RÚV selur byggingarrétt á lóð sinni fyrir 1,5 milljarða króna

Ark--ing_vinningstillaga3.jpg
Auglýsing

Rík­is­út­varpið (RÚV) hefur selt bygg­ing­ar­rét á lóð sinni við Efsta­leiti 1. Áætl­aður sölu­hagn­aður er 1,5 millj­arður króna. Kaup­andi er einka­hluta­fé­lag með ábyrgð Skugga­byggðar ehf. Ávinn­ingur RÚV af söl­unni verður not­aður til að greiða niður skuld­ir. Þrátt fyrir söl­una og ráð­stöf­unar sölu­and­virð­is­ins til skulda­niðu­greiðslna veður RÚV hins vegar enn yfir­skuld­sett. Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu frá RÚV.

Í til­kynn­ing­unni segir að til standi að byggja upp bland­aða byggð á svæð­inu. "Kaup­endur skil­uðu inn til­boði sem stjórn RÚV mat það hag­stæð­asta í sölu­ferl­inu. Í kjöl­far þess voru hafnar við­ræður sem lýkur nú með sam­þykkt stjórnar RÚV á samn­ingnum og und­ir­ritun hans. Kaup­samn­ing­ur­inn um bygg­ing­ar­rétt­inn er gerður með fyr­ir­vara um frá­gang fjár­mögn­unar kaupanna, nán­ari útfærslu á til­teknum þáttum í skipu­lagi svæð­is­ins og að ráð­stöf­un­ar­heim­ild Rík­is­út­varps­ins yfir lóð­ar­rétt­ind­unum verði stað­fest með ákvæði í fjár­auka­lögum fyrir árið 2015."

Ávinn­ingur söl­unnar verður nýttur til að greiða niður skuldir RÚV. Í til­kynn­ing­unni segir að á síð­ast­liðnu ári hafi staðið yfir fjár­hags­leg end­ur­skipu­lagn­ing á starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins og að skulda­nið­ur­greiðslan sé liður í henni. "Fyrr í haust var birt árs­hluta­upp­gjör sem stað­festi jákvæðan við­snún­ing í rekstri félags­ins og að hag­ræð­ing­ar­að­gerðir síð­asta árs hafa skilað sér. Afkoma síð­ustu tólf mán­aða sam­an­borið við afkomu síð­asta rekstr­ar­árs­fé­lags­ins frá 1. sept­em­ber 2013 til 31. ágúst 2014 stað­festir enn frekar þann við­snún­ing sem orðið hef­ur. Á fram­an­greindu tíma­bili skil­aði félagið hagn­aði upp á 30,5 millj­ónir króna en tap síð­asta rekstr­ar­árs þá á undan (2013-2014) var 271 milljón eftir skatta. Rekstr­ar­kostn­aður lækkar um 4,3% að raun­virði milli rekstr­ar­ára þrátt fyrir að kostn­aður við dreif­ingu hækki á grund­velli samn­ings sem gerður var að vori 2013. Þrátt fyrir þennan góða rekstrarár­angur er ljóst að félagið er yfir­skuld­sett, aðal­lega vegna upp­gjörs gam­alla líf­eyr­is­sjóðs­skuld­bind­inga. Í lok síð­asta rekstr­ar­árs var eig­in­fjár­hlut­fall félags­ins jafn­framt komið niður í 5,5% og geta til að standa við greiðslur afborg­ana og vaxta af lánum var ekki til stað­ar."

Auglýsing

Þrátt fyrir þennan við­snún­ing í rekstri og áform um að nota sölu­and­virði bygg­ing­ar­réttar á lóð RÚV til að greiða niður skuldir er fyr­ir­tækið hins vega enn yfir­skuld­sett. Í til­kynn­ing­unni segir að þar beri hæst að nefna skulda­bréf í eigu Líf­eyr­is­sjóðs starfs­manna rík­is­ins (LSR) sem sé til­komið vegna upp­gjörs gam­alla líf­eyr­is­skuld­bind­inga RÚV. Þeg­ar­hefur náðst sam­komu­lag við LSR um að fresta greiðslum þriggja gjald­daga bréfs­ins til 1. apríl 2016. "Nú­ver­andi stjórn RÚV, eins og margar fyrri stjórnir RÚV, hefur vakið athygli eig­and­ans, rík­is­ins, á yfir­skuld­setn­ingu félags­ins og óskað eftir því að kann­aðar verði leiðir til að bæta efna­hag félags­ins."

Kjarn­inn fjall­aði ítar­lega um fjár­mál RÚV í frétta­skýr­ingu í byrjun árs 2015. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None