Rússabann hefur lítil áhrif haft á gengi HB Granda í Kauphöllinni

Grandi_fish_processing_conveyor_belt3_2011.jpg
Auglýsing

Inn­flutn­ings­bann Rúss­lands á mat­væli frá Íslandi hefur lítil áhrif haft á gengi hluta­bréfa í HB Granda í Kaup­höll­inn­i. ­Fé­lagið lækk­aði um 2,7 pró­sent í við­skiptum á fimmtu­dag í síð­ustu viku, sama dag og Rússar til­kynntu um þá ákvörðun að bæta Íslandi og fleiri löndum við inn­flutn­ings­bann­lista sinn. Þann sama dag sendi HB Grandi frá sér til­kynn­ingu til Kaup­hall­ar­innar og greindi frá því að sautján pró­sent af tekjum félags­ins 2014 hafi komið til vegna við­skipta við Rúss­land.

Á föstu­dag, dag­inn eftir að greint var frá inn­flutn­ings­bann­inu, hækk­aði gengi HB Granda um ríf­lega þrjú pró­sent í sam­tals nærri 400 millj­óna króna við­skipt­um. Við lok við­skipta­dags stóð gengi bréf­anna í 39,9 krónum á hlut. Við lokun mark­aða í dag, mið­viku­dag, er gengi bréf­anna um 39,35 krónur á hlut en engin við­skipti voru gerð með bréf í félag­inu í dag.

Mark­aðsvirði HB Granda, eins stærsta sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækis á Íslandi og það eina sem skráð er á mark­aði, hefur þannig lítið breyst, þrátt fyrir inn­flutn­ings­bann Rússa og mögu­legra af­leið­inga þess á tekjur félags­ins. HB Grand­i ­á­ætlar að tekjur muni lækka um tíu til fimmtán millj­ónir evra á árs­grund­velli vegna banns­ins, en tekið er fram í til­kynn­ing­unni að erfitt sé að meta nákvæm­lega hver fjár­hags­leg áhrif verða.

Auglýsing

Sala HB Granda á fyrsta árs­fjórð­ungi 2015 nam um 53,3 millj­ónum evra og jókst frá því að vera tæp­lega 42 millj­ónir evra á sama árs­fjórð­ungi 2014. Vergur hagn­aður ríf­lega tvö­fald­að­ist milli þess­ara tíma­bila, hann var 24,8 millj­ónir evra á fyrsta árs­fjórð­ungi 2015 en 11 millj­ónir evra á fyrsta árs­fjórð­ungi 2014. Eignir HB Granda í lok mars 2015 námu um 393 millj­ónum evra, jafn­virði um 57 millj­arða króna. Eigið fé félags­ins var 233 millj­ónir evra, jafn­virði um 34 millj­arða króna. Óhætt er að segja að ­rekstur og efna­hagur félags­ins standi vel.

Breyti ekki útflutn­ings­horfum



Ljóst er að inn­flutn­ings­bann Rúss­lands hefur veru­leg áhrif á útflutn­ing sjáv­ar­af­urða, helst upp­sjáv­ar­fisks, og hafa Sam­tök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi sagt að við venju­legar aðstæður yrði útflutn­ings­verð­mæti sjáv­ar­af­urða til Rúss­lands í ár um 37 millj­arðar króna. Sam­kvæmt tölum hag­stof­unnar nam útflutn­ingur til Rúss­lands um 29 millj­örðum króna á síð­asta ári, þar af var um 24 millj­arðar sjáv­ar­af­urð­ir, og hefur útflutn­ings­verð­mætið vaxið ört á síð­ustu árum.

Fisk­út­flytj­endur leita nú nýrra mark­aða fyrir afurðir sín­ar, helst mak­ríl, og búist er við að lægra verð fáist fyrir afurð­irnar en hefði feng­ist í Rúss­landi.

Seðla­bank­inn birti í dag upp­færða efna­hags­spá fyrir árin 2015 til 2017. Í nýjasta hefti Pen­inga­mála, árs­fjórð­ungs­legu riti Seðla­bank­ans, er gert ráð fyrir að vöru­út­flutn­ingur frá Íslandi hald­ist nær óbreyttur í ár frá því sem bank­inn spáði í maí síð­ast­liðn­um, þrátt fyrir inn­flutn­ings­bann Rússa. Í spá bank­ans er gert ráð fyrir að frystur upp­sjáv­ar­fiskur sem hefði farið til Rúss­lands fari í bræðslu. Við það lækki útflutn­ings­verð­mæti hans um átta til tíu millj­arða króna. Á móti komi að fram­leiðslu- og útgerð­ar­kostn­aður mjöls og lýsis sé lægri en vegna fryst­ing­ar.

„Lík­legt er að áhrif við­skipta­banns­ins verði minni en þau hefðu verið ef við­skipta­bannið hefði verið sett á í fyrra vegna erf­ið­ara efna­hags­á­stands í Rúss­landi í ár og hefur útflutn­ingur til Rúss­lands það sem af er ári verið tölu­vert minni en á síð­asta ári. Einnig er óvíst hvernig til tekst við að afla nýrra mark­aða fyrir frystar afurðir upp­sjáv­ar­fiska,“ segir í Pen­inga­málum sem kom út í dag.

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None