Seðlabankinn sagði leka í DV vera ástæðu þess að lagabreytingu þurfti að gera á sunnudegi

sjs.bmp.jpg
Auglýsing

Full­trúar Seðla­bank­ans til­greindu það sér­stak­lega á fundi efna­hags- og við­skipta­nefndar í gær að ástæða þess að verið væri að gera breyt­ingar á gjald­eyr­is­lögum með afbrigðum á sunnu­degi væri leki á upp­lýs­ingum um hafta­á­ætlun stjórn­valda, sem hafi birst sem frétt í DV á föstu­dag. Lekin hafi leitt til skjálfta í kerf­inu og Seðla­bank­inn hafi fundið aukin þrýst­ing um að hjá­leiðir til að reyna að sleppa út með fjár­muni áður en áætl­un­inni yrði hrint í fram­kvæmd væru í und­ir­bún­ingi. Þetta kom fram í ræðu Stein­gríms J, Sigús­son­ar, þing­manns Vinstri grænna og sem situr í efna­hags- og við­skipta­nefnd, þegar breyt­ingar á lögum um gjald­eyr­is­mál, sem ætlað er að stoppa upp í ýmis göt í höft­un­um, voru sam­þykkt í gær­kvöldi. „Þarna á sér stað hættu­leg­ur, raun­veru­legur og skað­legur leki,“ sagði Stein­grím­ur.

Í DV á föstu­dag kom fram að til stæði að gefa slita­búum föllnu bank­anna nokkrar vikur til að mæta skil­yrðum stjórn­valda til að leyfa þeim að klára nauða­samn­inga sína. Skil­yrðin eru sett til að vernda greiðslu­jöfnuð og þýða að búin þurfa að gefa eftir miklar krónu­eign­ir, sem að sögn DV eiga að vera allt að 500 millj­arðar króna. Tak­ist ekki að semja við búin á þessum vikum verður lagður á þau svo­kall­aður stöð­ug­leika­skatt­ur, sem DV sagði að yrði 40 pró­sent.

Sam­band for­sæt­is­ráð­herra og DV hefur verið mikið í umræð­unni und­an­farnar vikur í kjöl­far til­raunar til að fjár­kúga ráð­herr­ann. Í bréfi sem fjár­kúg­ar­arnir sendu á Sig­mund Davíð kom fram, að sögn Vís­is, að upp­lýs­ingum um að hann hefði beitt sér fyrir fjár­hags­legri fyr­ir­greiðslu fyrir Björn Inga Hrafns­son, aðal­eig­anda DV yrðu gerðar opin­berar ef hann myndi ekki greiða systr­unum Hlín Ein­ars­dóttur og Malín Brand nokkrar millj­ónir króna.

Auglýsing

Bað for­sæt­is­ráð­herra um afsök­un­ar­beiðni



Stein­grímur benti í ræðu sinni á að ekki gæti það hafa verið stjórn­ar­and­staðan sem hafi lekið upp­lýs­ing­un­um, enda hefði sam­ráðs­hópur um losun hafta ekki verið kall­aður saman í sex vik­ur. Stjórn­ar­and­staðan hefði því engar upp­lýs­ingar um málið til að leka. Hún læsi bara um það í DV eins og aðr­ir.

Í apríl sagði Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra á þingi að full­trúum stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna hafi verið haldið upp­lýstum um gang mála varð­andi vinnu við afnám hafta í gegnum póli­tísku sam­ráðs­nefnd, en að trún­að­ar­brestur hafi orðið eftir fund sam­ráðs­nefnd­ar­innar í des­em­ber og í kjöl­farið hafi upp­lýs­inga­gjöf verið breytt. Nefndi hann sér­stak­lega Árna Pál Árna­son, for­manns Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, í þeim efn­um. Þau ummæli vöktu mikla reiði stjórn­ar­and­stöðu­þing­manna.

Stein­grímur rifj­aði þessi ummæli upp í ræðu sinni í gær­kvöldi og sagð­ist telja að for­sæt­is­ráð­herra væri maður að meiri ef hann myndi biðja stjórn­ar­and­stöð­una afsök­unar á þeim ósæmi­legu ásök­unum sem hann hafði uppi í garð hennar um leka. Sér­stak­lega í ljósi þess leka sem hafi orðið til DV á föstu­dag. Stein­grímur bað Sig­mund Davíð einnig um að útskýra hvernig svona leki gæti átt sér stað, beint í gegnum nafn­greindan blaða­mann. Þar átti Stein­grímur við Hörð Ægis­son, við­skipta­rit­stjóra DV, sem hefur skrifað fjöl­margar fréttir und­an­farin miss­eri sem byggja á trún­að­ar­upp­lýs­ingum úr hafta­los­un­ar­starf­inu.

Sig­mundur Davíð ákvað að svara ekki ræðu Stein­gríms.

Breyt­ingar á lögum um gjald­eyr­is­mál voru sam­þykktar í þverpóli­tískri sátt.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None