Salan á Datamarket viðskipti ársins, salan á Borgun þau verstu

hjalli.jpg
Auglýsing

Salan á Data­mar­ket til Qlik Technologies í Banda­ríkj­un­um, sem fór fram í októ­ber síð­ast­liðn­um, hefur verið valin við­skipti árs­ins hjá Mark­aðn­um, fylgi­blaði Frétta­blaðs­ins um við­skipti, með yfir­burð­um. Þetta kemur fram í blað­inu í dag.

hjalli

Kaup­verðið sem greitt var fyrir Data­mar­ket getur orðið allt að 13,5 millj­ónir dala, um 1.660 millj­ónir króna. Hjálmar Gísla­son, sem stofn­aði Data­mar­ket árið 2008 og er fram­kvæmda­stjóri þess, átti 27 pró­sent í fyr­ir­tæk­inu og fékk í sinn hlut allt að 450 millj­ónir króna. Hjálmar var einnig val­inn við­skipta­maður árs­ins af dóm­nefnd Mark­að­ar­ins.

Auglýsing

Hjálmar leiddi hóp fjár­festa sem keyptu hlut í Kjarn­anum í októ­ber síð­ast­liðnum og er stjórn­ar­for­maður félags­ins.

Í öðru sæti yfir við­skipta árs­ins var sala Haga­mels, félags í eigu fjár­fest­anna Árna Hauks­son­ar, Hall­björns Karls­sonar og Sig­ur­­björns Þor­kels­son­ar, á 6,6 pró­senta hlut í smá­söluris­anum Hög­um. Með söl­unni inn­leystu þeir um 2,3 millj­arða króna hreinan hagnað á fjár­fest­ingu sinni í félag­inu, en þeir höfðu lagt í hana tæpum þremur árum áður. Um var að ræða mesta hagnað sem einka­fjár­festir hefur inn­leyst frá hruni vegna hluta­bréfa­við­skipta.

Hagar, sem Hagamelur seldu hlut sinn í með miklum hagnaði, á og rekur meðal annars Bónus-verslanirnar. Hag­ar, sem Haga­melur seldu hlut sinn í með miklum hagn­aði, á og rekur meðal ann­ars Bón­us-versl­an­irn­ar.

Í þriðja sæti voru samn­ingar sem náð­ust í byrjun des­em­ber um að veita slita­búi gamla Lands­bank­ans (LBI hf.) und­an­þág­u frá fjár­magns­höft­u­m til að greiða for­gangs­kröfum sínum í kjöl­far sam­komu­lags sem slita­búið gerði við nýja Lands­bank­ann um breytta skil­mála skulda­bréfa þeirra á milli. Þetta sam­komu­lag var talið flýta fyrir afnámi gjald­eyr­is­hafta. Sam­komu­lagið felur í sér breyt­ingar á greiðslu­ferli skulda­bréfa að jafn­virði 226 millj­arða króna og leng­ingu þeirra frá októ­ber 2018 til októ­ber 2026.

Skrifað var undir nýtt samkomulag milli nýja og gamla Landsbankans í maí 2014. Seðlabankinn samþykkti í desember að veita slitabúi Landsbankans undanþágu frá fjármagnshöftum. Skrifað var undir nýtt sam­komu­lag milli nýja og gamla Lands­bank­ans í maí 2014. Seðla­bank­inn sam­þykkti í des­em­ber að veita slita­búi Lands­bank­ans und­an­þágu frá fjár­magns­höft­u­m.

Fnyk­ur­inn af Borgun mesti afleik­ur­inn



Verstu við­skipti árs­ins að mati dóm­nefndar Mark­að­ar­ins voru sala Lands­bank­ans á 31,2 pró­sent hlut í greiðslu­korta­fyr­ir­tæk­inu Borg­un. Álits­gjöfum fannst fnýkur af þeirri aðferð­ar­fræði sem beitt var við söl­una, en hóp­ur­inn sem keypti var sá eini sem fékk að bjóða. Auk þess eru margir á þeirri skoðun að verðið sem greitt hafi verið fyrir hafi verið allt of lágt. Kjarn­inn greindi fyrstur frá því hvernig var staðið að söl­unni á hlut Lands­bank­ans í Borgun og hverjir það voru sem keyptu hlut­inn.

lais

Í öðru sæti yfir verstu við­skiptin voru sjón­varps­stöðvar Kon­ung­lega kvik­mynda­fé­lags­ins, sem Sig­mar Vil­hjálms­son leiddi. Þær fóru í loftið í mars en öllu starfs­fólki var sagt upp í lok apr­íl. 365 tók loks yfir stöðv­arnar og lagði aðra þeirra, Mikla­garð, nið­ur.

Sigmar Vilhjálmsson fór fyrir Konunglega kvikmyndafélaginu í skammlífu ævintýri þess. Sig­mar Vil­hjálms­son fór fyrir Kon­ung­lega kvik­mynda­fé­lag­inu í skamm­lífu ævin­týri þess.

Í þriðja sæti var skulda­leið­rétt­ing rík­is­stjórn­ar­flokk­anna. All­margir dóm­nefnd­ar­menn sögðu hana hafa verið afleik þar sem miklar fjár­hæðir hefðu að stórum hluta runnið til fólks sem þurfti ekki á þeim að halda. Millj­örð­unum 80 hefði verið betur varið í að lækka skuldir eða renna styrk­ari stoðum undir heil­brigð­is- og mennta­kerfi lands­ins.

 

Leiðréttingin, skuldaniðurfelling ríkisstjórnarinnar á verðtryggðum húsnæðislánum, kostar ríkissjóð um 80 milljarða króna. Leið­rétt­ing­in, skulda­nið­ur­fell­ing rík­is­stjórn­ar­innar á verð­tryggðum hús­næð­is­lán­um, kostar rík­is­sjóð um 80 millj­arða króna.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None