Risavaxnar fjárfestingar Apple í Danmörku og Írlandi

h_51561512-1.jpg
Auglýsing

Hug­bún­að­ar- og fjar­skipt­ar­is­inn Apple hyggst reisa gagna­ver við bæinn Viborg á Jót­landi í Dan­mörku fyrir rúm­lega 130 millj­arða króna, en frá þessi greindi Apple í frétta­til­kynn­ingu til Kaup­hallar í nótt. Dönsk yfir­völd hafa fagnað ákvörð­un­inni sér­stak­lega, en þetta er stærsta erlenda fjár­fest­ingin í Dan­mörku það sem af er árinu. Apple til­kynnti á sama tíma um fram­kvæmdir við gagna­ver skammt frá bænum Athenry í Írlandi, en þær nema um 125 millj­örðum króna. Í heild er fjár­fest­ing Apple í þessum tveimur gagna­verum um 1,7 millj­arða evra, af því er segir í frétta­til­kynn­ingu Apple.

Tim Cook, for­stjóri App­le, segir í frétta­til­kynn­ingu að for­svars­menn Apple séu stoltir af fjár­fest­ingum í Evr­ópu og að orkan sem muni knýja gagna­verin áfram sé 100 pró­sent vist­væn, komi frá end­ur­nýj­an­legum orku­gjöf­um. Í til­kynn­ingu Apple kemur enn fremur fram að 530 þús­und störf í Evr­ópu megi rekja beint til fram­leiðslu á Öpp-um sem aðgengi­leg eru í App Store, smá­forrita­vef­verslun Apple. Hjá Apple starfa 18.300 starfs­menn í nítján Evr­ópu­lönd­um, þar af hafa tvö þús­und starfs­menn verið ráðnir á und­an­förnum tólf mán­uð­um, að því er fram kemur í frétta­til­kynn­ingu frá Apple.

Áætlað er að gagna­verin tvö verði til­búin árið 2017 og verði 166 þús­und fer­metrar að stærð. Gagna­verin verða notuð til þess að hýsa gagna­geymslur og síma­mið­stöðv­ar. ­Gert er ráð fyrir að upp­bygg­ing gagna­vera verði mikil og hröð næstu miss­eri, ekki síst vegna mik­ils vaxtar sam­fé­lags­miðla sem fólk notar til þess að deila upp­lýs­ing­um, meðal ann­ars myndum og mynd­bönd­um, og til þess að þetta sé hægt þarf hýs­ingin að vera áreið­an­leg.

Auglýsing

Apple hefur átt ótrú­legu gengi að fagna á und­an­förnum miss­erum og er með fulla vasa fjár til fjár­fest­inga. Laust fé í sjóðum fyr­ir­tæk­is­ins nemur 178 millj­örðum Banda­ríkja­dala, eða sem nemur meira en 23 þús­und millj­örðum króna.

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None