RÚV hagnast um sautján milljónir - Launakostnaður hækkar um 140 milljónir

R--v-42.jpg
Auglýsing

Sautján millj­­ón króna hagn­aður varð af rekstri Rík­­is­út­­varps­ins fyrstu sex mán­uði árs­ins 2015, en tap þess nam 36 millj­­ón­um króna á fyrstu tíu mán­uðum yf­ir­stand­andi rekstr­­ar­árs, það er frá 1. sept­­em­ber 2014 til 30. júní 2015, á meðan tap síð­asta rekstr­­ar­árs, 2013-2014, var 271 millj­­ón króna eft­ir skatta.

Þetta kem­ur fram í til­­kynn­ingu frá Rík­­is­út­­varp­in­u. „Helstu ástæður þess að rekst­­ur­inn batn­ar eru að tekj­ur hækka á milli ára og rekstr­­ar­­kostn­aður fer lækk­­andi vegna ým­issa hag­ræð­ing­­ar­að­gerða sem gripið hef­ur verið til í starf­­semi fé­lags­ins. Þetta ger­ist þrátt fyr­ir að kostn­aður við dreifi­­kerfi hafi hækkað veru­­lega en sá kostn­aður bygg­ist á samn­ingi um sta­f­ræna dreif­ingu sem gerður var vorið 2013. Af­­skrift­ir rekstr­­ar­fjár­muna lækka einnig milli ára en fjár­­­magns­­kostn­aður er enn hár vegna mik­ill­ar skuld­­setn­ing­­ar. Kostn­aður við sam­eig­in­­leg­an rekst­ur og yf­ir­­stjórn lækk­­ar milli tíma­bila. Stöðu­gild­um fækk­­­ar, þau voru að með­al­tali 257 á tíma­bil­inu en þeim hef­ur fækkað á und­an­­förn­um árum, voru 297 árið 2013 og 324 árið 2008,“ seg­ir enn frem­ur.

Tak­mark­anir leiða til lækkun aug­lýs­inga­tekna



Í til­kynn­ing­unni segir að nokkur óvissa sé um rekstra­horfur á næst­unni, og þá muni hækkun á launa og launga­tengdra gjalda nema um 140 millj­ónum á seinni hluta árs­ins. „Ljóst er að aug­lýs­inga­tekjur Rík­is­út­varps­ins muni, vegna tak­mark­ana í lögum og þró­unar á mark­aði, halda áfram að drag­ast saman að raun­gildi. Þá liggur fyrir að nýsam­þykktir kjara­samn­ingar á almennum mark­aði munu hækka rekstr­ar­kostnað umtals­vert. Gert er ráð fyrir að laun og launa­tengd gjöld muni vegna þessa hækka um tæp­lega 140 m.kr. á seinni hluta árs­ins 2015 og aftur um 180 m.kr. á árinu 2016. Áhrif auk­innar verð­bólgu verða einnig mikil eða um 70–90 m.kr. á ári í hækkun rekstr­ar­kostn­aðar miðað við verð­bólgu­spár. Stjórn Rík­is­út­varps­ins hefur því vakið athygli á því að til að ekki þurfi að grípa til enn frek­ari nið­ur­skurð­ar­að­gerða og þjón­ustu­skerð­ingar megi útvarps­gjald ekki lækka frekar en orðið er, heldur verði að taka mið af verð­lags­þró­un,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None