Rússneskar sprengjuflugvélar við Íslandsstrendur

Pilote-1-042-Large.jpg
Auglýsing

Tvær lang­drægar rúss­neskar sprengju­flug­vélar af gerð­inni Tupo­lev Tu-95, en þessi teg­und er oft­ast nefnd „Björn­inn“, flugu inn í loft­rým­is­eft­ir­lits­svæði NATO í nágrenni Íslands upp úr hádegi í gær. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Lands­helg­is­gæsl­unni. Rúss­neskar flug­vélar hafa ekki flogið jafn nálægt Íslandi síðan að Banda­ríkja­her fór héðan árið 2006. Sprengju­flug­vél­arnar flugu tví­vegis fram­hjá land­inu og voru í 26 sjó­mílna fjar­lægð frá Stokk­nesi þegar næst var.

BBC greindi frá því í morgun að tveir „birn­ir“ hefðu sést undan ströndum Cornwall í gær, en breska varn­ar­mála­ráðu­neytið greindi frá þessu. Sama dag var­aði Mich­ael Fallon, varn­ar­mála­ráð­herra lands­ins, við hætt­unni af Vla­dimír Pútín Rúss­lands­for­seta. Hann sagði Eystra­salts­ríkin í hættu og að Atl­ants­hafs­banda­lagið þyrfti að vera undir það búið að bregð­ast við.

Í til­kynn­ing­unni frá Land­helg­is­gæsl­unni kemur fram að fylgst hafi verið vel með vél­unum "í loft­varna­eft­ir­lits­kerfi NATO hér á landi sem vinnur úr gögnum frá rat­sjár­kerfi sem Land­helg­is­gæslan rekur og stað­sett er í hverjum lands­fjórð­ungi. Vél­arnar komu inn í loft­rým­is­eft­ir­lits­svæðið austur af Íslandi og héldu í suð­ur­átt að Bret­landi og Írlandi. Þar voru þær auð­kenndar af breskum orr­ustu­þotum en stjórn­stöð Land­helg­is­gæsl­unnar á Kefla­vík­ur­flug­velli (NATO Control and Report­ing Center) hafði eft­ir­lit með flug­inu þann tíma sem vél­arnar voru hér við land og tryggði flug­ör­yggi í sam­vinnu við aðgerða­stjórn­stöð NATO (Combined Air Oper­ation Center) í Uedem í Þýska­landi og flug­leið­sögu Isa­via.

Auglýsing

„Birn­irn­ir“ tveir sneru við síð­degis norður af Bret­landi og flugu sem leið lá aftur að Íslandi, með­fram suð­ur­strönd Íslands og austur með land­inu þar sem þær tóku beygju upp með Aust­ur­landi og flugu loks aftur í norður í átt að Rúss­land­i."

Georg Lár­us­son, for­stjóri Land­helg­is­gæsl­unn­ar, segir gæsl­una fylgj­ast vel með flugi Rússa inn á loft­varna­svæði Íslands og að rúss­neskar sprengju­flug­vélar hafa aldrei flogið jafn nærri landi og nú.

Eft­ir­lit Land­helg­is­gæsl­unnar með flugi rúss­nesku sprengju­flug­vél­anna er hluti af fram­kvæmd loft­rým­is­eft­ir­lits og loft­rým­is­gæslu Atl­ants­hafs­banda­lags­ins sem Ísland er aðili að og á sér stað allt árið um kring. Starfs­menn Land­helg­is­gæsl­unnar starfa í stjórn­stöð­inni í Kefla­vík og sinna eft­ir­lit­inu fyrir hönd Íslands.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None