Samkomulagi náð í Brussel eftir maraþonfundi í alla nótt

h_52053092-1.jpg
Auglýsing

Leið­togar evru­ríkj­anna hafa náð sam­komu­lagi um skulda­vanda Grikk­lands. Don­ald Tusk, for­seti leið­toga­ráðs Evr­ópu­sam­bands­ins, til­kynnti þetta á Twitt­er-­síðu sinni rétt fyrir klukkan sjö að íslenskum tíma. Þá höfðu fundir staðið yfir nærri sleitu­laust alla helg­ina.



Tusk greindi frá því að Grikkir fái neyð­ar­lán í gegnum Stöð­ug­leika­sjóð Evr­ópu og að strax í kjöl­far sam­komu­lags­ins verði ákveðið hvernig hægt er að fjár­magna gríska rík­ið, en stórar afborg­anir af lánum þeirra eru á gjald­daga í júlí.

Auglýsing

Á blaða­manna­fundi í Brus­sel nú í morgun sagði Jer­oen Dijs­sel­bloem, for­seti evru­hóps­ins, hóps fjár­mála­ráð­herra evru­ríkj­anna, að nú þurfi Grikkir strax að hefj­ast handa við að leiða í lög umbætur sem sam­komu­lag náð­ist um. Ef stjórn­völd í Aþenu gera það strax á morgun og mið­viku­dag geti þjóð­þing ann­arra ríkja farið að sam­þykkja þriðju neyð­ar­lána­veit­ing­una, en það verður ekki gert fyrr en Grikkir hafa gripið til aðgerða.

Dijs­sel­bloem greindi einnig frá því að 50 millj­arða eignir Grikkja verði settar í nýjan sjóð sem á að hjálpa til við við­reisn grískra banka. Í gær stóð til að sjóður með eignum Grikkja yrði í Lúx­em­borg en að lokum var ákveðið að hann skyldi vera stað­settur í Aþenu.

Þegar þetta er skrifað er ­blaða­manna­fundur Ang­elu Merkel, kansl­ara Þýska­lands, nýhaf­inn. Hún segir enga þörf á plani B, svo að Grikk­land sé ekki á leið úr evru­sam­starf­inu. Merkel segir að rætt verði um nið­ur­fell­ingu skulda Grikkja, en að í sam­komu­lag­inu komi fram að evru­ríkin séu reiðu­búin að lengja í lánum og lengja tím­ann sem Grikkir þurfi ekki að borga af lán­um.

Hún bætti því þó við að enn væri mjög langur og erf­iður tími framund­an. ­Merkel sagði jafn­framt að hún hefði trú á því að hægt væri að end­ur­nýja traustið milli stjórn­valda í Grikk­landi og Þýska­landi.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None