Rússar vilja að Sigurður Ingi biðjist afsökunar á ummælum um „illmennin í Kreml“

Formaður Framsóknarflokksins ræddi innrás Rússa í Úkraínu í ræðu sem hann flutti um helgina. Þar sagðist hann vona að rússnesku þjóðinni bæri „gæfa til að losa sig við illmennin í Kreml“. Rússneska sendiráðið vill formlega afsökunarbeiðni.

Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins, í pontu á flokksþingi flokksins um helgina.
Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins, í pontu á flokksþingi flokksins um helgina.
Auglýsing

Rúss­neska sendi­ráðið á Íslandi birti í gær stöðu­upp­færslu á Face­book þar sem það mælti sterk­lega með að Sig­urður Ingi Jóhanns­son, inn­við­a­ráð­herra og for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, myndi biðj­ast afsök­unar á ummælum sínum sem hann lét falla í ræðu á flokks­þingi Fram­sókn­ar­flokks­ins um helg­ina.

Þar ræddi hann inn­rás Rússa í Úkra­ínu og sagði meðal ann­ars: „Von­andi verður stríðið ekki of langt, það er búið að vera of langt nú þeg­ar. Von­andi verður það ekki blóð­ugra en enn er orðið og von­andi tekst að stöðva þessi ill­virki. Von­andi ber rúss­nesku þjóð­inni gæfa til að losa sig við ill­mennin í Kreml sem eru yfir stjórn þessa merki­lega lands, Rúss­lands.“

Auglýsing
Í stöðu­upp­færsl­unni sagð­ist sendi­ráðið hafa tekið eftir yfir­lýs­ingum Sig­urðar Inga og að það teldi orð hans vera gróf afskipti af inn­an­rík­is­málum Rúss­lands og beint ákall full­trúa íslenskra stjórn­valda um að skipta um for­ystu í Rúss­landi. „Við viljum minna herra Jóhanns­son á að það sem hann kallar „ill­mennin í Kreml" eru yfir­völd sem eru lög­lega kjörin af rúss­nesku þjóð­inni, studd af yfir­gnæf­andi meiri­hluta rúss­neskra borg­ara. Og það er ekki íslenskra ráð­herra að ákveða hvenær og hvernig þessum emb­ætt­is­mönnum er skipt út. Í því sam­bandi mælum við ein­dregið með því að Sig­urður Ingi Jóhanns­son ráð­herra biðj­ist form­lega afsök­unar á orðum sín­um.“

🎙#Comment by the Russian Emb­assy in Iceland 💬We noted the statem­ent of March 20 made by the Mini­ster of Infrastruct­ure...

Posted by Russian Emb­assy in Reykja­vik on Monday, March 21, 2022

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent