Segir aðstoðarmann Ásmundar Einars hafa „staðfest“ að ÍBV ætti að fá 100 milljóna styrk

ÍBV telur sig eiga inni 60 milljónir króna af alls 100 milljónum sem samþykkt var að úthluta til íþrótta- og æskulýðsfélaga á fjáraukalögum í fyrra. Aðstoðarmaður ráðherra er sagður hafa lofað þessari upphæð, bæði í samtölum og smáskilaboðum.

Íþróttafélagið ÍBV metur heildartjón sitt vegna samkomutakmarkana á yfir 300 milljónir króna. Félagið telur sig eiga inni fé hjá stjórnvöldum.
Íþróttafélagið ÍBV metur heildartjón sitt vegna samkomutakmarkana á yfir 300 milljónir króna. Félagið telur sig eiga inni fé hjá stjórnvöldum.
Auglýsing

Har­aldur Páls­son fram­kvæmda­stjóri ÍBV íþrótta­fé­lags seg­ir, í erindi sem hann sendi fyrir hönd félags­ins til fjár­laga­nefndar þings­ins, að aðstoð­ar­maður Ásmundar Ein­ars Daða­sonar mennta- og barna­mála­ráð­herra hafi stað­fest við sig, bæði í sam­tölum og smá­skila­boð­um, að ÍBV ætti að fá 100 millj­óna króna fram­lag sem sam­þykkt var í fjár­auka­lögum árs­ins 2021 til þess að bæta íþrótta­fé­lögum tekju­tap vegna við­burða­halds.

„For­svars­mönnum félags­ins brá því heldur betur þegar í ljós kom að ein­ungis 40.000.000 kr bár­ust félag­inu þann 22. apríl 2022 frá mennta- og barna­mála­ráðu­neyt­in­u,“ segir í erindi fram­kvæmda­stjór­ans, sem er sent til þess að fal­ast eftir frek­ari styrk til íþrótta­fé­lags­ins við afgreiðslu fjár­laga í ár.

Í erind­inu er fjár­hags­staða félags­ins sögð erfið í kjöl­far þess að Þjóð­há­tíðir áranna 2020 og 2021 voru blásnar af sökum sam­komu­tak­mark­ana í tengslum við kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn, en félagið sjálft metur tjón sitt af þessum völdum vel yfir 300 millj­ónir króna heild­ina.

Har­aldur rekur að við úrvinnslu fjár­auka­laga fyrir árið 2021 hafi fjár­laga­nefnd borist til­laga að styrk, sem veita átti íþrótta- og æsku­lýðs­fé­lögum vegna tekju­missis ýmissa við­burða sem fella þurfti niður með skömmum fyr­ir­vara þegar sam­komu­tak­mark­anir tóku aftur gildi. Segir hann að rík­is­stjórnin hafi haft þann vilja að 60 millj­ónum króna yrði veitt í mál­efn­ið, og að skil­yrt væri að hið minnsta 40 millj­ónir króna færu óskiptar til ÍBV.

Auglýsing

„Fjár­laga­nefnd tók málið fyrir og mat stöð­una þannig, byggt á fyr­ir­liggj­andi gögn­um, að hækka ætti fram­lagið í 100 millj­ónir króna og halda hlut­föll­unum um lág­marks­hlut ÍBV óbreyttu eða 2/3. Ekk­ert var því til fyr­ir­stöðu að ef ekk­ert annað félag myndi sækja í þennan sjóð á sömu for­sendum og að ÍBV fengi þannig allan sjóð­inn, enda höfðu aðgerðir stjórn­valda orðið til þess að félagið hafi orðið af 230 millj­ónum króna hið minnsta und­an­farin tvö árin,“ segir í erindi Har­ald­ar.

Hann vísar svo til nefnd­ar­á­lits fjár­laga­nefndar um fjár­auka­lögin í fyrra, þar sem gerð til­laga um 100 millj­óna króna fram­lag til íþrótta- og æsku­lýðs­fé­laga vegna tekju­miss­is.

„Ýmsa við­burði þurfti að fella niður með skömmum fyr­ir­vara þegar sam­komu­tak­mark­anir tóku aftur gildi, við­burði sem eru mik­il­vægir fjár­öfl­un­ar­við­burðir sem ekki hefur reynst unnt að halda og því er lagt til að unnt verði að sækja um styrki vegna tekju­miss­is. Sem dæmi má nefna að þjóð­há­tíð í Vest­manna­eyjum var felld niður annað árið í röð með skömmum fyr­ir­vara,“ sagði í nefnd­ar­á­liti meiri­hluta fjár­laga­nefnd­ar.

Engin önnur félög hafi sótt um á þessum for­sendum

Til­laga meiri­hlut­ans um þetta var svo vissu­lega sam­þykkt á Alþingi og 100 millj­ónir króna færðar í mál­efn­ið. Ljóst er þó að ÍBV telur sig ekki hafa fengið allt sem félagið átti að fá af þess­ari upp­hæð.

Har­aldur segir í erindi sínu að eftir „ótal sím­töl og vand­ræða­lega mikla eft­ir­grennslan kom loks­ins til þess að ráðu­neytið greiddi félag­inu úr umræddum sjóð“ í apríl síð­ast­liðnum og að svo hafi félagið fengið stað­fest í „ít­rek­uðum fyr­ir­spurnum um hvort önnur félög hefðu sótt í þennan sjóð á umræddum for­sendum þeim sem koma fram í áður­nefndu nefnd­ar­á­lit­i,“ að svo væri ekki.

„Einnig hafði aðstoð­ar­maður ráð­herra stað­fest að félagið fengi 100 millj­ónir króna úr sjóðnum bæði í sam­tölum og í smá­skila­boð­um. For­svars­mönnum félags­ins brá því heldur betur þegar í ljós kom að ein­ungis 40.000.000 kr bár­ust félag­inu þann 22. apríl 2022 frá Mennta- og barna­mála­ráðu­neyt­in­u,“ segir í erindi Har­ald­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent