Ríkisstjórnin úthlutar 850 milljónum til ferðamannastaða á vegum ríkisins

14563792783_bbd331cd9e_z.jpg
Auglýsing

„Til að tryggja að íslensk nátt­úra og öflug ferða­þjón­usta geti blómstrað sam­tímis hefur rík­is­stjórnin sam­þykkt að verja í sumar 850 millj­ónum króna til brýnna upp­bygg­ing­ar- og vernd­ar­að­gerða á ferða­manna­stöðum sem eru í eigu eða umsjón rík­is­ins.“ Þetta kemur fram í frétt sem birt­ist á vef atvinnu- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­is­ins nú rétt í þessu.

Þar kemur fram að ráð­ist verði í 104 verk­efni á 51 stað á land­inu, auk þess sem við­bót­arfé verður varið til auk­innar varð­vöslu um land allt. „Mest verður fram­kvæmt í Skafta­felli og á Þing­völl­um, við Geysi, í Dimmu­borg­um, á mið­há­lend­inu, við Gull­foss, Dyr­hóla­ey, Dynj­anda, Stöng í Þjórs­ár­dal og Detti­foss. Verk­efnin eru af ýmsum toga en meg­in­á­hersla er lögð á fram­kvæmdir vegna göngu­stíga, útsýnis­palla, bíla­stæða og sal­ern­is­að­stöð­u,“ segir í frétt ráðu­neyt­is­ins.

Ítar­legt yfir­lit yfir fyr­ir­hug­aðar fram­kvæmdir má nálg­ast hér.

Auglýsing

Fram­kvæmda­á­ætl­un­in, sem gildir fyrir yfir­stand­andi ár, var unnin í sam­starfi við for­sæt­is­ráð­herra, iðn­að­ar- og við­skipta­ráð­herra og umhverf­is- og auð­linda­ráð­herra. „Kallað var eftir til­lögum þeirra stofn­ana sem hafa umsjón með umræddum svæðum og í kjöl­farið var verk­efnum for­gangs­raðað í sam­ræmi við fag­legt mat á því hver þörfin væri. Fjár­magnið mun renna til Fram­kvæmda­sjóðs ferða­manna­staða sem mun ann­ast umsýslu og eft­ir­lit með verk­efna­á­ætl­un­inn­i.“

Hæstu upp­hæð­inni, eða 160 millj­ónum króna, verður varið til upp­bygg­ingar og við­halds í Skafta­felli. Þing­vellir fá hátt í 157 millj­ónir króna, 34 millj­ónir munu renna til verk­efna við Gull­foss, svæðið við Dynj­anda fær úthlutað 34,5 millj­ónum króna, Dyr­hólaey fær 31 millj­ón, Dimmu­borgir 38,5 millj­ónir og Geysir í Hauka­dal fær 50 millj­ónir króna, svo eitt­hvað sé nefnt.

Unnið að heild­ar­stefnu­mótun í mála­flokknum



Þá segir í frétt­inni á vef atvinnu- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­is­ins að ráð­ist verði í frek­ari umbætur á vin­sælum ferða­manna­stöðum í eigu og umsjón rík­is­ins, með það að mark­miði að bæta þar skipu­lag og aðgengi þannig að stað­irnir þoli þann ferða­manna­fjölda sem þangað sækja. Und­ir­bún­ingur að því verk­efni er haf­inn, sam­kvæmt áður­nefndri frétt.

„Einnig er hafin vinna á vegum iðn­að­ar- og við­skipta­ráð­herra við heild­ar­stefnu­mótun um ferða­þjón­ustu í land­inu og er þar horft til fjöl­margra þátta. Einnig verður unn­in lands­á­ætlun um upp­bygg­ingu inn­viða fyrir ferða­menn, í sam­ræmi við frum­varp umhverf­is- og auð­linda­ráð­herra sem nú liggur fyrir Alþingi, en þar er gert ráð fyrir víð­tæku sam­starfi stjórn­valda og hags­muna­að­ila.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None