Seðlabankinn: Rússabann breytir ekki útflutningshorfum

10016524533-0ff5c08222-z1.jpg
Auglýsing

Seðla­banki Íslands gerir ráð fyrir að vöru­út­flutn­ingur hald­ist nær óbreyttur frá því sem bank­inn hefur áður spáð, þrátt fyrir mögu­legra áhrifa inn­flutn­ings­banns sem rúss­nesk stjórn­völd til­kynntu um í síð­ustu viku. Í nýrri efna­hags­spá sem Seðla­bank­inn birti í dag í Pen­inga­mál­um, árs­fjórð­ungs­legu riti bank­ans, segir að útlit sé fyrir svip­aðan vöxt útflutn­ings sjáv­ar­af­urða og álaf­urða á þessu ári og næstu tveimur árum. Lík­leg­ast hefðu áhrif banns­ins verið meiri ef það hefði komið til í fyrra, vegna erf­ið­ara efna­hags­á­stands í Rúss­landi í ár.

„Horfur um vöru­út­flutn­ing eru nær óbreyttar fyrir þetta og næstu tvö ár þar sem útlit er fyrir svip­aðan vöxt útflutn­ings sjáv­ar­af­urða og álaf­urða. Tekið er til­lit til mögu­legra áhrifa inn­flutn­ings­banns sem rúss­nesk stjórn­völd til­kynntu fyrir skömmu. Gert er ráð fyrir að frystur upp­sjáv­ar­fiskur sem seldur var til Rúss­lands á síð­asta ári fari í bræðslu en við það lækkar útflutn­ings­verð­mætið um 8-10 ma.kr. Á móti kemur að fram­leiðslu- og útgerð­ar­kostn­aður mjöls og lýsis er lægri en vegna fryst­ing­ar. Lík­legt er að áhrif við­skipta­banns­ins verði minni en þau hefðu verið ef við­skipta­bannið hefði verið sett á í fyrra vegna erf­ið­ara efna­hags­á­stands í Rúss­landi í ár og hefur útflutn­ingur til Rúss­lands það sem af er ári verið tölu­vert minni en á síð­asta ári. Einnig er óvíst hvernig til tekst við að afla nýrra mark­aða fyrir frystar afurðir upp­sjáv­ar­fiska,“ segir um vöru­út­flutn­ing í Pen­inga­mál­um.

Því er spáð að útflutn­ingur auk­ist um tæp­lega sjö pró­sent í ár frá fyrra ári og að hann verði bor­inn uppi af þjón­ustu­út­flutn­ingi, í krafti mik­illar fjölg­unar ferða­manna. Engu að síður verði frma­lag utan­rík­is­við­skipta til hag­vaxtar nei­kvætt í ár.

Auglýsing

„Þrátt fyrir mik­inn vöxt útflutn­ings í ár eru horfur á að fram­lag utan­rík­is­við­skipta til hag­vaxtar verði nei­kvætt. Gert er ráð fyrir að inn­flutn­ingur vöru og þjón­ustu muni vaxa um 12½% í ár sem er 1½ pró­sentu meira en áætlað var í maí­spánni. Áfram er gert ráð fyrir að inn­flutn­ingur verði drif­inn af flutn­inga­tækjum (skip­um, flug­vélum og fólks­bíl­um) og neyslu­vörum í takt við kröft­ugan vöxt inn­lendrar eft­ir­spurnar og áfram­hald­andi fjölgun ferða­manna til lands­ins. Þótt talið sé að heldur hægi á vexti inn­flutn­ings á næstu tveimur árum, verður hann enn tölu­verð­ur. Það ásamt minni vexti útflutn­ings leiðir til þess að nú er búist við að fram­lag utan­rík­is­við- skipta til hag­vaxtar verði heldur nei­kvæð­ara en spáð var í maí,“ segir í spánni.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None