Ritstjóri 365 miðla segir óboðlegt að dómari fái ekki að bera vitni í Aurum-málinu

FullSizeRender.2.jpg
Auglýsing

Kristín Þor­steins­dótt­ir, rit­stjóri 365 miðla, segir í leið­ara Frétta­blaðs­ins í dag að nauð­syn­legt sé að upp­lýsa hvort sér­stakur sak­sókn­ari hafi logið þegar hann seg­ist ekki hafa vitað um tengsl Sverris Ólafs­son­ar, eins dóm­ara í Aur­um-­mál­inu svo­kall­aða, og Ólafs Ólafs­son­ar, sem var dæmdur í fjög­urra og hálfs árs fang­elsi í Al Than­i-­mál­inu svo­kall­aða. Hún segir nið­ur­stöðu Hæsta­réttar þess efnis að hvorki Sverrir né Guð­jón St. Mart­eins­son, sem var dóms­for­mað­ur í Aur­um-­mál­inu í hér­aði, fái að bera vitni þegar ómerk­ing­ar­krafa sér­staks sak­sókn­ara á sýknu í mál­inu verður tekin fyrir í mál­inu 13. apríl næst­kom­andi vera óboð­lega. Hún megi „ekki vera enda­hnútur þessa máls. Nú taka fjöl­miðlar við,“ segir Krist­ín.

Einn sak­born­inga í Aur­um-­mál­inu er Jón Ásgeir Jóhann­es­son, eig­in­maður Ingi­bjargar Pálma­dóttur stærsta eig­anda 365 miðla. Allir sak­born­ing­arnir voru sýkn­aðir í fyrra en rík­is­sak­sókn­ari vill ómerk­ingu dóms­ins vegna van­hæfis Sverris sökum vensla hans við Ólaf. Ef Hæsti­réttur fellst á þau rök verður réttað aftur yfir sak­born­ingum máls­ins fyrir hér­aðs­dómi.

Dóms­for­maður sendi aðsenda grein til Frétta­blaðs­ins



Fjöl­skip­aður hér­aðs­dómur sýkn­aði í fyrra sumar Jón Ásgeir, Lárus Weld­ing, Magnús Arnar Arn­gríms­son og Bjarna Jóhann­es­son í Aur­um-­mál­inu. Þeir voru ákærðir fyrir umboðs­svik og hlut­deild í þeim í tengslum við sex millj­arða króna lán­veit­ingu Glitnis til félags sem hét FS 38 ehf., og var í eigu Pálma Har­alds­son­ar. Lánið var veitt til kaupa á Aurum Hold­ings. Einn dóm­ar­anna þriggja, Arn­grímur Ísberg, skil­aði sér­at­kvæði og taldi að sak­fella ætti Lárus, Magnús Arnar og Jón Ásgeir. Hinir tveir dóm­ar­arn­ir, Guð­jón St. og Sverr­ir, vildu hins vegar sýkna alla sak­born­inga.

Í leið­ara Frétta­blaðs­ins í dag, sem ber nafnið „satt eða ósatt?“, segir Kristín frá því að blað­inu hafi borist aðsend grein frá Guð­jóni St. þann 10. júní í fyrra. Þar fjall­aði hann um meint óhæfi Sverris Ólafs­son­ar. Guð­jón hætti hins vegar við að birta grein­ina nokkru síð­ar.

Auglýsing

Kristín segir að á meðal máls­gagna í ómerk­ing­ar­mál­inu fyrir Hæsta­rétti sé tölvu­póstur frá Guð­jóni St. og blaða­greinin sem hann ætl­aði eitt sitt að birta. „Í tölvu­póst­inum segir að Guð­jón hafi hætt við birt­ingu grein­ar­innar eftir að hafa rætt efni hennar við rík­is­sak­sókn­ara og sér­stakan sak­sókn­ara. Ástæðan er að á þeim tíma sá hann ekki né reikn­aði með að krafa ákæru­valds­ins fyrir Hæsta­rétti yrði ómerk­ing­ar­krafa. Í tölvu­póst­inum segir síð­an: „Ég hefði hins vegar birt grein­ina hefði svo ver­ið."“

Kristín segir málið merki­legt vegna þess að í tölvu­póst­inum og grein­inni eftir Guð­jón St. er full­yrt að Ólafur Þór Hauks­son, sér­stakur sak­sókn­ari, hafi hringt í Guð­jón dag­inn eftir að til­kynnt hafi verið um að Sverrir væri með­dóm­ari í mál­inu. Í því sím­tali hafi Ólafur Þór sjálfur greint frá tengslum Sverris og Ólafs og ekki gert athug­semd við hæfi Sverr­is.

Jón Ásgeir Jóhannesson, sem var árum saman aðaleigandi 365 miðla, er einn sakborninga í Aurum-málinu. Eiginkona hans, Ingibjörg Pálmadóttir, er í dag stærsti eigandi 365 miðla. Jón Ásgeir Jóhann­es­son, sem var árum saman aðal­eig­andi 365 miðla, er einn sak­born­inga í Aur­um-­mál­inu. Eig­in­kona hans, Ingi­björg Pálma­dótt­ir, er í dag stærsti eig­andi 365 miðla.

Ólafur segir þetta vera rang­minni hjá dóm­ar­anum



Ólafur sagði í sam­tali við Frétta­blaðið þann 19. mars síð­ast­lið­inn að þetta væri rang­minni hjá dóm­ar­anum. Hann hafi sagt Guð­jóni frá því að Sverrir hefði unnið fyrir skila­nefnd Glitn­is, sem væri kær­andi í mál­inu og væri með bóta­kröfu vegna þess.

Í leið­ara Krist­ínar seg­ir: „Kunn­ugir segja það eins­dæmi að dóm­ari hafi haldið því fram opin­ber­lega að sak­sókn­ari hafi logið um atriði er varðar með­ferð­ina. Hæsti­réttur hefur hins vegar kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að ekki séu ástæður til að leiða frekar í ljós hver segi satt og hver ósatt. Varla getur það verið boð­leg nið­ur­staða út frá sann­girn­is- og réttar­ör­ygg­is­sjón­ar­mið­um?

Sér­stakur sak­sókn­ari gegnir mik­il­vægu emb­ætti. Hann hefur örlög fjölda manna í höndum sér. Hvaða skoðun sem fólk hefur á per­sónum og leik­endum getum við von­andi öll sam­mælst um að til­gang­ur­inn helgar ekki alltaf með­alið þegar örlög fólks eru í húfi.

Það er nauð­syn­legt að upp­lýsa hvort sér­stakur sak­sókn­ari laug þegar hann sagð­ist ekki hafa vitað um tengsl Sverris og Ólafs Ólafs­sona. Nið­ur­staða Hæsta­réttar er óboð­leg, og má ekki verða enda­hnútur þessa máls. Nú taka fjöl­miðlar við.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None