Sala íslensks neftóbaks jókst um 19 prósent í fyrra – skilaði 700 milljóna króna tekjum

munntobak_800_030214.jpg
Auglýsing

Sala á íslensku nef­tó­baki, sem oft er kall­aður „Rudd­i“, jókst um 19 pró­sent í fyrra. Árið 2013 seldi Áfeng­is- og tóbaks­verslun ríks­ins (ÁTVR), sem fram­leiðir og selur tóbak­ið, 27,6 tonn af því. Í fyrra rauk salan upp og var sam­tals 32,9 tonn. ÁTVR hefur aldrei áður selt jafn mikið af nef­tó­baki.

Alls skil­aði nef­tó­baks­salan 692,5 millj­ónum krónum í kass­ann, eða 115,6 millj­ónum krónum meira en árið áður. Tekj­urnar juk­ust því um 20 pró­sent á milli ára. Þetta kemur fram í árs­skýrslu ÁTVR sem var birt í vik­unni.

Auglýsing

Ein­okun lengi

Árið 1996 var fín­kornað munn- og nef­tó­bak bannað með lögum á Íslandi. Það þýðir að nef­tó­bakið sem ÁTVR fram­leiðir hefur verið í nán­ast ein­ok­un­ar­stöðu á mark­aðnum síðan lögin voru sett. Sam­hliða hefur neysla á munn­tó­baki auk­ist tölu­vert og þeir sem neyta þess kaupa ann­að­hvort smygl­varn­ing á svörtum mark­aði, þar sem er mikið fram­boð, eða nota nef­tó­bakið sem ÁTVR fram­leið­ir, hinn svo­kall­aða „Rudda“, sem munn­tó­bak. Þessi aukna neysla hefur skilað auknum tekjum í vasa hins opin­bera svo um mun­ar, bæði vegna hækk­unar á tóbaks­gjaldi og stór­auk­innar eft­ir­spurn­ar. Tóbaks­gjald á nef­tó­bak hækk­aði til að mynda um 100 pró­sent 1. jan­úar 2013. Með­al­út­sölu­verð á tóbaks­dós af „Rudda“ er, sam­kvæmt laus­legri könnun Kjarn­ans, tæp­lega 2.000 krón­ur.

Sið­ferð­is­leg spurn­ing hvenær nef­tó­bak er munn­tó­bak

Í inn­gangi árs­skýrslu ÁTVR fyrir árið 2014, fjallar Ívar J. Arndal, for­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins, um áhyggjur sínar af auk­inni nef­tó­baksneyslu. Þar segir Ívar: „Kann­anir sýna að neyslan á nef­tó­baki hefur færst í munn og nú er svo komið að yfir­gnæf­andi hluti nef­tó­baks­ins er not­aður í munn. Nýir not­endur eru helst ungir karl­menn. Sam­kvæmt lögum er sala munn­tó­baks ólög­leg á Íslandi. Það er sið­ferði­leg spurn­ing hvenær íslenska nef­tó­bak­ið, sem búið er að fram­leiða eftir sömu upp­skrift frá því fyrir stríð, er raun­veru­lega orðið að munn­tó­baki og þar með ólög­legt. Í dag er íslenska nef­tó­bakið sem ÁTVR fram­leiðir eina reyklausa tóbakið á mark­að­in­um. Engin form­leg skil­grein­ing er til á því hvaða eðl­is­þættir það eru sem greina á milli nef­tó­baks og munn­tó­baks. ÁTVR hefur vakið athygli heil­brigð­is­yf­ir­valda á mál­inu en ljóst er að neyslu­aukn­ingin á nef­tó­bak­inu er slæm og nauð­syn­legt að sporna við þró­un­inni.“ Á sama tíma og nef­tó­baksneysla hefur stór­auk­ist hefur sala á sígar­ettum á hvern íbúa dreg­ist umtals­vert sam­an. Árið 2005 seldi ÁTVR 65 pakka á hvern íbúa yfir 15 ára aldri. Í fyrra var sú tala komin niður í 42 pakka. Það þýðir að hver Íslend­ingur keypti rúm­lega þriðj­ungi færri sígar­ettu­pakka í fyrra en hann gerði níu árum áður.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent