Seðlabankinn gaf starfsmannafélagi bankans tvær milljónir við stofnun listaklúbbs

Listaklúbbur Seðlabanka Íslands var stofnaður síðastliðið haust. Ríflega hundrað starfsmenn bankans eru í klúbbnum og greiða þrjú þúsund krónur í félagsgjald mánaðarlega. Listaverkahappdrætti er haldið reglulega.

Um þriðjungar starfsmanna Seðlabanka Íslands tók þátt í stofnun Listaklúbbs Seðlabankans síðastliðið haust. Fyrsta listakvöld klúbbsins var haldið nýverið þar sem fyrsta listahappdrættið fór fram og fóru nokkrir meðlimir heim með ný listaverk í farteskinu
Um þriðjungar starfsmanna Seðlabanka Íslands tók þátt í stofnun Listaklúbbs Seðlabankans síðastliðið haust. Fyrsta listakvöld klúbbsins var haldið nýverið þar sem fyrsta listahappdrættið fór fram og fóru nokkrir meðlimir heim með ný listaverk í farteskinu
Auglýsing

Ásgeir Jóns­son seðla­banka­stjóri hélt tölu á fyrsta lista­kvöldi Lista­klúbbs Seðla­banka Íslands sem haldið var í síð­asta mán­uði.

Lista­klúbb­ur­inn var stofn­aður af Starfs­manna­fé­lagi Seðla­banka Íslands síð­asta haust og er öllum starfs­mönnum bank­ans frjálst að taka þátt. Í svari frá seðla­bank­anum við fyr­ir­spurn Kjarn­ans segir að Seðla­bank­inn lagði starfs­manna­fé­lag­inu til tvær millj­ónir króna við stofnun klúbbs­ins og verða þær nýttar í starf­semi hans. Bank­inn mun að öðru leyti ekki koma að starf­semi klúbbs­ins.

Um þriðj­ungur starfs­manna Seðla­bank­ans, hátt í hund­rað tals­ins, gekk í klúbb­inn við stofnun og greiða þeir mán­að­ar­legt félags­gjald, þrjú þús­und krón­ur, sem nýtt er til kaupa á lista­verk­um. Reglu­lega er efnt til lista­kvölda þar sem dregin eru út nöfn úr potti með nöfnum hepp­inna félags­manna. Lista­klúbb­ur­inn hefur einnig áform um skipu­lagðar heim­sóknir í gall­erí ásamt því að fá stöku sinnum fyr­ir­les­ara til að fræða félaga um sam­tíma­list.

Auglýsing

Lista­klúbbar sem þessir eru ekki nýir af nál­inni en lítið hefur farið fyrir starf­semi þeirra eftir banka­hrun. Lista­klúbbur Arion banka (þá Kaup­þing) var til að mynda stofn­aður árið 2006. Klúbb­ur­inn hætti starf­semi þegar ríkið tók yfir bank­ann haustið 2008 en var end­ur­vak­inn í nóv­em­ber 2009 og gengu þá um 200 starfs­menn bank­ans og tengdra félaga í klúbb­inn og greiddu eitt þús­und krónur í mán­að­ar­gjald.

Mark­mið Lista­klúbbs Seðla­banka Íslands er meðal ann­ars að „efla almennan áhuga á listum og menn­ingu og styðja við bakið á íslensku sem erlendu lista­fólki,“ að því er segir í svari bank­ans til Kjarn­ans.

Listin hug­leikin starfs­mönnum Seðla­bank­ans

Lista­verka­safn Seðla­bank­ans er mynd­ar­legt og hefur ratað í umræð­una oftar en einu sinni. Minni­stæð­ast er lík­lega þegar starfs­maður bank­ans kvart­aði yfir mál­verki eftir Gunn­laug Blön­dal sem prýddi vegg í bank­an­um. Nekt er á mál­verk­inu og taldi starfs­mað­ur­inn það ósæmi­legt og fór fram á að mál­verkið yrði fjar­lægt. Eftir sér­staka skoðun sem fram fór innan bank­ans varð það nið­ur­staða stjórn­enda að mál­verk eftir Gunn­laug Blön­dal sem inni­halda nekt skuli fjar­lægð úr almennum vinnu­svæðum og skrif­stofum yfir­manna og sett í geymslu þar til annað er ákveð­ið.

Kona með greiðu eftir Gunnlaug Blöndal.

Í erindi sem Banda­lag íslenskra lista­­manna sendi frá sér vegna máls­ins lýsti það yfir furðu sinni á ákvörðun Seðla­­banka Íslands að fjar­lægja verk­in. Í athuga­­semd ­banda­lags­ins ­segir að ef það sé skiln­ingur Seðla­­bank­ans að hann eigi að sinna menn­ing­­ar­­legu hlut­verki þá verði það hlut­verk að byggj­ast á fag­­legum grunn­i. ­Banda­lag­ið sagði að bank­inn ætti þá að stofna lista­­safn og ef ekki þá gerir banda­lagið kröfu um að verk­unum verði komið í umsjá Lista­safns Íslands.

Lista­safn Seðla­banka Íslands hefur enn ekki verið stofnað en nú hefur Lista­klúbbi Seðla­banka Íslands að minnsta kosti verið komið á fót.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent