Ritstjóri DV: Sérstakt að fylgjast með umræðum um rannsókn á leka til DV á Alþingi

15003216880-ce1a14ed47-z.jpg
Auglýsing

Egg­ert Skúla­son, annar rit­stjóra DV, spyr í stöðu­upp­færslu á Face­book hvort umfjöllun DV um losun hafta sé leki eða góð blaða­mennska? Þar segir hann það vera "of­ur­lítið sér­stakt að fylgj­ast með umræðu á Alþingi þar sem for­síðu­frétt DV frá því á föstu­dag var rauði þráð­ur­inn í umræð­unni. Nú vilja ein­staka þing­menn láta rann­saka þennan leka eins og þeir kalla frétt DV af mál­inu. Frétt DV um losun hafta er bara enn eitt púslið í viða­mik­illi umfjöllun okkar um gjald­eyr­is­höft­in. Þar hefur DV verið í far­ar­brodd­i."

Til­efni skrifa Egg­erts eru ummæli Stein­gríms J. Sig­fús­son­ar, þing­manns Vinstri grænna, og Öss­urar Skarp­héð­ins­son­ar, þing­manns Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, um mein­tan leka úr innsta hring stjórn­valda um áætlun þeirra um losun hafta til DV, en blaðið birti frétt á föstu­dag þar sem meg­in­at­riði áætl­un­ar­innar voru sögð koma fram. Full­trúar Seðla­banka Íslands, sem mættu á fund efna­hags- og við­skipta­nefndar í gær vegna breyt­ingu á lögum um gjald­eyr­is­mál, sögðu að laga­breyt­ingin yrði að eiga sér stað þá vegna lek­ans til DV. Til­gangur hennar var að stoppa upp í göt á höft­unum sem ótt­ast var að slitabú myndu nýta sér.

Össur sagði í stöðu­upp­færslu á Face­book í nótt að trún­að­ar­upp­lýs­ingum um afnám hafta hafi verið lekið í DV af ein­hverjum úr innsta hring rík­is­stjórn­ar­innar og ráð­gjafa henn­ar. Það hafi verið ástæða þess að Seðla­bank­inn óskaði eftir að Alþingi kæmi saman til skyndi­fundar í gær­kvöldi, á sunnu­degi. „Innsti hring­ur­inn míg­lekur raun­ar, því við­skipta­rit­stjóri DV hefur alla­jafna meiri upp­lýs­ingar en almennir ráð­herrar um stöð­una – og miklu meiri en nokkur þing­mað­ur­.­Gera menn sér grein fyrir hvað þetta þýð­ir? – Í miðju fram­kvæmda­valds­ins er trún­aður brot­inn. Upp­lýs­ing­um, sem geta skaðað stöðu Íslands gagn­vart kröfu­höfum er lek­ið. Trún­að­ar­brotið er það alvar­legt að það þarf skyndi­fund Alþingis til að koma í veg fyrir skaða.“

Auglýsing

Við­skipta­rit­stjóri DV er Hörður Ægis­son sem hefur skrifað fjöl­margar fréttir und­an­farin miss­eri sem byggja á trún­að­ar­upp­lýs­ingum úr hafta­los­un­ar­starf­inu.

Stein­grímur J. Sig­fús­son, þing­maður Vinstri grænna, sagði í þing­ræðu í gær að full­trúar Seðla­bank­ans hafi til­greint það sér­stak­lega á fundi efna­hags- og við­skipta­nefndar að ástæða þess að verið væri að gera breyt­ingar á gjald­eyr­is­lögum með afbrigðum á sunnu­degi væri leki á upp­lýs­ingum um hafta­á­ætlun stjórn­valda, sem hafi birst sem frétt í DV á föstu­dag. Lekin hafi leitt til skjálfta í kerf­inu og Seðla­bank­inn hafi fundið aukin þrýst­ing um að hjá­leiðir til að reyna að sleppa út með fjár­muni áður en áætl­un­inni yrði hrint í fram­kvæmd væru í und­ir­bún­ingi. „Þarna á sér stað hættu­leg­ur, raun­veru­legur og skað­legur leki,“ sagði Stein­grím­ur.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None