Sakar fyrrum stjórnendur Íbúðalánasjóðs um lögbrot sem átti að kæra

10054155214_97a78eb003_b.jpg
Auglýsing

Vil­hjálmur Bjarna­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og við­skipta­fræð­ing­ur, skrifar harð­orða grein í Morg­un­blaðið í dag og sakar stjórn­endur Íbúða­lána­sjóðs um mark­aðs­mis­notkun með því að hafa haldið uppi falskri eft­ir­spurn eftir lánsfé fyrir hrun. Hann telur að Fjár­mála­eft­ir­litið hefði átt að kæra stjórn­endur sjóðs­ins árið 2005, þegar sjóð­ur­inn sótti sér meira fjár­magn til að lána út. Brota­þolar eru almenn­ingur í land­inu, segir Vil­hjálm­ur.

Í grein­inn­i vísar Vil­hjálmur í frétt Kjarn­ans frá 3. ágúst síð­ast­liðnum um breska banka­mann­inn Tom Hayes sem dæmdur var í 14 ára fang­elis í Bret­landi fyrir að hafa áhrif á vaxta­kjör á mark­aði með milli­banka­vexti. Málið er afar umfangs­mik­ið, varðar stærstu banka heims og hafa nokkrir þeirra greitt svimin­háar sekt­ir.

Vil­hjálmur rifjar upp við­brögð stjórn­enda Íbúða­lána­sjóðs við spurn­ingum Fjár­mála­eft­ir­lits­ins árið 2005, þegar sjóð­ur­inn sótti sér meira fjár­magn þrátt fyrir góða stöðu.

Auglýsing

„Þegar bankar á Íslandi töldu sig þess megn­uga að veita hús­næð­is­lán til langs tíma töldu stjórn­endur Íbúða­lána­sjóðs til­veru sinni og starf­semi sjóðs­ins ógn­að. Íbúða­lána­sjóður var með ofgnótt fjár í fórum sínum en taldi ástæðu til að sækja meira lánsfé á mark­að, til að vera með enn meiri ofgnótt fjár. Þegar stjórn­endur Íbúða­lána­sjóðs eru spurðir af Fjár­mála­eft­ir­liti, í maí 2005, hvers vegna sótt hafi verið eftir meira lánsfé í stöðu ofgnóttar er svarið eft­ir­far­andi:



„Út­gáfa fjár­mögn­un­ar­bréfa sjóðs­ins hefur um ára­bil verið ráð­andi um lang­tíma­vaxta­stig í land­inu og ríkið stendur ábyrgt fyrir öllum skuld­bind­ingum hans. Við slíkar aðstæður var alger­lega frá­leitt fyrir Íbúða­lána­sjóð að hætta útgáfu íbúða­bréfa. Slíkt hefði leitt til hruns vaxta­mynd­unar á mark­aði og gert sjóð­inn ósam­keppn­is­hæfan um ný útlán. Láns­hæf­is­mat sjóðs­ins hefði hrunið í kjöl­farið og hags­munum rík­is­sjóðs verið teflt í voða. Þetta hefði verið skýrt brot á laga­skyldum stjórnar og fram­kvæmda­stjóra og óhugs­andi út frá því hlut­verki sem sjóðnum er að lögum falið.““



Vil­hjálmur segir þetta mis­skiln­ing um skyldur Íbúða­lána­sjóðs. „Íbúða­la­ána­sjóði er að lögum falið það eitt hlut­verk að veita ein­stak­lingum og félaga­sam­tökum lán til íbúða­kaupa eða nýbygg­inga. Það er ekki skýrt nánar hvernig „Láns­hæf­is­mat sjóðs­ins hefði hrun­ið“. Það sem stendur þó upp úr í svari stjórn­enda sjóðs­ins er játn­ing um að Íbúða­lána­sjóður og stjórn­endur hans hafi í raun möndlað með vexti á rík­is­skuld­um, haldið uppi vöxtum þegar eft­ir­spurn eftir lánsfé til starf­semi sjóðs­ins var ekki fyrir hendi. Ofgnótt láns­fjár sjóðs­ins var síðan notuð til að láta banka og spari­sjóði lána til íbúða­kaupa, í umboði Íbúða­lána­sjóðs, langt umfram fjár­hæða­mörk í útlánum sjóðs­ins. Með því var verið að gera Íbúða­lána­sjóð að heild­sölu­banka á íbúða­lána­mark­aði, án laga­heim­ild­ar. Þessi lán ollu hringekju upp­greiðslu sem enn juku á vanda Íbúða­lána­sjóðs.“

Átti að kæra

„Við mót­töku þessa bréfs Íbúða­lána­sjóðs til Fjár­mála­eft­ir­lits­ins áttu stjórn­endur FME að kæra stjórn­endur ÍLS til efna­hags­brota­deildar rík­is­lög­reglu­stjóra fyrir mark­aðs­mis­notkun í skulda­bréfa­við­skipt­um, þ.e. að halda uppi falskri eft­ir­spurn eftir láns­fé. Brota­þolar í þessu máli er allur almenn­ingur í þessu landi sem þarf að greiða hærri vexti en ella af lánum sín­um,“ segir í grein­inni.



„Íbúða­lána­sjóður hefur nú þegar tapað 60 millj­örðum á brölti stjórn­enda sjóðs­ins. Ekki er víst að sjái fyrir enda á tap­rekstri Íbúða­lána­sjóðs. Brot Íbúða­lána­sjóðs og stjórn­enda hans er ekki síður alvar­legt en brot þess sem dæmdur var í 14 ára fang­elsi fyrir þátt sinn í að hafa áhrif á vaxta­kjör á mark­aði. Tekið skal fram að stjórn­endur Íbúða­lána­sjóðs hafa ávallt gengið laus­ir.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None