SA: Tilboð upp á 23,5 prósent hækkun dagvinnulauna

Þorsteinn-víglundsson-nytt.jpg
Auglýsing

Í yfir­lýs­ingu frá Sam­tök atvinnu­lífs­ins (SA) kemur fram að til­boð frá sam­tök­unum til SGS feli í sér 23,5 pró­sent launa­hækkun dag­vinnu­launa á þriggja ára samn­ings­tíma. Er sér­stak­lega tekið fram að sam­tökin tjái sig yfir­leitt ekki um til­voð í yfir­stand­andi við­ræð­um, vegna „þess trún­aðar sem  um slíkar við­ræður gild­ir“. Þá er tekið fram að for­maður SGS hafi í við­tali við frétta­stofu 365 „af­bakað gróf­lega“ til­boð SA.

„Í  við­tali  við  frétta­stofu  365  í  dag  er  haft  eftir  for­manni  Starfs­greina­sam­bands­ins, Birni Snæ­björns­syni,  að  Sam­tök  at­vinnu­lífs­ins hafi  boðið  Starfs­greina­sam­band­inu  upp  á  28  þús­und  króna  launa­hækkun  í   þriggja  ára  kjara­samn­ingi. Sam­tök atvinnu­lífs­ins  tjá  sig  al­mennt  ekki  um  þau  til­boð  sem  lögð   hafa  verið  fyrir  full­trúa  verka­lýðs­fé­laga  á sátta­fundum  hjá  rík­is­sátta­semj­ara  vegna  þess  trún­aðar  sem  um  slíkar  við­ræður  gild­ir,“ segir í til­kynn­ingu SA.

Að sögn SA er inni­falið  í til­boð­inu 8% sér­stök  hækkun  dag­vinnu­launa,  sam­hliða  auknum  sveigj­an­leika vinnu­tíma og lækkun  yf­ir­vinnu­á­lags. „Með þeim  hætti  yrðu  grunn­laun  hækkuð  sér­stak­lega  og vægi  dag­vinnu­launa í heild­ar­tekjum  myndi  aukast.  Launa­kerfin  yrðu  þannig  færð  nær  því  sem  tíðkast  í  ná­granna­löndum  okk­ar,   þar  sem  vinnu­tíma­reglur  eru  mun  sveigj­an­legri  en  hér  tíðkast  og  yf­ir­vinnu­greiðslur  eru   hverf­andi. Sam­kvæmt til­boði  SA  hækk­aði  lægsti  taxti  að­ild­ar­fé­laga  SGS  um  47  þús.kr.  á  mán­uði  á   þremur  árum,“ segir  í til­kynn­ingu SA.

Auglýsing

Eins og fram hefur kom­ið, bæði að hálfu for­svars­manna Sam­taka atvinnu­lífs­ins og verka­lýðs­hreyf­ing­ar­inn­ar, eru kjara­við­ræður í algjörum hnút og sátt ekki í sjón­máli. Verka­falls­að­gerðir á almennum vinnu­mark­aði eru þegar hafn­ar, og eins og mál standa nú, gætu víð­tækar verk­falls­að­gerðir haf­ist innan skamms ef ekki tekst að semja um kaup og kjör. Sam­tals gætu verk­falls­að­gerð­irnar náð til 140 þús­und starfs­manna, ef ekki tekst að semja í bráð.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None