Segir vaxtalækkunina hafa verið tilraun

Hagfræðistofnun Háskóla Íslands segir að lækkun vaxta í fyrra hafi verið tilraun um að færa vexti hérlendis í átt að því sem gerist í flestum nágrannalöndum okkar.

Háskóli Íslands
Auglýsing

Vaxta­lækk­anir Seðla­bank­ans í byrjun far­ald­urs­ins í fyrra voru ekki nema að hluta til við­brögð vegna breyttra efna­hags­að­stæðna, heldur fólu þær í sér stefnu­breyt­ingu að hálfu bank­ans. Þetta skrifar Hag­fræði­stofnun Háskóla Íslands í nýrri grein­ingu sinni sem Kjarn­inn hefur undir hönd­um, en hún kemur út í vik­unni.

Sam­kvæmt grein­ing­unni má búast við vax­andi verð­bólgu og að neyslu­verð hækki um 4-5 pró­sent út þetta ár. Stofn­unin sagði enn fremur að engin merki séu um að almennt verð­lag hækki minna á kom­andi ári og býst við að verð­hækk­an­irnar á hús­næð­is­mark­aðnum verði yfir almennri verð­bólgu.

Aftur á móti býst stofn­unin við að atvinnu­leysi verði lágt og hald­ist á bil­inu 3-5 pró­sent næstu miss­eri. Að mati hennar er atvinnu­leysi, sem mæld­ist 4,1 pró­sent í júlí, komið niður á nátt­úru­legt stig og mun hald­ast þar út árið.

Auglýsing

Hag­fræði­stofnun byggir spá sína á þeim vænt­ingum að meg­in­vextir Seðla­bank­ans fari hækk­andi á næstu mán­uð­um, en verði þó lægri en þeir voru þegar far­ald­ur­inn skall á. Gert er ráð fyrir að þeir nái tveimur pró­sentum í apríl á næsta ári.

Merki­leg til­raun

Að mati stofn­un­ar­innar var ákvörðun Seðla­bank­ans um að lækka vexti um 1,75 pró­sent á einu ári merki­leg til­raun: „Sú vaxta­lækkun var ekki við­brögð við breyttum efna­hags­að­stæð­um, nema þá að hluta, heldur fólst í henni stefnu­breyt­ing af hálfu bank­ans. Vextir færð­ust í átt það því sem gerð­ist í flestum grann­löndum Íslands. Þetta er merki­leg til­raun og enn er alveg óvíst hvort hún heppn­ast.“

Í grein­ing­unni stendur einnig að nýleg vaxta­hækkun hafi mætt mót­stöðu víða á vinnu­mark­aðn­um, til að mynda hafi Sam­tök atvinnu­lífs­ins sagt að ekki sé ljóst hvaða starf­semi Seðla­bank­inn sé að kæla með því að hækka vexti. Þá bendir stofn­unin á nokkur dæmi, líkt og ummæli for­manns Félags fyr­ir­tækja í hót­el- og gisti­þjón­ustu að mann­ekla væri helsta ástæða þess að hægt gengi að opna hótel í mið­borg Reykja­víkur að nýju, sem sýna að auk­innar spennu gætti í hag­kerf­inu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent