Seðlabankinn lækkar hagvaxtarspá og segir horfur breyttar vegna kjarasamninga

18598766342_cd570ececc_z.jpg
Auglýsing

Seðla­banki Íslands hefur fært niður spár sínar um hag­vöxt á næstu árum og spáir því nú að hag­vöxtur í ár verði 4,2 pró­sent, eða um hálfu pró­senti minna en bank­inn spáði í síð­ustu útgáfu Pen­inga­mála, árs­fjórð­ungs­legu riti bank­ans. Þá spáir bank­inn því að hag­vöxtur á næstu tveimur árum, 2016 og 2017, verði þrjú pró­sent á ári. Áður var spáð 3,5 pró­sent hag­vexti næstu tvö ár. Bráða­birgða­tölur Hag­stof­unnar benda til að hag­vöxtur á fyrri helm­ingi árs 2015 hafi verið 2,9 pró­sent.

Seðla­bank­inn segir sam­setn­ingu hag­vaxtar hafa breyst og sé nú í enn meiri mæli drif­inn áfram af inn­lendri eft­ir­spurn, einkum einka­neyslu.

Auglýsing


Meg­in­skýr­ing breyttra efna­hags­horfa er sögð nýgerðir kjara­samn­ingar sem fela í sér veru­lega launa­hækk­anir í ár og á næstu tveimur árum. „Eins og rakið var í frá­viks­dæmi í maí­hefti Pen­inga­mála munu svo miklar launa­hækk­anir óhjá­kvæmi­lega hafa í för með sér aukið aðhald pen­inga­stefn­unnar sem draga mun úr fjár­fest­ingu og vinnu­afls­eft­ir­spurn. Því er einnig gert ráð fyrir hæg­ari fjölgun heild­ar­vinnu­stunda og meira atvinnu­leysi á spá­tím­anum en spáð var í maí. Samn­ing­arnir fela í sér að launa­kostn­aður á fram­leidda ein­ingu hækkar um 9% í ár og rúm­lega 7% á ári að með­al­tali á spá­tím­anum sem eru tölu­vert meiri hækk­anir en gert var ráð fyrir í maí­spánni. Á móti vegur að gert er ráð fyrir minni hækkun inn­flutn­ings­verð­lags á spá­tím­anum en spáð var í maí, ekki síst vegna mik­illar lækk­unar alþjóð­legs olíu­verðs síð­ustu vik­ur,“ segir Seðla­bank­inn.



„Verð­bólgu­horfur versna þó veru­lega frá því sem gert var ráð fyrir í maí. Sam­kvæmt end­ur­skoð­aðri spá verður verð­bólga komin í ríf­lega 4% snemma á næsta ári og verður á bil­inu 4-4½% á næstu tveimur árum áður en hún tekur að hjaðna á ný í átt að verð­bólgu­mark­mið­inu er líða tekur á spá- tím­ann. Nokkur óvissa er varð­andi hugs­an­leg frá­vik verð­bólgu frá ofan­greindri spá. Það stafar aðal­lega ann­ars vegar af óvissu um í hve ríkum mæli launa­hækk­unum verður velt út í verð­lag eða þeim mætt með auk­inni hag­ræð­ingu og því veik­ara atvinnustigi og hins vegar af óvissu um alþjóð­lega verð­þróun og áfram­hald við­skipta­kjara­bata.“



Pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­bank­ans til­kynnti í morgun um hækkun á stýri­vöxtum um 0,5 pró­sentu­stig, vegna versn­andi verð­bólgu­horfa.



Pen­inga­mál, efna­hags­spá Seðla­bank­ans, í heild.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None