Segir Isavia tvísaga – Forvalsgögnum var eytt

flugstod-leifs-eirkissonar-1.jpg
Auglýsing

Stjórn Isa­via er stað­ráðin í að koma í veg fyrir að þátt­tak­endur í sam­keppn­inni um versl­un­ar­pláss í Flugs­stöð Leifs Eiríks­sonar geti kannað hvort ann­ar­legar og ómál­efna­legar ástæður hafi ráðið vali á fyr­ir­tækjum sem fá versl­un­ar­pláss. Þetta segir Aðal­heiður Héð­ins­dótt­ir, for­stjóri Kaffi­társ, í aðsendri grein í Frétta­blað­inu í dag.

Í mars 2014 efndi Isa­via til svo­kall­aðs for­vals til samn­inga­við­ræðna vegna aðstöðu til versl­un­ar- og veit­inga­rekst­urs á Kefla­vík­ur­flug­velli, en samn­ings­tími núver­andi rekstr­ar­að­ila í Leifs­stöð rann út um ára­mót­in. For­vr­a­lið var aug­lýst á evr­ópska efna­hags­svæð­inu. Í kjöl­far nið­ur­stöðu for­vals­ins, þar sem Kaffi­tár hélt ekki plássi sínu í Leifs­stöð, kærði Kaffi­tár nið­ur­stöður til Úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­inga­mál og óskaði eftir upp­lýs­ingum um ein­kunna­blöð sem notuð voru við ákvörðun Isa­via um hver fengi versl­un­ar­pláss.

Auglýsing


„Ætla mætti að það stæði ekki í stjórn Isa­via að upp­lýsa hvaða fyr­ir­tæki tóku þátt í sam­keppn­inni, en það er röng álykt­un. Í fyrstu bar fyr­ir­tækið fyrir sig trún­aði við þátt­töku­fyr­ir­tækin og mein­tan álits­hnekki þeirra sem urðu undir í sam­keppn­inni. Þá bar Isa­via fyrir sig að lík­lega tækju fleiri fyr­ir­tæki þátt í slíkri sam­keppni ef leyndi hvíldi yfir sam­keppn­is­ferl­inu. Úrskurð­ar­nefndin gaf lítið fyrir þessi rök og krafð­ist þess að fá nafna­list­ann afhentan í trún­aði. Þá „upp­lýsti“ Isa­via að gögn­unum hefur verið eytt, nafna­list­anum og öllum for­vals­gögnum sem inn­héldu m.a. upp­lýs­ingar um fyr­ir­tæk­in, vöru­fram­boð, verð- og mark­aðs­stefn­u!“ skrifar Aðal­heið­ur.



Hún bendir á að úrskurð­ar­nefnd hafi séð ástæðu til að minna Isa­via á lög um opin­bera skjala­söfn­un. „Sú spurn­ing verður áleitin hvort Isa­via eyddi gögn­unum áður en nið­ur­staða sam­keppn­innar lá fyrir eða hvort það var gert eftir að Kaffi­tár bað um gögnin 21. ágúst og opin­ber umræða um leyni­makk hóf­st,“ segir í grein­inni. „Isa­via neit­aði ekki ein­göngu Kaffi­tári um aðgang að stiga­gjöf ann­arra þátt­tak­enda heldur neit­aði hún einnig úrskurð­ar­nefnd­inni um þessi gögn, þrátt fyrir til­mæli um að það yrðu aðeins afhent nefnd­inni í trún­að­i,“ segir á öðrum stað.



„Ég gæti hags­muna míns fyr­ir­tækis og þess vegna óska ég eftir aðgangi að gögn­um. Les­endum ætti þó að vera ljóst að hér er á ferð­inni miklu stærra mál og varðar hags­muni almenn­ings,“ segir í lok grein­ar­inn­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None