Sameiningarviðræður - Ármann sýnir MP banka áhuga

armann.jpg
Auglýsing

Íslenski fjár­mála­geir­inn hefur gengið í gegnum mik­inn hreinsund­ar­eld á síð­ustu sex árum, frá hruni Glitn­is, Lands­bank­ans og Kaup­þings haustið 2008, en ný stoð er nú á teikni­borð­inu, þar sem íslenskir einka­fjár­festar myndu ráða för og bjóða fram skýran val­kost í sam­keppni við end­ur­reistu bank­ana þrjá, Íslands­banka, Lands­bank­ann og Arion banka.

Ármann sýnir MP banka áhuga



Meðal þess sem hefur verið til alvar­legrar skoð­un­ar, og lif­andi við­ræður eru í gangi um, er að sam­eina Straum fjár­fest­ing­ar­­banka og MP banka og jafn­vel fleiri minni fjár­mála­fyr­ir­tæki, eins og Íslensk verð­bréf og Virð­ingu. Eign­ar­hlutir í MP banka og Íslenskum verð­bréfum hafa verið til sölu í nokkurn tíma en lít­ill áhugi hefur verið á þeim, sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans. Sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans sýndi Ármann Þor­valds­son, fyrr­ver­andi banka­stjóri Kaup­þings Sin­ger & Fried­lander í London, því áhuga á dög­unum að kaupa hlutafé MP banka en það gekk ekki eftir á þeim tíma. Ármann vildi ekki tjá sig um málið þegar Kjarn­inn náði af honum tali, og sagði ekk­ert vera til þess að tjá sig um að svo stöddu. Ekki væri því öðru við að bæta en „no comment“. Ármann er meðal hlut­hafa í fyr­ir­tæk­inu Virð­ingu.

Breski fjár­festir­inn Joe Lewis er stærsti ein­staki eig­andi MP banka með tæp­lega 10 pró­senta hlut í gegnum félagið Man­astur Hold­ing B.V. Skúli Mog­en­sen á aðeins minni hlut, 9,9 pró­sent, í gegnum félag sitt Títan ehf. og Líf­eyr­is­­­sjóður verzl­un­ar­manna kemur næstur með 9,74 pró­senta hlut. Íslenska ríkið á lít­inn hlut í bank­anum í gegnum Eigna­safn Seðla­banka Íslands, eða 4,36 pró­sent. Þrátt fyrir að hlut­ur­inn sé ekki stór er Eigna­safnið þó átt­undi stærsti ein­staki hlut­hafi bank­ans. Eigið fé MP banka nam um fimm millj­örðum í lok síð­asta árs og var eig­in­fjár­hlut­fallið 14,2 pró­sent á þeim tíma.

Íslensk verð­bréf enn í sölu­með­ferð



Margir hafa skoðað kaup á Íslenskum verð­bréfum (ÍV), en Íslands­banki er þar stærsti eig­andi með 27,1 pró­sents hlut. Skemmst er að minn­ast þess þegar MP banki ætl­aði að kaupa ÍV en allt kom fyrir ekki. Sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans er enn horft til þess að ÍV geti orðið hluti af stærra fjár­mála­fyr­ir­tæki, jafn­vel nýrri stoð í fjár­mála­kerf­inu, það er sam­ein­uðum banka Straums og MP banka eða öðrum hvorum bank­an­um. Hlutur Íslands­banka hefur lengi verið til sölu en illa hefur gengið að finna nýja eig­endur sem eru til­búnir að borga það fyrir hlut­inn sem Íslands­banki vill fá fyrir hann. Félagið er með rætur á Norð­ur­landi og höf­uð­stöðvar á Akur­eyri og sinnir eigna­stýr­ingu fyrir ein­stak­linga, fag­fjár­festa, félaga­sam­tök og fyr­ir­tæki. Rekstur félags­ins hefur verið stöðugt með jákvæða rekstr­ar­af­komu frá árinu 2002 og á síð­asta ári skil­aði félagið 138 millj­ónum króna í hagn­að. Eignir sem félagið stýrir voru í árs­lok í fyrra 112 millj­arðar króna. Stærstu hlut­hafar eru, auk Íslands­banka, Íslensk eigna­stýr­ing ehf., með 21 pró­sents hlut, Stapi líf­eyr­is­­­sjóður með 15 pró­senta hlut og Líf­eyr­is­sjóður starfs­manna sveit­ar­­fé­laga með 14,4 pró­senta hlut. Heiðrún Jóns­dóttir er for­maður stjórnar félags­ins en með henni í stjórn eru Hall­dór Hall­dórs­son, odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í borg­ar­stjórn og for­maður Sam­bands íslenskra sveit­ar­fé­laga, og Stein­grímur Birg­is­son, for­stjóri Hölds.

Þetta er aðeins stutt útgáfa af umfjöll­un­inni. Hana má lesa í heild sinni í Kjarn­an­um.

Auglýsing

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None