Segist „innilega ósammála“ Kristrúnu um nýja stjórnarskrá og Evrópusambandsmál

Kristrún Frostadóttir, sem vill verða formaður Samfylkingarinnar, hefur sagt að hún vilji leggja áherslu á mál sem flokkurinn geti skilað í höfn. Það sé ekki, sem stendur, þingmeirihluti fyrir aðild að Evrópusambandinu eða samþykkt nýrrar stjórnarskrár.

Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar.
Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar.
Auglýsing

Helga Vala Helga­dótt­ir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, segir að hún sé „inni­lega ósam­mála“ þeirri línu sem Kristrún Frosta­dótt­ir, for­manns­fram­bjóð­andi i flokkn­um, hefur lagt varð­andi nýju stjórn­ar­skrána og aðild að Evr­ópu­sam­band­inu. „Við verðum þá bara að vera sam­mála um að vera inni­lega ósam­mála um þessi tvö grund­vall­ar­stefnu­mál Sam­fylk­ing­ar­inn­ar. Stefnan er svo samin af gras­rót og rædd og sam­þykkt á lands­fundi svo við skulum sjá hvort flokks­fólki hefur snú­ist hug­ur.“ 

Þetta kemur fram í ummælum við færslu Helgu Völu á Face­book sem birt var í gær. Með færsl­unni deildi Helga Vala frétt um að þing­menn Sam­fylk­ing­ar, Við­reisnar og Pírata hefðu lagt fram þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um að þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla yrði haldin um hvort Íslandi ætti að fara í við­ræður um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu. Bæði Helga Vala og Kristrún eru á meðal flutn­ings­manna til­lög­unn­ar. 

Í fréttum er þetta helst - for­gangs­mál okkar er mikið hags­muna­mál fyrir almenn­ing um allt land.

Posted by Helga Vala Helga­dóttir on Thurs­day, Sept­em­ber 15, 2022

Ekki þing­meiri­hluti fyrir nýju stjórn­ar­skránni

Kristrún sagði í við­tali við Kjarn­ann um liðna helgi að raun­veru­­leik­inn væri sá að það sé ekki meiri­hluti á þingi fyrir því að sam­­þykkja nýju stjórn­­­ar­­skránna. Hún sagð­ist hafa verið alveg hrein­skilin með það að hún vilji ekki fara í veg­­ferð á næsta kjör­­tíma­bili sem hún sjái ekki fram á að geta skilað í höfn. Kristrún sagði að það hafi líka verið skiptar skoð­­anir um hvaða hluta stjórn­­­ar­­skrár­innar það eigi að end­­ur­­skoða. „Ég vil að við leggjum áherslu á mál sem við vitum að við getum skilað af okk­­ur. Það þýðir ekki að það sé ekki ákveðin rétt­læt­is­á­­kvæði þarna sem á að tala fyrir og að það eigi að koma mál­inu í ein­hvers­­konar far­­veg. En ég vil ekki senda þau skila­­boð út til almenn­ings að við getum ekki kom­ist áfram í kjarna-vel­­ferð­­ar­­málum nema að við fáum nýja stjórn­­­ar­­skrá.“

Auglýsing
Í stefnu Sam­­fylk­ing­­ar­innar er tekið fram að flokk­­ur­inn vilji að Alþingi sam­­þykki breyt­ingar á stjórn­ar­skrá sem byggj­­ast á til­lögum stjórn­lag­aráðs og þeim þjóð­ar­vilja sem kom fram í þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unni þann 20. októ­ber 2012. 

Óþol­in­móð­ari en Kristrún

Í sama við­tali ræddi Kristrún Evr­ópu­sam­bands­mál og sagði að stefna Sam­fylk­ing­ar­innar þar væri alveg skýr og yrði það áfram. „Við höfum verið fylgj­andi Evr­­ópu­­sam­­bands­að­ild. Ég er sjálf stuðn­­ings­­maður Evr­­ópu­­sam­­bands­ins. Ég er hins vegar líka með­­vituð um það að eins og er þá er ekki þing­­meiri­hluti fyrir mál­inu þótt kann­­anir séu að fara upp á við varð­andi við­horf þjóð­­ar­innar gagn­vart aðild. Fyrsta skrefið fyrir mér er að spyrja þjóð­ina hvort við eigum að fara í þetta verk­efni. Leggja aðild­­ar­við­ræður í þjóð­­ar­at­­kvæða­greiðslu og taka svo stöð­una í kjöl­far­ið.“

Inn­ganga í Evr­ópu­sam­bandið er einnig á meðal mála sem til­tekin eru í sam­þykktri stefnu Sam­fylk­ing­ar­inn­ar. Líkt og áður sagði eru bæði Helga Vala og Kristrún, ásamt öllum öðrum þing­mönnum Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, flutn­ings­menn þings­á­lykt­un­ar­til­lög um að leggja aðild­ar­við­ræður í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu.

Í umræð­unum á Face­book-­þræði Helgu Völu útskýrir hún að mun­ur­inn á afstöðu hennar og Kristrúnar felist aðal­lega í því að hún sé óþol­in­móð­ari en Kristrún. „Tel að við höfum beðið nógu lengi nú þeg­ar. Klárum mál­ið!“

Nýr for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar verður kos­inn á lands­fundi í næsta mán­uði. Sem stendur er Kristrún eini ein­stak­ling­ur­inn sem hefur til­kynnt um fram­boð, en Logi Ein­ars­son, núver­andi for­mað­ur, ætlar ekki að sækj­ast eftir end­ur­kjöri.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent