætla að end­ur­senda til Grikk­lands. Í þeim hópi er meðal ann­ars fólk sem fyrst flýði ástandið í Gaza, fékk hæli á Grikk­landi en þurfti aftur að leggja á flótta úr ónýtu vernd­ar­kerfi Grikk­lands,“ sagði hann.

Andrés Ingi sagði jafn­framt að íslensk stjórn­völd ætl­uðu ekki einu sinni að sýna þessu fólki þá virð­ingu að taka mál þeirra til efn­is­legrar með­ferð­ar.

„Hvernig birt­ist stefna Íslands gagn­vart þessu fólki?“ spurði hann enn fremur og bætti því við að nú væru tíu umsækj­endur um alþjóð­lega vernd komnir á göt­una eftir að Útlend­inga­stofnun henti þeim út og svipti þá fram­færslu.

„Skítt með mannúð og mann­rétt­indi. Það á að svelta þetta flótta­fólk til hlýðni þannig að það sé hægt að pína það aftur í óboð­legar aðstæður í gríska hæl­is­kerf­inu. Hér er stefna Íslands: Út á guð og gadd­inn,“ sagði þing­mað­ur­inn.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent