Segja vaxandi ójöfnuð ganga gegn vilja þjóðarinnar

Sérfræðingahópur á vegum verkalýðshreyfingarinnar segir að afleiðingar COVID-kreppunnar komi verr niður á fólki í lægri tekjuhópum. Slík þróun er til þess fallin að auka ójöfnuð, sem hópurinn segir að sé gegn vilja þjóðarinnar.

1. maí 2019 - ASÍ
Auglýsing

Búast má við að bæði tekju- og eigna­ó­jöfn­uður auk­ist vegna krepp­unnar sem fylgdi heims­far­aldr­in­um, þar sem tekju­lægri voru lík­legri til að missa vinn­una sína og lágir vextir hafa stutt við hraðar verð­hækk­anir á fast­eigna­mark­aði. Slík aukn­ing ójöfn­uðar er gegn vilja íslensku þjóð­ar­inn­ar, sam­kvæmt skoð­ana­könn­un­um.

Þetta kemur fram í fimmtu skýrslu sér­fræð­inga­hóps verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar um efna­hags­leg áhrif heims­far­ald­urs­ins, sem birt var í dag. Þar beinir hóp­ur­inn, sem er leiddur af Höllu Gunn­ars­dótt­ur, fram­kvæmda­stjóra ASÍ, sér­stak­lega sjónum sínum að áhrifum far­ald­urs­ins á ójöfnuð hér á landi.

Flestir Íslend­ingar telja ójöfnuð vera of mik­inn

Hóp­ur­inn vitnar í könnun á við­horfum til ójöfn­uðar sem fram­kvæmd var hér á landi, en hún var liður í alj­þjóð­legu rannókn­inni International Social Sur­vey Programme. Sam­vkæmt henni voru um 82 pró­sent Íslend­inga sam­mála því að launa­munur hafi verið of mik­ill í fyrra. Innan við 7 pró­sent aðspurðra voru aftur á móti ósam­mála þeirri staðhæfingu.

Auglýsing

Einnig sagði meiri­hluti aðspurðra að það væri á ábyrgð stjórn­valda að draga úr launa­mun og töldu flestir þeirra að stjórn­völd hefðu ekki náð miklum árangri í þeim efnum hingað til.

Sam­kvæmt hópnum sýna rannóknir því að meiri­hluti Íslend­inga telji launa­ó­jöfnuð vera of mik­inn hér á landi og að þjóðin vilji ekki að ójöfn­uður auk­ist.

Ójöfn­uður í tekjum og eignum

Í skýrsl­unni er einnig farið yfir þróun tekju­ó­jöfn­uð­ar, en hann hefur hald­ist nokkuð stöð­ugur á árunum 2010-2019, eftir að hafa auk­ist hratt á síð­ustu árunum fyrir hrun og svo fallið í kjöl­far hruns­ins. Sam­kvæmt skýrslu­höf­undum er lík­legt að ójöfn­uður hafi svo auk­ist aftur á und­an­förnum mán­uð­um, þar sem tekju­lágir séu almennt lík­legri til að missa störf sín og að fyr­ir­liggj­andi upp­lýs­ingar bendi til þess að yfir­stand­andi kreppa sé engin und­an­tekn­ing á því.

Til við­bótar við ójöfnuð í tekjum bætir hóp­ur­inn við að eigna­ó­jöfn­uður sé lík­legur til að hafa aukist, þar sem verð hluta­bréfa og fast­eigna hefur auk­ist tölu­vert. Með hærra eigna­verði eykst aðstöðu­mun­ur­inn á milli eigna­fólks og þeirra sem hafa minni skráðar eign­ir. Nið­ur­staðan af þess­ari þróun í tekju- og eigna­ó­jöfn­uði er aukið mis­ræmi í afkomu ólíkra sam­fé­lags­hópa, sam­kvæmt skýrslu­höf­und­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent